1
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

2
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

3
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

4
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

5
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

6
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

7
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Til baka

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“

Lula og Kristinn
Lula og KristinnKristinn er ánægður með úrslit forsetakosninganna í Brasílíu
Mynd: Facebook

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, fagnar árangri Luiz Inácio Lula da Silva, forseta Brasilíu, og segir mikilvægt að hann haldi velli á tímum þegar öfgahægrinu vex ásmegin víða í Rómönsku Ameríku.

Í færslu á Facebook segir Kristinn að hann fari að jafnaði varlega í að hrósa stjórnmálamönnum, enda þurfi blaðamenn einnig að gagnrýna þá þegar þeir fari út af sporinu. Lula sé þó einn fárra stjórnmálamanna sem virki einlægir í ásetningi sínum til að vinna almenningi gagn.

Kristinn segir forsetann einnig gefa til kynna að honum sé raunverulega umhugað um fólk og nefnir sérstaklega hlýlegt viðmót hans og þétt handtak.

Lula studdi baráttu Assange

Kristinn rifjar upp fyrsta fund sinn með Lula fyrir fjórum árum, eftir að forsetinn hafði sigrað Jair Bolsonaro í kosningum. Að sögn Kristins náði hann þá að ræða við Lula í um klukkustund, þrátt fyrir mikla spennu í höfuðborginni. Hann segir stuðningsmenn Bolsonaro og forsetann sjálfan hafa verið að undirbúa valdarán skömmu síðar.

Á fundinum hét Lula Kristni fullum stuðningi í baráttunni fyrir frelsi Julian Assange og segir Kristinn forsetann hafa staðið við það loforð.

Lula talaði máli Assange á ýmsum vettvangi, meðal annars í opnunarræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og í opinberri heimsókn til Bretlands meðan Assange sat í fangelsi þar í landi.

Kristinn segir Lula einnig hafa beitt sér í samskiptum sínum við Frans páfa, sem tók á móti Stellu Assange, eiginkonu Julians, og sonum þeirra.

Seinni fundur Kristins og Lula fór fram í Róm helgina sem Frans páfi var borinn til grafar. Þá tókst að skipuleggja fund milli Assange og brasilíska forsetans með skömmum fyrirvara, svo Assange gæti þakkað honum persónulega fyrir mikilvægan stuðning.

Fundurinn fór fram daginn áður en þeir Lula og Assange héldu til að kveðja páfann í hinsta sinn.

Óttaðist sigur öfgahægrisins

Kristinn segist hafa verið svartsýnn fyrir seinni umferð kosninganna í Brasilíu. Hann hafi talið miklar líkur á því að landið yrði næsta ríki í Rómönsku Ameríku til að færast í átt að öfgahægrinu.

Hann telur að utanaðkomandi öfl hafi átt þátt í að greiða þeirri þróun leið.

„Ég var mjög svartsýnn fyrir þessa seinni umferð kosninganna og taldi allar líkur á því að Brasilía yrði næsta fórnarlamb pendúlsveiflu til öfgahægrisins í rómönsku Ameríku sem vandlega hefur verið kynnt undir af utanaðkomandi öflum, Trumpklíkunni, amerískum hvítasunnusöfnuðum, kristnum síonistum og Ísraelistum frá hryðjuverkaríkinu sjálfu.“

Kristinn lýkur færslu sinni á því að segja áframhaldandi stöðu Lula mikilvæga fyrir vonir um mannúðlegri heim.

„Það er mikilvægt að Lula heldur velli. Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi,“ skrifar hann.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt
Heimur

Klámstjarna kennir samfélagsmiðlum um minnkandi kynhvöt

Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Loka auglýsingu