1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

5
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

6
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

7
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

8
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

9
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

10
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Til baka

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

„Við þekkjum öll hvert annað og styðjum hvert annað“

Reykjavíkurtjörn frosin
Reykjavík um veturMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Danski tónlistarframleiðandinn og listakonan knackered segir við vefsíðuna Wonderland öflugt grasrótarstarf og samheldið tónlistarsamfélag hafa ráðið miklu um þá ákvörðun hennar að flytja til Reykjavíkur aðeins 21 árs gömul. Hún segir borgina hafa veitt sér svigrúm til að þróast sem tónlistarmaður og prófa sig áfram án þess að allt þyrfti að vera fullkomið frá fyrsta degi.

Knackered ólst upp á Norður Jótlandi í Danmörku en flutti til Íslands þegar vinkona hennar komst inn í ljósmyndaskóla í Reykjavík.

„Ég hafði í raun engan áhuga á að fara til Kaupmannahafnar eins og allir hinir,“ segir knackered.

Hún hafi því ákveðið að slá til þegar vinkona hennar hélt til Reykjavíkur. Smæð borgarinnar og öflugt grasrótarstarf hafi strax höfðað til hennar.

„Mér líkaði að þetta er mjög lítil höfuðborg með opið og samheldið tónlistarsamfélag þar sem menning grasrótartónlistar er mjög sterk,“ segir hún.

Fyrstu tónleikarnir með þrjú lög og ljóð

Knackered segir sérstaklega mikilvægt að í Reykjavík hafi hún upplifað að fólk tryði því að hún hefði eitthvað fram að færa. Hún hafi fljótt orðið hluti af tónlistarsenunni og fyrstu tónleikar hennar hér á landi hafi verið á hliðardagskrá Iceland Airwaves árið 2015.

Þá var hún enn skammt á veg komin með eigið tónlistarefni.

„Ég held að ég hafi verið með þrjú fullunnin lög á þeim tíma og fyllti restina af settinu með ljóðum,“ segir hún.

Að hennar mati sé einmitt þannig hægt að þroskast sem tónlistarmaður. Listafólk þurfi að þora að koma fram og prófa sig áfram í stað þess að bíða eftir því að allt verði fullkomið.

„Farðu bara af stað. Tónlistin þín þarf ekki að vera fullkomin frá upphafi,“ segir knackered og bætir við að slíkt krefjist þó samfélags sem sé tilbúið að styðja við listafólk. Það hafi hún fundið í Reykjavík.

Eitt af því sem hún kunni best að meta við borgina sé hversu hratt sé hægt að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Tónleikar, viðburðir og samstarfsverkefni geti orðið að veruleika með mjög skömmum fyrirvara þar sem fólk sé tilbúið að leggja fram tíma sinn og hæfileika.

Hún nefnir sem dæmi að þegar hana vantaði klæðnað fyrir viðburði tengda Echolalia í sumar hafi hún haft samband við fatahönnunarmerkið Vecct. Strax daginn eftir hafi samstarfið verið komið á.

Sköpunarkrafturinn geti þó tekið sinn toll. Knackered lýsir sumrinu í Reykjavík sem linnulausu tímabili þar sem tónlistarfólk spili ótal tónleika, stofni nýjar hljómsveitir, gefi út tónlist og komi nýjum verkefnum af stað.

Hún telur birtuna eiga stóran þátt í þessari miklu virkni. Tilfinningin sé sú að allt þurfi að gerast strax áður en veturinn skellur á. Á veturna hægist síðan á og tími gefst til að melta reynslu sumarsins og undirbúa ný verkefni.

„Við þurfum að láta allt gerast NÚNA áður en veturinn kemur,“ segir hún.

Knackered segist kunna vel við þessa árstíðabundnu hringrás. Þrátt fyrir að veturinn eigi að vera rólegri sé þó sjaldnast algjört hlé á tónlistarlífinu. Hún segist til að mynda sækja tónleikastaðinn Mengi nánast vikulega allt árið til að sjá vini sína koma fram.

Sérstakt kvöld með Björk og Arca

Knackered gaf út sína fyrstu EP plötu, „fyi“, á síðasta ári og hefur síðan vakið aukna athygli. Í sumar kom hún fram á Echolalia ásamt meðal annars Björk og Arca. Hún hefur einnig verið valin tónleikalistamaður ársins hjá The Reykjavík Grapevine.

Knackered segir það hafa verið sérstaka upplifun að koma fram fyrir stóran áheyrendahóp ásamt listafólki sem hún ber virðingu fyrir. Þrátt fyrir umfang viðburðarins hafi stemningin þó á margan hátt minnt á hefðbundið kvöld í miðborg Reykjavíkur.

„Við þekkjum öll hvert annað og styðjum hvert annað,“ segir hún.

Hún segir sérstaklega mikilvægt að Björk hafi sýnt íslensku grasrótarsenunni traust og gefið listafólki þaðan tækifæri til að koma fram fyrir fjölmennan hóp.

„Mér fannst ótrúlega sérstakt að fá tækifæri til að spila tónlistina mína fyrir svona stóran áheyrendahóp á Íslandi ásamt vinum mínum,“ segir knackered.

Það hafi að hennar mati verið mögulegt vegna trausts Bjarkar á tónlistarsenunni og þeirrar virðingar sem hún beri fyrir starfinu sem þar fer fram.

„Mér finnst það svo dýrmætt,“ segir knackered.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída
Heimur

Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída

Vegna óvissu um innihald og uppruna hlutarins var ákveðið að kalla til sérfræðinga slökkviliðs
„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi
Innlent

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael
Heimur

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni
Heimur

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu
Myndband
Menning

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu

Vírusinn
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Vírusinn

Selja eitt fallegasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

Ungfrú Moskva ákærð fyrir dreifingu klámefnis
Heimur

Ungfrú Moskva ákærð fyrir dreifingu klámefnis

Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

JYSK svarar ummælum Mörtu Maríu um Jysk-hyllur
Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur
Myndir
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

Selja eitt fallegasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Loka auglýsingu