
Dularfull skepna hefur náðst á myndavélar við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. UFO-rannsakandinn Jaime Maussan heldur því fram að um sé að ræða rándýr sem sé ólíkt öllum öðrum rándýrum á jörðinni.
Maussan segir að einhvers konar vera hafi verið að ræna og drepa hænur, hana og kanínur í Juárez-dalnum, dreifbýlu landbúnaðarsvæði við Rio Grande-fljót.
Rannsóknarteymi sem setti upp myndavélar á svæðinu segist hafa náð sönnunargögnum um tilvist óþekktu verunnar. Á ljósmyndunum sést stórt, hvítt dýr með langan hala og stóra útlimi.
Vísindamenn sem starfa með Maussan segja að skepnan virðist ekki vera nagdýr, þvottabjörn, rotta, kanína eða annað algengt dýr sem vitað er að lifir í Chihuahua-ríki í Mexíkó.
Maussan segist hafa safnað frásögnum vitna af árásunum. Hann lýsir verunni sem lipurri og greindri, að hún gangi á tveimur fótum, sé að einhverju leyti mannleg í útliti og mælist nokkrur fet á lengd.
Hann telur jafnframt að skepnan sem myndavélarnar hafi náð myndum af í þessum mánuði þurfi ekki endilega að vera geimvera frá öðrum heimi. Hún gæti þess í stað verið einhvers konar greind vera sem komist á milli vídda og deili sama rými í alheiminum og jörðin.
„Af hverju birtist hún þarna? Það er ráðgáta. Eru þetta verur úr öðrum víddum? Eru þetta verur sem komu með öðrum verum? Komu þær í geimförum?“ spurði Maussan í samtali við fjölmiðla í Mexíkó.
Þrátt fyrir að nýjar myndir hafi verið birtar 17. október segja yfirvöld hjá almannavörnum í Juárez að engar tilkynningar hafi borist um mannskæða skepnu á svæðinu eða dýr sem hafi verið numin á brott.
Segja skepnuna vera nærri tveggja metra langa
Á blaðamannafundi á laugardag sögðu fjórir aðstoðarmenn Maussan að þeir hefðu áætlað stærð skepnunnar eftir að hafa séð hana klifra yfir háan múr úr múrsteinum.
Miðað við stærð múrsteinanna töldu þeir veruna vera nærri sex fetum, eða um 1,8 metrum, frá höfði að hala. Halinn einn væri um þrjú fet, eða tæpur metri, á lengd.
Myndavélarnar náðu hvorki að sýna veruna ganga upprétta á afturfótunum né klifra yfir múrinn, en Maussan hefur haldið því fram að hún sé fær um að ganga á tveimur fótum.
Dýrasérfræðingar voru sagðir hafa verið fengnir til að meta hvort um væri að ræða spendýr af þekktri tegund. Að sögn rannsakendanna töldu þeir ekki að skepnan tilheyrði algengri spendýrategund á jörðinni, þótt þeir hefðu ekki útilokað að um gæti verið að ræða dýr sem væri að „stökkbreytast“.
„Þetta er rándýr. Ég er ekki að segja að það sé geimvera, en þetta er eitthvað ógnvekjandi,“ sagði Maussan við NetNoticias.Mx.
„Greind þess og lipurð eru sannarlega ógnvekjandi. Ég held ekki að hún ráðist á fólk, en hún hefur áhrif á hagsmuni þeirra sem búa í hinum svokallaða Juárez-dal.“
Maussan segir rannsókn sína hafa hafist eftir að drengur, sem hann nafngreindi ekki, sá veruna grípa hænu í höfuðið og hlaupa upp í tré í nágrenninu.
Hann líkir málinu við svokallað El Ser de Metepec-mál, sem hann rannsakaði árið 2007. Þá var um að ræða hárlausa, geimverulíka skepnu sem bóndi átti að hafa fundið og drepið í rottugildru. Maussan lýsir nýju skepnunni sem fullorðinni útgáfu þeirrar veru.
Samkvæmt Maussan hafa sumir íbúar svæðisins jafnvel yfirgefið heimili sín af ótta við þessa ómannlegu veru. Yfirvöld hafa þó ekki staðfest þær fullyrðingar.
Lögregla Texas-megin við landamærin sagði við El Paso Times að engar tilkynningar hefðu borist um dularfull kynni eða dauða húsdýra frá því Maussan setti fyrst fram fullyrðingar sínar 5. október.
Hefur áður sett fram umdeildar fullyrðingar
Maussan á langa sögu um umdeildar fullyrðingar um fljúgandi furðuhluti og líf utan jarðar. Nokkur þekkt mál sem hann hefur komið að hafa síðar reynst vera gabb.
Árið 2023 sýndi hann mexíkóska þinginu tvær múmíur sem hann sagði vera af verum sem væru ekki mannlegar. Hann hélt því fram að þær væru af verum sem væru ekki mannlegar. Hann hélt því fram að þær væru sönnun fyrir tilvist geimvera og hefðu fundist í Perú.
Réttarmeinafræðingar komust hins vegar að þeirri niðurstöðu að svokallaðar geimverumúmíur væru tilbúnar brúður úr beinum úr mönnum og dýrum, límdum saman með lími og pappír.
Rannsókn Maussan á El Ser de Metepec reyndist einnig byggð á fölskum forsendum. Hann hafði haldið því fram að um geimveru væri að ræða eftir að hún átti að hafa drepist í rottugildru bónda. Síðar kom í ljós að skepnan var breyttur íkornaapi sem uppstoppari á staðnum hafði útbúið.
