
Farþegar Vueling flugvélar voru fluttir í sérstakt rými á flugvellinum á Gran Canaria á mánudagskvöld eftir að sprengjuhótun barst vegna vélarinnar. Hótunin reyndist síðar vera ósönn en greint er frá þessu í spænskum fjölmiðlum.
Um var að ræða flug frá Barcelona til Gran Canaria. Eftir lendingu var vélinni beint á afskekkt svæði flugvallarins, fjarri flugstöðinni, þar sem öryggissveitir tóku við og hófu rannsókn.
Fjöldi ökutækja viðbragðsaðila umkringdi vélina og farþegum var gert að yfirgefa hana við stýrðar aðstæður. Þeir voru síðan fluttir í sérstakt rými á meðan öryggisaðgerðir stóðu yfir.
Flugið átti samkvæmt áætlun að lenda á Gran Canaria um klukkan 19:50 að staðartíma. Misvísandi upplýsingar hafa komið fram um nákvæman lendingartíma. Ekki hefur heldur verið upplýst hvaðan hótunin barst eða hversu margir voru um borð.
Flugvellinum var ekki lokað vegna málsins. Rekstraraðili flugvallarins sagði að önnur starfsemi hefði haldið áfram með eðlilegum hætti á meðan Vueling vélinni var haldið frá annarri flugumferð.
