1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

6
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

9
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

10
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Til baka

Hildur rekur 50 manns

Þeim sem missa vinnuna býðst aðstoð sálfræðinga

Hildur Björnsdóttir
Hildur BjörnsdóttirEr borgarstjóri Reykjavíkur
Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Reykjavíkurborg segir hefur rekið 50 manns samkvæmt tilkynningunni frá borginni. Borgaryfirvöld áætla að aðgerðirnar geti skilað um 1,3 milljörðum króna í árlegan sparnað, en um er að ræða áætlaða fjárhæð.

Borgarstjórn samþykkti aðgerðirnar í dag. Þær eiga samkvæmt útreikningum borgarinnar að leiða til fækkunar sem nemur 73,8 stöðugildum. Auk uppsagnanna er þar meðal annars reiknað með áhrifum starfsmannaveltu, tímabundinna starfa og stöðvunar ráðninga.

Þremur þeirra 50 starfsmanna sem sagt verður upp verður boðið annað laust starf. Þeim sem missa vinnuna býðst aðstoð sálfræðinga og ráðgjöf við atvinnuleit.

Aðgerðirnar ná til fimm sviða og tveggja skrifstofa borgarinnar en ekki skóla- og frístundasviðs eða velferðarsviðs.

Borgin stefnir að því að hlutfall stöðugilda í miðlægri starfsemi verði að hámarki 7,5 prósent af heildarstöðugildum.

Reykjavíkurborg áætlar jafnframt að hagræðingar- og stjórnkerfisbreytingar frá því í júní geti lækkað launakostnað um samtals 2,3 milljarða króna á ársgrundvelli. Sú tala byggir á mati og forsendum borgarinnar um fjárhagsleg áhrif aðgerðanna og liggur því ekki fyrir sem staðfestur sparnaður.

„Með þessum aðgerðum lýkur þriðja og síðasta áfanga þeirrar umfangsmiklu fækkunar stöðugilda sem við höfum þurft að ráðast í undanfarna mánuði í miðlægri stjórnsýslu. Þetta hafa verið erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir sem ekki eru teknar af léttúð. Að baki þessum tölum er fólk sem hefur sinnt mikilvægum störfum og ég vil þakka því fyrir þeirra framlag til borgarinnar í gegnum árin. Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er grafalvarleg. Borgin hefur verið rekin með miklum halla undanfarin ár og við þeirri stöðu verður að bregðast af festu og ábyrgð. Við höfum lagt áherslu á að beina hagræðingaraðgerðum fyrst og fremst að stjórnun, innri þjónustu og miðlægri stjórnsýslu og þannig staðið vörð um grunnþjónustu við borgarbúa. Það er ábyrgð okkar kjörinna fulltrúa að ná tökum á rekstrinum og lækka vaxtabyrði borgarinnar. Aðeins þannig getum við staðið vörð um grunnþjónustuna og tryggt nauðsynlegar fjárfestingar til framtíðar,“ segir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Dómurinn taldi skýringar hans verulega ótrúverðugar
Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Pólitík

Hildur rekur 50 manns
Pólitík

Hildur rekur 50 manns

Þeim sem missa vinnuna býðst aðstoð sálfræðinga
„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Loka auglýsingu