
Guðmundur Andri Thorsson hefur komið víða við á ferlinum. Hann hefur setið á Alþingi, sungið og spilað á gítar og starfað lengi við ritstörf. Áður en allt þetta kom til greina stefndi hann þó í allt aðra átt.
Guðmundur var gestur Mannlega þáttarins á dögunum og rifjaði þar meðal annars upp æskuárin í Vogahverfinu í Reykjavík. Þar kom fram að hvorki handavinna né íþróttir virtust ætla að verða hans helsti starfsvettvangur.
Hann segist þó hafa verið ágætur í fótbolta en ekki alveg sáttur við stöðuna sem honum var úthlutað.
„Ég var alveg þokkalegur í fótbolta en samt hafður í vörn. Mér fannst að ég ætti að vera frammi en ég var hafður í vörn í bekkjarliðinu sem var að vísu skipað framúrskarandi spilurum.“
Leiklistin heillaði Guðmund meira og þegar hann var aðeins níu eða tíu ára var hann sendur í látbragðsskóla Tang Gee Sigurðsson. Tang Gee var frá Singapúr og hafði lært látbragðslist hjá sjálfum Marcel Marceau í Frakklandi.
Guðmundur segir kennarann hafa verið „allt of góða fyrir okkur og Ísland“ en námið leiddi jafnframt eitt mikilvægt í ljós.
„Það kom þarna í ljós að ég myndi ekki hafa afgerandi hæfileika á þessu sviði,“ sagði Guðmundur léttur í bragði.
Látbragðslistin varð því ekki framtíðarstarfið en Guðmundur fann síðar sinn vettvang í orðunum, tónlistinni og um tíma stjórnmálunum.
