1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

9
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

10
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Til baka

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ferðamálastofa fundaði um öryggi Stuðlagils

Stuðlagil
StuðlagilTil stendur að bæta öryggi gesta við Stuðlagil
Mynd: Misha Martin/Unsplash

Skoða á möguleika á að koma upp einföldum björgunarbúnaði við Stuðlagil í kjölfar banaslyss þar í lok ágúst. Einnig þarf að bæta fjarskipti, efla viðbragðsgetu og tryggja að ferðamenn haldi sig frá hættulegustu svæðunum.

Þetta kemur fram eftir fund Ferðamálastofu með hagaðilum í kjölfar þess að erlendur ferðamaður féll í ána og drukknaði en Austurfrétt sagði frá niðurstöðum fundarins.

Meðal þess sem til stendur að skoða er uppsetning kastlína og björgunarhringja sem gestir eða starfsfólk í nágrenninu gætu nýtt sér þegar slys verða. Slíkur búnaður hentar ekki við allar aðstæður en gæti komið að gagni í ákveðnum tilvikum.

Fjarskipti og viðbrögð í brennidepli

Stuðlagil er fjarri þéttbýli og því getur tekið tíma fyrir björgunaraðila að komast á vettvang. Því er mikilvægt að efla viðbragðsgetu á svæðinu, skýra verkaskiptingu og tryggja að landeigendur og rekstraraðilar fái upplýsingar þegar slys verða.

Einnig þarf að bregðast við vandamálum með Tetra-fjarskiptakerfið, en truflanir komu upp í aðgerðum í ágúst þrátt fyrir að fjarskipti hefðu verið bætt eftir banaslys árið 2024.

Eftirlitsmyndavélar eru einnig til skoðunar. Þær gætu auðveldað rannsókn slysa og hjálpað við að staðsetja fólk sem fellur í ána, en slíkur búnaður krefst áreiðanlegs rafmagns og fjarskipta.

Ferðamönnum beint frá hættusvæðum

Ekki er talið raunhæft að loka Stuðlagili alveg. Þess í stað verður horft til þess að stýra umferð gesta með girðingum, böndum, hliðum og öruggari gönguleiðum.

Einnig á að endurskoða öryggismerkingar og gera þær einfaldari og myndrænni svo gestir átti sig betur á hættunum.

Niðurstaðan er sú að tryggja þurfi öryggi við Stuðlagil með samstilltum aðgerðum, meðal annars með bættum innviðum, skýrari upplýsingagjöf og öflugri viðbragðsgetu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Loka auglýsingu