1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

4
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

5
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

6
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

7
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

8
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

9
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Stefnt er að því að kerfið taki gildi í maí 2027

Gullfoss 2
Gullfoss
Mynd: Nickspix/Wikipedia

Virti bandaríski fjölmiðillinn Forbes fjallar um fyrirhugað náttúru- og innviðagjald íslenskra stjórnvalda sem myndi leggjast á erlenda ferðamenn sem heimsækja Þingvelli, Geysi og Gullfoss.

Forbes bendir á að Gullni hringurinn sé meðal vinsælustu ferðamannaleiða Íslands og nánast ómissandi viðkomustaður margra sem heimsækja landið í fyrsta sinn.

Samkvæmt frumvarpsdrögum stjórnvalda myndu einstaklingar 18 ára og eldri, sem ekki eru frá Íslandi, greiða 4.500 krónur fyrir aðgang að stöðunum frá júní til október. Frá nóvember til maí yrði gjaldið 3.000 krónur.

Forbes tekur fram að rafrænn aðgangspassi myndi gilda á alla þrjá staðina í eitt ár. Stefnt er að því að kerfið taki gildi í maí 2027 en tillögurnar eru enn í samráðsferli.

Í umfjöllun Forbes kemur fram að kostnaður ferðamanna gæti þó orðið meiri. Hætt yrði að innheimta bílastæðagjald á Þingvöllum en áfram yrði rukkað fyrir bílastæði við Geysi og Gullfoss, þar sem þau eru í einkaeigu. Bílastæðagjaldið er nú um 1.200 krónur á hvorum stað. Ferðamaður á eigin bíl gæti því greitt samtals um 6.900 krónur fyrir Gullna hringinn að sumri.

Forbes greinir einnig frá gagnrýni íslenskrar ferðaþjónustu á hugmyndina. Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia, hefur bent á að 4.500 króna gjaldið samsvari um 40 prósentum af verði Gullna hrings ferðar.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur varið tillögurnar og bent á að íslenskir skattgreiðendur standi nú þegar undir kostnaði við innviði og náttúruvernd.

Forbes setur málið jafnframt í norrænt samhengi og bendir á að sambærileg þróun eigi sér stað í Noregi, þar sem unnið er að nýjum gjöldum á ferðamenn. Þar á meðal eru fyrirhuguð gistináttagjöld og sérstök gjöld á farþega skemmtiferðaskipa.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Fjölskylduráð Múlaþings hafnaði að veita heilbrigðisstarfsfólki forgang að leikskólaplássi.
Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Loka auglýsingu