
Stórmoskan við Bústaðaveg segist ekki hafa boðið pakistanska trúarleiðtoganum Muhammad Taqi Usmani til Íslands og að ekkert sérstakt mat hafi verið lagt á umdeildar skoðanir hans áður en hann flutti trúarlegan fyrirlestur í moskunni í síðustu viku.
Þetta kemur fram í svörum Karim Askari, framkvæmdastjóri Stofnunar múslima á Íslandi, við fyrirspurn Mannlífs.
Morgunblaðið greindi frá því að Usmani hefði flutt trúarlegan fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg á miðvikudag í síðustu viku. Í frétt miðilsins var meðal annars fjallað um skrif Usmani þar sem tekið er fram að hann hafi varið dauðarefsingu fyrir trúhvarf frá íslam, auk þess sem fjallað var um afstöðu hans til refsinga á borð við aflimanir og grýtingu samkvæmt íslömskum rétti.
Aðspurður hver hefði boðið Usmani segir Karim að hvorki Stofnun múslima á Íslandi né Stórmoskan hafi formlega boðið honum.
„Hann var í einkaferð um Norðurlönd og heimsókn hans í moskuna var skipulögð eftir að einn af aðstoðarmönnum hans hafði samband við meðlim í samfélaginu á Íslandi,“ segir Karim. Fyrirlesturinn hafi verið trúarlegs eðlis og ætlaður safnaðarmeðlimum.
Karim segir að moskan hafi ekki framkvæmt sérstakt mat á fræðilegum, lagalegum eða pólitískum skoðunum Usmani áður en heimsóknin fór fram.
„Heimsóknin var skipulögð sem stutt trúarleg heimsókn og fyrirlestur fyrir safnaðarfólk.“
Ekkert sérstakt áhættumat
Usmani er fyrrverandi dómari við sjaríaáfrýjunardeild Hæstaréttar Pakistans og áhrifamikill fræðimaður innan Deobandi hreyfingar súnní múslima samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins. Þá segir fjölmiðillinn frá því að hann hafi meðal annars hafnað því í skrifum sínum að dauðarefsing fyrir trúarfráhvarf eigi aðeins við þegar trúhvarfi fylgi uppreisn eða hryðjuverk.
Mannlíf spurði hvort Stórmoskan tæki afdráttarlaust afstöðu gegn dauðarefsingu vegna trúhvarfs. Karim svaraði að Stofnun múslima á Íslandi starfaði samkvæmt íslenskum lögum og virti stjórnarskrárvarin réttindi.
„Moskan hefur hvorki dómsvald né hlutverk í beitingu refsinga af neinu tagi og styður að sjálfsögðu að allir njóti þeirra réttinda sem íslensk lög tryggja,“ segir hann.
Usmani var ekki spurður um trúhvarf, dauðarefsingar eða trúfrelsi meðan á heimsókn hans stóð. Karim segir þau málefni ekki hafa komið til umræðu, hvorki á fundinum né í fyrirlestrinum.
Ekkert formlegt áhættumat fór heldur fram vegna heimsóknarinnar.
„Engin formleg umræða eða sérstakt áhættumat af því tagi fór fram þar sem heimsóknin var ekki skipulögð sem opinber ráðstefna eða vettvangur fyrir pólitíska umræðu, heldur sem trúarleg heimsókn gestafyrirlesara,“ segir Karim.
Skoðanir Usmani ekki afstaða moskunnar
Stórmoskan vill ekki leggja mat á hvort umfjöllun Morgunblaðsins gefi rétta mynd af skoðunum Usmani. Karim segir slíkt mat þurfa að byggjast á frumheimildum og skýringum Usmani sjálfs. Moskan geti því hvorki staðfest né hrakið einstakar túlkanir í fréttaflutningi.
Karim segir jafnframt að Morgunblaðið hafi ekki haft samband við moskuna áður en fréttin var birt.
Hann leggur áherslu á að skoðanir Usmani verði ekki lagðar að jöfnu við afstöðu íslamska trúfélagsins.
„Það sem við getum hins vegar staðfest er að umfjöllunin fjallar um skoðanir og skrif einstaklings sem moskan bauð ekki til landsins og að þær skoðanir eru ekki sjálfkrafa afstaða Stofnunar múslima á Íslandi eða Stórmoskunnar.“
