
Mikil umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum í Bandaríkjunum eftir að lögregla var kölluð á knattspyrnuleik barna nærri Orlando í Flórída. Foreldrar þriggja ára drengs halda því fram að afskiptin hafi komið til vegna þess hversu góður sonur þeirra er í knattspyrnu en forsvarsmaður deildarinnar segir ástæðuna hafa verið hegðun foreldranna.
Drengurinn, sem heitir Nevada, er aðeins þriggja ára en leikur með börnum sem eru einu til tveimur árum eldri. Myndskeið af honum sýna hann skora mikið og bera af á vellinum.
Thomas Hayes, einn stjórnenda deildarinnar, viðurkenndi í samtali við lögreglu að Nevada væri óvenjulega hæfileikaríkur.
„Strákurinn er mjög góður. Hann er frábær. Virkilega góður,“ sagði Hayes samkvæmt upptöku úr búkmyndavél lögreglumanns.
Hayes sagði þó að vandamálið snerist ekki um hæfileika drengsins. Nevada hefði ýtt öðrum börnum á meðan leikjum stóð og foreldrar hans hefðu brugðist illa við þegar reynt var að grípa inn í. Hann hélt því fram að þau hefðu áður lent í ágreiningi við aðra foreldra og skapað mikið uppnám.
Móðir Nevada hafnaði þeirri lýsingu. Hún sagði fjölskylduna viljandi halda sig hinum megin við völlinn en aðra foreldra til að forðast árekstra.
„Þau eru bókstaflega að reka hann héðan vegna þess að hann er góður í fótbolta,“ sagði hún við lögreglu.
Faðir drengsins tók í sama streng á myndskeiði fjölskyldunnar og sagði lögreglu hafa verið kallaða til vegna þess að þriggja ára sonur hans væri „of góður“.
Hayes óskaði eftir því að fjölskyldan yfirgæfi svæðið og sagðist reiðubúinn að endurgreiða henni þátttökugjaldið.
