1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

5
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

6
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

7
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

8
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

9
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

10
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Til baka

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Móðir barns með fjölþættan og flókinn vanda er þakklát Klettabæ

Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir
Heiða Ósk ÞorsteinsdóttirHeiða Ósk er afar þakklát Klettabæ
Mynd: Facebook

Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir segir Klettabæ hafa reynst syni sínum og fjölskyldunni ómetanlegt úrræði eftir erfiða reynslu af annarri þjónustu fyrir börn með flókinn vanda. Hún tekur undir mikilvægi eftirlits með einkareknum úrræðum en segir mikilvægt að hlusta einnig á fjölskyldur sem hafi fundið þar öryggi og stuðning.

Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir gagnrýnir hluta umfjöllunar Kveiks um Klettabæ í færslu á Facebook. Hún segir úrræðið hafa gjörbreytt lífi sonar síns og fjölskyldunnar eftir að þau höfðu gengið í gegnum erfiða reynslu af annarri þjónustu.

„Því Klettabær er úrræðið sem bjargaði barninu mínu og fjölskyldunni minni,“ skrifar Aðalheiður, sem segir erfitt að hafa horft á þáttinn og hlustað á fyrrverandi starfsmenn lýsa því að börn á Klettabæ væru í geymslu, án krafna eða framtíðarsýnar.

Hún tekur þó fram að hún sé sammála því að eftirlit með einkareknum úrræðum þurfi að vera öflugt og að hlusta verði á börn, fjölskyldur og starfsfólk þegar eitthvað fer úrskeiðis.

„Ég veit sjálf hversu mikilvægt það er að fjalla um það sem miður fer í úrræðum fyrir börn og fatlað fólk. Ég veit líka hversu hræðilegar afleiðingarnar geta verið þegar börn fá ekki þá vernd, umönnun og stuðning sem þau þurfa.“

Aðalheiður segir reynslu sína af Klettabæ hins vegar vera allt aðra en þá mynd sem hún segir hafa verið dregna upp í þættinum.

„Barnið mitt er ekki í geymslu. Barnið mitt fær stuðning allan sólarhringinn. Tveir starfsmenn eru með honum og þegar eitthvað kemur upp er brugðist við og reynt að leysa það af skynsemi.“

Hún segir að erfiðar aðstæður geti vissulega komið upp en að það skipti mestu máli hvernig tekið sé á þeim. Í hennar tilfelli hafi Klettabær ekki brugðist sér og fjölskyldunni.

Sonur hennar fái umönnun, öryggi og stuðning við hæfi og stundi nám í skóla Klettabæjar.

Segir fjölskylduna hafa orðið fyrir ofbeldi í öðru úrræði

Í færslunni lýsir Aðalheiður einnig reynslu fjölskyldunnar af einkarekna úrræðinu Heilindum, þar sem sonur hennar dvaldi áður en hann kom í Klettabæ.

Hún segir Barnavernd Hafnarfjarðar hafa mælt með Heilindum. Á þeim tíma hafi úrræðið verið nýtt og sonur hennar fyrsta barnið þar með jafn flókinn vanda.

Aðalheiður segir fljótlega hafa komið í ljós að starfsfólkið vissi ekki hvernig mæta ætti þörfum hans. Hún heldur því fram að sonur hennar hafi orðið fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi í úrræðinu og að fjölskyldan hafi einnig orðið fyrir andlegu ofbeldi.

„Fötin hans voru rifin utan af honum, hann mældist með næringarskort, lyfin hans týndust ítrekað og það gleymdist að gefa honum lyfin. Hann var ekki keyrður í sálfræðitíma, vinnu og fleira,“ skrifar hún.

Hún lýsir jafnframt aðstæðum sem hún segir hafa verið óviðunandi og samskiptum við eiganda úrræðisins sem hún telur hafa verið alvarlega ámælisverð.

Aðalheiður segir Barnavernd Hafnarfjarðar síðar hafa rift samningi við Heilindi. Hún spyr þó hvort barnaverndin hafi hætt að kaupa þjónustu af úrræðinu í kjölfar þeirrar reynslu sem hún lýsir.

„Loksins gat fjölskyldan andað“

Aðalheiður segir fjölskylduna loks hafa komist í Klettabæ fyrir tveimur árum. Þá hafi aðstæður batnað til muna og fjölskyldan fengið þann stuðning sem hún þurfti.

„Loksins fékk barnið mitt og fjölskyldan öll þann stuðning sem við þurftum. Loksins gat mömmuhjartað mitt róast við að vita af barninu mínu í öruggu umhverfi.“

Hún segir tengsl og samskipti sonarins við fjölskylduna aldrei hafa verið betri og að honum líði vel. Hann eigi öruggt heimili bæði hjá fjölskyldunni og í Klettabæ.

Aðalheiður segir jafnframt að engri móður sé auðvelt að horfast í augu við að geta ekki haft barnið sitt heima. Sonur hennar þurfi meiri stuðning og umönnun en hún geti veitt honum sjálf, samhliða því að tryggja öryggi allrar fjölskyldunnar.

Baráttan heldur áfram eftir 18 ára afmælið

Í lok færslunnar segir Aðalheiður að síðustu vikur hafi verið þungar. Sonur hennar hafi orðið 18 ára fyrir nokkrum dögum og hún sé enn á ný að berjast fyrir því að hann fái nauðsynlegan stuðning.

Hún segist ekki geta farið nánar út í stöðuna vegna yfirstandandi lögfræðilegra mála, en hafi barist fyrir syni sínum frá því hann var lítill drengur.

Aðalheiður segir mikilvægt að hægt sé að gagnrýna einkarekin úrræði og kalla eftir öflugra eftirliti án þess að horft sé fram hjá reynslu fjölskyldna sem hafi fundið þar lausn.

„Það þarf að vera hægt að ræða gagnrýni á einkarekin úrræði og kalla eftir betra eftirliti. En það þarf líka að hlusta á fjölskyldur sem hafa loksins fundið úrræði sem virkar.“

Hún lýkur færslunni með því að ítreka að sonur hennar sé ekki í geymslu heldur á heimili þar sem hann fái stuðning, umönnun og öryggi.

„Ég og aðrir langþreyttir foreldrar eigum ekki að þurfa að berjast ítrekað fyrir tilveru og velferð barnanna okkar.“

Aðalheiður þakkar að lokum Klettabæ fyrir að vera hluta af fjölskyldu sinni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Spánn og Slóvenía ekki búin að ákveða sig
Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig
Heimur

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí
Heimur

Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí

Lögreglan dulbjó sig sem risastóra umferðarkeilu
Heimur

Lögreglan dulbjó sig sem risastóra umferðarkeilu

Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída
Heimur

Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi
Innlent

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael
Heimur

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Spánn og Slóvenía ekki búin að ákveða sig
Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi
Innlent

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

Loka auglýsingu