
Húsgagnaverslunin JYSK á Íslandi hefur svarað ummælum Mörtu Maríu Winkel sem hún lét falla í Dagmálum á mbl.is með færslu á Facebook þar sem fyrirtækið gerir létt grín að ummælunum og bendir á mikið úrval af hillum í verslunum sínum.
Í umfjöllun Smartlands um viðtalið birtist fyrirsögnin „Það er ekki hægt að hafa einhverja JYSK hillu á veggnum“ og ákvað fyrirtækið að svara með því að vísa til þess að Marta María væri mögulega ekki „á réttri hillu“.
„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu. Við erum nefnilega með mikið úrval af hillum sem eru fallegar beint úr pakkanum og það þarf ekkert að vera að vesenast við að lakka til að gera þær álitlegar,“ segir í færslu JYSK.
Fyrirtækið lætur ekki þar við sitja heldur býður Mörtu Maríu að koma í verslunina og fá aðstoð við að velja hillu.
„Kíktu bara til okkar Marta, við hjálpum þér að finna þína réttu hillu í lífinu! Alltaf velkomin Smartland Mörtu Maríu, hlökkum til að sjá þig!“ segir í færslunni.
