1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

6
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

9
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

10
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

Til baka

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

„Sú ákvörðun er hjá framkvæmdastjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heimild gegn Ísrael“

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirDómsmálaráðherra vísar í reglur Schengen í svari sínu
Mynd: Viðreisn

Dómsmálaráðherra segir Ísland bundið af sameiginlegum reglum Schengen um áritunarfrelsi Ísraela. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi heimild til að fella niður slíkt frelsi vegna alvarlegra mannréttindabrota en hafi ekki beitt henni gegn Ísrael.

Ísland getur ekki afnumið áritunarfrelsi ísraelskra ríkisborgara að eigin frumkvæði eða án samráðs innan Schengen-samstarfsins. Þetta kemur fram í svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn Mannlífs um hvort henni þyki jafn óásættanlegt að Ísraelar ferðist til Evrópu og hún sagði í sumar um ferðalög Rússa, í ljósi stríðsins í Úkraínu.

Fyrirspurnin var send í kjölfar frétta um að ísraelska flugfélagið Arkia hefði bætt Keflavíkurflugvelli við áfangastaði sína og auglýsti beint flug til Íslands.

Í fyrirspurn Mannlífs var vísað til ummæla ráðherra í samtali við RÚV í sumar, þar sem hún sagðist telja fáránlegt að Rússar fengju að ferðast til Evrópu á meðan árásarstríð Rússlands í Úkraínu stæði yfir. Ráðherra var spurð hvort henni þætti jafnframt fáránlegt að Ísraelar fengju að ferðast til Evrópu, þar á meðal Íslands, á meðan þjóðarmorð væri framið á Gaza og landrán og ofbeldi ættu sér stað á Vesturbakkanum.

Ísraelar njóta áritunarfrelsis

Í svari ráðherra kemur fram að Ísland sé bundið af sameiginlegum reglum Schengen-samstarfsins um það hvaða ríkisborgarar þurfi vegabréfsáritun til að ferðast inn á svæðið.

„Rússneskir ríkisborgarar þurfa samkvæmt þeim reglum vegabréfsáritun en ísraelskir ríkisborgarar mega dvelja á Schengen-svæðinu í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili án undirritunar,“ segir í svarinu.

Þar kemur jafnframt fram að eftir innrás Rússa í Úkraínu hafi Evrópusambandið fellt niður samning sem auðveldaði Rússum að fá vegabréfsáritun. Frá nóvember 2025 hafi flestir Rússar aðeins fengið áritun fyrir eina ferð í senn.

„Allar umsóknir frá Rússlandi eru metnar af mikilli varúð og skoðað er vandlega hvort umsækjandi geti ógnað öryggi Schengen-ríkja,“ segir ráðherra.

Hún bendir á að Ísland geti ekki breytt áritunarfrelsi Ísraela einhliða.

„Undanþága Ísraela frá áritunarskyldu er sameiginleg regla sem Ísland getur ekki breytt að eigin frumkvæði eða án samráðs á vettvangi Schengen.“

ESB getur fellt niður áritunarfrelsi vegna mannréttindabrota

Í svari ráðherra kemur þó fram að nýlegt regluverk Evrópusambandsins veiti framkvæmdastjórninni heimild til að fella niður áritunarfrelsi ríkis við tilteknar aðstæður.

„Þó má nefna að samkvæmt nýlegu regluverki áritana getur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tekið ákvörðun um að fella niður áritanafrelsi ríkis sem brýtur alvarlega gegn mannréttindum, mannúðarrétti eða niðurstöðu alþjóðlegra dómstóla að undangengnu samráðsferli innan Schengen-ríkja.“

Ráðherra segir að framkvæmdastjórn ESB hafi þó ekki beitt þessari heimild gagnvart Ísrael.

„Sú ákvörðun er hjá framkvæmdastjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heimild gegn Ísrael,“ segir í svarinu.

Ísland hafi lýst andstöðu við mannréttindabrot

Ráðherra tekur einnig fram að hún hafi opinberlega lagt áherslu á andstöðu Íslands við mannréttindabrot á Gaza og að alþjóðalög eigi að gilda jafnt um alla.

„Í öðru lagi hefur ráðherra opinberlega lagt áherslu á skýra andstöðu Íslands við mannréttindabrot á Gaza og ítrekað að alþjóðalög eigi að gilda jafnt um alla. Það gerði hún meðal annars á sumarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári.“

Þá segir ráðherra að heimildir erlendra flugfélaga til að fljúga til Íslands, hvort sem um sé að ræða áætlunarflug eða leiguflug, heyri ekki undir málefnasvið dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneytisins.

Hún leggur jafnframt áherslu á að einstaklingum sem taldir eru ógna öryggi eða alþjóðasamskiptum Schengen-ríkis sé synjað um komu, óháð því hvaða landi þeir koma frá.

„Hverjum þeim sem er talinn ógna öryggi eða alþjóðasamskiptum Schengen-ríkis er synjað um komu, óháð því hvaða landi hann kemur frá,“ segir í svari dómsmálaráðherra.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Þrjú börn og kennari létust í árásinni
Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum
Heimur

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

„Sú ákvörðun er hjá framkvæmdastjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heimild gegn Ísrael“
„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Loka auglýsingu