1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

5
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

6
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

7
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

8
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

9
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

10
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Til baka

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

Helga Vala gagnrýnir framkomu við starfsfólk Reykjavíkurborgar

Hildur Björnsdóttir
Hildur BjörnsdóttirBorgarstjórinn fær að finna til tevatnsins í færslu Helgu Völu
Mynd: BHJ

Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir harðlega hvernig staðið var að uppsögnum 50 starfsmanna Reykjavíkurborgar. Hún spyr hvers vegna starfsfólk fái ekki að vinna uppsagnarfrest, kveðja samstarfsfólk og miðla þekkingu sinni til þeirra sem taka við verkefnunum.

Í færslu á Facebook veltir hún fyrir sér þróuninni á íslenskum vinnumarkaði og þeirri venju að starfsfólki sé sagt upp með litlum fyrirvara og það jafnvel látið yfirgefa vinnustaðinn samstundis.

„Eftir að hafa fylgst með uppsögnum í ráðhúsinu í gær spyr ég, hvað gerðist eiginlega á íslenskum vinnumarkaði? Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki, sem hefur ekki brotið af sér í starfi, út með skít og skömm?“ skrifar Helga Vala.

Hún gagnrýnir sérstaklega að starfsfólk sé kallað á fund án fyrirvara, því sagt upp og því í kjölfarið vísað úr húsi.

„Af hverju þykir það smart að kalla fólk inn á fund með engum fyrirvara, segja því upp og um leið vísa því úr húsi,“ spyr hún.

Spyr hvers vegna fólk fái ekki að vinna uppsagnarfrestinn

Helga Vala segir einnig ástæðu til að velta því fyrir sér hvers vegna atvinnurekendur kjósi að láta fólk hætta störfum samstundis í stað þess að leyfa því að vinna uppsagnarfrestinn.

„Hvers vegna þykir atvinnurekendum ákjósanlegt að fólk fái ekki að vinna uppsagnarfrest, kveðja samstarfsfólk sitt og jafna sig á áfallinu í sátt við vinnustaðinn í stað þessarar framkomu?“ skrifar hún.

Hún beinir jafnframt sjónum að áhrifum þessarar nálgunar á starfsemina sjálfa og spyr hvernig nýir starfsmenn eigi að taka við verkefnum þegar þeir sem sinntu þeim hafa þegar verið látnir fara.

Segir þekkingu og reynslu geta farið forgörðum

Helga Vala bendir á að starfsmenn sem hafi sinnt sömu verkefnum árum eða jafnvel áratugum saman búi yfir verðmætri þekkingu sem gæti nýst við að kynna verkefnin fyrir arftökum sínum.

„Svo velti ég fyrir mér, hver setur nýja manneskju í verkefnið, hvernig gengur það ef búið er að henda þeim sem vann verkið út.“

Hún spyr hvort slík framkvæmd leiði ekki til sóunar á tíma, orku og þekkingu, sérstaklega ef verkefnin eigi að halda áfram eftir að starfsmennirnir hafa verið látnir fara.

„Er það ekki tíma/orku og þekkingarsóun að nýta ekki þá sem sinnt hafa verkefninu árum og jafnvel áratugum saman, í að kynna verkefnin fyrir arftakanum, þ.e. ef yfirmenn ætla ekki að leggja öll verkefnin niður?“ skrifar Helga Vala.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída
Heimur

Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída

Vegna óvissu um innihald og uppruna hlutarins var ákveðið að kalla til sérfræðinga slökkviliðs
„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi
Innlent

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael
Heimur

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni
Heimur

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu
Myndband
Menning

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu

Vírusinn
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Vírusinn

Selja eitt fallegasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

Ungfrú Moskva ákærð fyrir dreifingu klámefnis
Heimur

Ungfrú Moskva ákærð fyrir dreifingu klámefnis

Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

Helga Vala gagnrýnir framkomu við starfsfólk Reykjavíkurborgar
„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Loka auglýsingu