Sjaldgæft parhús eftir arkitektinn Vífil Magnússon er komið á sölu við Krókamýri 70 í Garðabæ. Um er að ræða sex herbergja parhús sem reist var árið 1994 og ber hönnun Vífils sterk einkenni.
Ásett verð eignarinnar er 144,9 milljónir króna.
Húsið er skráð 183,6 fermetrar samkvæmt HMS og þar af er 42 fermetra innbyggður bílskúr. Fram kemur í fasteignaauglýsingu að gólfflötur sé þó meiri en skráðir fermetrar gefa til kynna vegna hallandi þaks. Bílastæði eru fyrir þrjá bíla á lóðinni.
Arkitektúr hússins er eitt helsta sérkenni þess. Þríhyrnings og tíglaform koma víða við sögu auk markvissrar notkunar loftglugga. Mikil lofthæð einkennir alrými hússins en þar nær lofthæðin allt að 4,6 metrum. Stórir gluggar og loftgluggar hleypa jafnframt mikilli birtu inn í húsið.
Við húsið er stór og afgirtur sólpallur með steyptum heitum potti. Garðurinn er gróinn og stór tré standa fyrir framan húsið.
Eignin stendur við rólega botnlangagötu og er staðsetningunni sérstaklega lýst sem fjölskylduvænni. Göngustígar liggja meðal annars að grunnskóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, leiksvæðum og sundlaug án þess að fara þurfi yfir umferðargötu.
Hofstaðaskóli og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ eru í um fimm mínútna göngufæri og stutt er í helstu þjónustu.

