
Að minnsta kosti 39 manns hafa látið lífið eftir að tvær háhraðalestir skullu saman á Spáni. Við áreksturinn fóru tveir lestavagnar út af sporinu og niður brekku.
Slysið varð skömmu eftir klukkan níu að í morgun á háhraðalínunni milli Madrid og Andalúsíu, á milli bæjanna Los Yébenes og Urda í Toledo-héraði.
Annars vegar var um að ræða AVE-háhraðalest spænska ríkisjárnbrautafélagsins Renfe, sem var á leið frá Madrid til Sevilla, og hins vegar lest frá Iryo-fyrirtækinu sem var á leið í gagnstæða átt.
Yfirvöld á svæðinu sögðu við Sky News að að minnsta kosti 39 manns hefðu látist. Sjónarvottar greindu jafnframt frá fjölda slasaðra og neyðar- og sjúkraflutningalið var sent á vettvang.
Adif, ríkisfyrirtækið sem sér um járnbrautarinnviði Spánar, hefur stöðvað lestarumferð á leiðinni eftir áreksturinn.
„Lestarumferð á háhraðalínunni milli Madrid og Andalúsíu liggur nú niðri vegna áreksturs tveggja lesta,“ sagði fyrirtækið í tilkynningu.
Annað mannskæða lestarslysið á Spáni á þessu ári
Slysið er annað mannskæða lestarslysið á háhraðalínum Spánar á þessu ári.
Að minnsta kosti 45 manns létust og 170 slösuðust þegar tvær lestir fóru út af sporinu nærri Adamuz á Suður-Spáni þann 18. janúar.
Þar var annars vegar um að ræða lest frá Iryo-fyrirtækinu á leið frá Málaga til Madrid og hins vegar lest sem var á leið frá Madrid til Huelva.
