
Lögreglan í Stanislaus-sýslu í Kaliforníu greip til óvenjulegra aðferða við umferðareftirlit í síðustu viku þegar lögreglumaður klæddist búningi sem líktist risastórri appelsínugulri umferðarkeilu.
Aðgerðin fór fram í borgunum Riverbank og Patterson og var markmiðið að kanna hvort ökumenn virtu rétt gangandi vegfarenda á merktum gangbrautum.
Lögreglumaðurinn í keilubúningnum gekk út á gangbraut þegar ökutæki voru í nægilegri fjarlægð til að ökumenn gætu hægt á sér og stöðvað. Þeir sem veittu honum ekki forgang voru stöðvaðir skömmu síðar af lögreglumönnum á mótorhjólum.
Eftirlitið stóð yfir í tvo daga, einn dag í hvorri borg. Alls voru 67 ökumenn kærðir fyrir brot tengd rétti gangandi vegfarenda. Þá voru tveir ökumenn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum.
Aðgerðin kemur í kjölfar nokkurra alvarlegra umferðarslysa á Modesto-svæðinu í október. Meðal annars létust tveir framhaldsskólanemar eftir að bifreið ók á þá á gangbraut 9. október. Fyrr í mánuðinum lést einnig 63 ára maður í hjólastól eftir að ekið var á hann.
Lögreglan hefur hvatt ökumenn til að sýna aukna aðgát, veita gangandi vegfarendum forgang og virða hámarkshraða.
Aðgerðin var fjármögnuð með styrk frá umferðaröryggisyfirvöldum í Kaliforníu og bandarísku umferðaröryggisstofnuninni.
