
Einn undarlegasti atburður í íslensku atvinnulífi síðustu ár er brotthvarf Harðar Arnarsonar úr stóli forstjóra Landsvirkjunar eftir farsæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyrirtækið Marel með myndarbrag þegar hann tók við Landsvirkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra skipti alfarið út stjórn ríkisorkufyrirtækisins.
Stjórnarformaðurinn Brynja Baldursdóttir er grjótharður kapítalisti. Hún hefur síðustu ár starfað sem forstjóri Motus, félags sem sér um að innheimta skuldir, yfirleitt hjá lítilmagnaranum sem nær ekki að greiða þær af ýmsum ástæðum. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri Creditinfo, sem veitir fólki lánshæfiseinkunn. Brynja sat síðustu átta ár í stjórn Viðskiptaráðs, sem hefur haft þá stefnu að selja eigi að minnsta kosti hluta Landsvirkjunar úr eigu ríkisins.
Í viðskiptaheiminum er rætt að Brynja hafi í þessu tilfelli verið á gráu svæði hvað varðar vandaða stjórnarhætti. Hún segist hafa haldið hálftíma hádegisverði fyrir stjórn án forstjórans og fundað án hans þegar málefni hans voru rædd. Sjálfur segist Hörður ekki hafa fengið tækifæri til að tjá sig um rekstrarmál og upplifað miklar breytingar á stjórnarháttum.
Bent er á að í leiðbeinandi reglum um stjórnarhætti fyrirtækja eigi „stjórnarstarfið æti almennt að fara fram á stjórnarfundum“. Þar segir að „komi til samskipta milli stjórnarmanna og/eða milli stjórnarmanna og daglegra stjórnenda félagsins um málefni er varða ákvarðanir stjórnar eða forsendur ákvarðana stjórnar ætti að upplýsa um þau við upphaf næsta stjórnarfundar.“
Miðað við uppnámið í mesta fjöreggi Íslendinga eftir aðkomu Daða Más virðist komið fram enn annað dæmið í safnið um óreiðu tengda Viðreisn.