
Lögreglan á Vesturlandi hefur borið kennsl á einstakling sem grunaður er um að hafa átt við hraðamyndavél lögreglu á Vesturlandsvegi með þeim afleiðingum að myndavélin gat ekki myndað hraðakstursbrot. Atvikið hefur vakið nokkra umræðu og sitt sýnist hverjum um staðsetningu hraðaeftirlitsins.
Atvikið átti sér stað 23. október þegar hraðamyndavélabifreið Lögreglunnar á Vesturlandi var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi. Að sögn lögreglu hafði verið límt yfir linsu myndavélarinnar og var hún því óvirk um tíma.
Lögreglan segir á Facebook slíka háttsemi hafa bein áhrif á umferðareftirlit enda gegni hraðamyndavélar mikilvægu hlutverki við að fylgjast með hraðakstri og stuðla að auknu umferðaröryggi.
Málið sé enn alvarlegra vegna þess að flutningabifreið hafi verið stöðvuð á akrein við gatnamót þegar átt var við myndavélina. Þar sé umferð jafnan mikil og hröð og hafi því skapast hætta fyrir aðra vegfarendur.
Lögreglan hefur borið kennsl á þann sem grunaður er um verknaðinn og er málið til rannsóknar vegna gruns um lögbrot.
Gagnrýna staðsetningu hraðaeftirlitsins
Færsla lögreglunnar hefur vakið umræður á samfélagsmiðlum þar sem meðal annars hefur verið deilt um staðsetningu hraðamyndavélarinnar.
Snorri Már Lárusson gagnrýnir eftirlitið og telur aðstæður á umræddum stað skipta máli. Hann segir hámarkshraða þar hafa verið lækkaðan tímabundið vegna vegavinnu en að hraðamælingin hafi farið fram utan vinnutíma.
„Ég tel ekki að um umferðareftirlit sé að ræða þegar þið plantið þessum bíl þar sem hámarkshraði hefur verið lækkaður tímabundið vegna vegavinnu og það utan vinnutíma,“ segir Snorri Már og bætir við að slíkt kallist „nornaveiðar á heiðarlegri íslensku“.
Olafur Olafsson er ósammála þeirri gagnrýni og telur fulla þörf á hraðamælingum við vinnusvæði. Hann segir lækkaðan hámarkshraða meðal annars vera ætlaðan til að vernda þá sem starfa við vegavinnu.
„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum á og við vinnusvæði þar sem hámarkshraði hefur verið tekinn niður tímabundið,“ segir Olafur og bendir á að starfsfólk við vegavinnu geti verið í mikilli hættu vegna ökumanna sem virði ekki aðstæður.
Ægir Eyberg gagnrýnir einnig staðsetningu hraðamyndavélarinnar og telur lögreglu geta nýtt eftirlitið annars staðar. Hann segir nær að staðsetja bílinn á köflum þar sem 90 kílómetra hámarkshraði gildi fremur en að „veiða fólk á 70 kaflanum“ við verksmiðjurnar.
Ægir bendir jafnframt á að lögregla mætti beina sjónum sínum að ökumönnum sem stöðvi bifreiðar í útskotum við veginn, meðal annars til að taka myndir, klappa hestum eða athuga símann. Að hans sögn séu slík útskot ætluð til þess að umferð þurfi ekki að stöðvast vegna ökutækja sem hyggjast beygja til vinstri.
Hann tekur þó fram að lögreglan sé oft sýnileg á þjóðveginum á svæðinu og segir það jákvætt.
Lögreglan á Vesturlandi minnir á að hraðaeftirlit sé mikilvægur þáttur í umferðaröryggi og að hvers kyns tálmun á störfum lögreglu geti haft alvarlegar afleiðingar.
