
Bandaríska varnarmálaráðuneytið birti á föstudag nýjan bunka af áður leynilegum skjölum um óútskýrð fyrirbæri. Þar á meðal er rannsóknarskýrsla frá árinu 2010 um dularfullar verur, risavaxna skugga og ókennileg ljós í grennd við búgarð í Utah-ríki.
Skýrslan hefur að geyma frásagnir fólks sem taldi sig hafa orðið vart við svokallaða skinwalkers, hamskiptingar úr þjóðtrú Navajo-frumbyggja. Samkvæmt þjóðtrúnni eru þetta illgjarnir galdramenn sem geta tekið á sig dýrsmynd.
Þótt búið sé að afmá ýmsar persónuupplýsingar úr skjölunum bendir kort í skýrslunni til þess að rannsóknin hafi farið fram í grennd við Skinwalker Ranch, um 207 hektara búgarð í Uintah-dalnum. Svæðið hefur lengi verið tengt sögum um yfirnáttúruleg fyrirbæri.
Hundslík vera með mannlegt nef
Eitt vitnanna lýsti kynnum sínum af dularfullri veru í janúar 2010. Maðurinn sagði hana hafa líkst hundi en verið með nef sem minnti á mannsnef. Þegar ljós féll á veruna sá hann að hún var með stuttan svartan og gráan feld, oddhvöss eyru og stuttan hala.
„Hún hljóp eins og hún væri að stökkva,“ segir í frásögn mannsins sem rannsakendur skráðu.
Hann sagðist einnig hafa heyrt veruna gefa frá sér væl sem hann taldi vera viðvörun um að hún væri á ferð.
Sami maður lýsti öðru atviki sem átti sér stað tveimur kvöldum áður en rannsakendur ræddu við hann 24. mars. Hann var þá heima hjá sér um klukkan átta að kvöldi þegar stór skuggi þaut fram hjá húsinu.
Hundar hans tóku að gelta og eltu það sem hann taldi vera sömu dularfullu veruna. Hún virtist ítrekað rekast á gaddavírsgirðingu áður en hún hljóp í átt að yfirgefnum bóndabæ hinum megin við veginn.
Maðurinn sagði veruna hafa hreyft sig á ótrúlegum hraða, líkt og afreksíþróttamaður. Hann fylgdist með atburðarásinni úr dyragætt heimilis síns í um hálftíma.
Rannsakendur fundu síðar hár sem höfðu fest í gaddavírnum og sendu þau til DNA-rannsóknar.
Niðurstöðurnar bentu þó til mun hversdagslegri skýringar en maðurinn hafði ímyndað sér. Erfðaefnið í tveimur sýnum samsvaraði erfðaefni hunds á búgarðinum. Rannsakendur töldu því mjög líklegt að hárin væru úr venjulegum hundi, þótt DNA-niðurstaðan ein og sér gæti ekki staðfest það með fullri vissu.
Sagðist hafa séð gátt inn í annan heim
Önnur frásögn í skýrslunni er frá konu sem taldi sig hafa séð dularfulla gátt um tuttugu árum áður en hún ræddi við rannsakendur árið 2010.
Konan lýsti gagnsæju fyrirbæri sem var um níu til tólf metra hátt og virtist gárast eins og vatn eða hitamóða. Hún sagðist hafa fylgst með því úr um 30 metra fjarlægð.
Fyrirbærið hreyfðist ekki og konan sagðist hafa fundið fyrir óvenjulegri ró í návist þess. Það var enn sýnilegt þegar hún yfirgaf staðinn.
Eftir að hafa lesið bók um Skinwalker-fyrirbærið fór hún að trúa því að hún hefði séð gátt inn í annan heim.
Loðin hönd teygði sig inn um svefnherbergisglugga
Í skjölunum er einnig að finna frásagnir af öðrum ókennilegum verum.
Maður nokkur sagðist hafa vaknað við það veturinn 2003 að stór og loðin hönd teygði sig inn um svefnherbergisgluggann hans. Hann lýsti handlegg sem var um 90 sentímetra langur, með fjórum löngum fingrum, engum sýnilegum þumli og klóm sem minntu á hundsklær.
Þegar maðurinn hrópaði dróst höndin aftur út um gluggann.
Ung kona sagðist hafa séð álúta, kvenlega veru með svart axlarsítt hár og í rifnum fötum stökkva á milli húsþaka árið 2009.
Móðir hennar á einnig að hafa séð veruna og hringt í neyðarlínuna, sem varð til þess að lögregla kom á vettvang.
Konan taldi sig hafa séð veru sem í þjóðtrú Ute-frumbyggja er kölluð „körfukonan“.
Önnur kona lýsti því að hafa séð um 2,4 metra háa, hárlausa veru húka á hestaskýli í september 2009. Veran stökk síðan á brott.
Konan viðurkenndi að hafa aðeins séð hana örstutta stund aftan frá, en fjögurra ára dóttir hennar líkti henni við kengúru.
Þá sögðust önnur vitni hafa heyrt óhugnanlegt urr og öskur fyrir utan heimili sitt að kvöldi 22. mars 2010. Hljóðið heyrðist tvisvar og stóð yfir í fimm til tíu sekúndur í hvort skipti.
Dularfull ljós virtust reyna að fela sig
Rannsóknarskýrslan hefur jafnframt að geyma fjölmargar frásagnir af óútskýrðum ljósum.
Eitt vitni sagðist hafa séð bláan ljósbolta svífa yfir svæði nálægt Bottle Hollow-vatni áður en hann færðist í átt að Skinwalker-hryggnum.
Önnur kona lýsti litlu, blágrænu ljósi sem sveif í tré fyrir utan heimili hennar í febrúar 2010. Ljósið var dauft og lýsti ekki upp tréð, en hvarf skyndilega „á einu augabragði“.
Enn eitt vitnið sagðist hafa fylgst með ljósum sem virtust færa sig á bak við hluti þegar þau urðu vör við nærveru hans. Maðurinn túlkaði þetta sem tilraun ljósanna til að fela sig.
Rannsakendur komu fyrir hreyfiskynjandi myndavélum á svæðinu og héldu áfram að safna vitnisburði.
Þrátt fyrir hinar fjölmörgu og óvenjulegu frásagnir fundu rannsakendur engar sannanir fyrir því að yfirnáttúrulegar verur væru á ferðinni. Skýrslan veitir heldur enga endanlega skýringu á dularfullu ljósunum sem vitnin lýstu.
