1
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

2
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

3
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

4
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

5
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

6
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

7
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

8
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

9
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

10
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Til baka

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

Alls bárust 25 umsóknir

Þorbjörg S Gunnlaugsd ráðherra
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirEr dómsmálaráðherra
Mynd: Stjórnarráðið

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að úthluta tíu milljónum króna til ellefu verkefna á sviði jafnréttismála.

Styrkirnir voru auglýstir í september og var áhersla lögð á verkefni og viðburði í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Alls bárust 25 umsóknir. Starfshópur dómsmálaráðuneytisins fór yfir umsóknirnar og gerði tillögu til ráðherra um úthlutun styrkjanna.

Mannlíf óskaði eftir lista yfir alla umsækjendur, verkefnin sem sótt var um styrk fyrir og tillögu starfshópsins um úthlutun.

Ráðuneytið hefur nú afhent Mannlífi umbeðnar upplýsingar og hægt er að lesa hér fyrir neðan.

Listinn í heild sinni:

  1. Samræming þjónustu þolendamiðstöðvanna. Þróun og innleiðing hópastarfs fyrir þolendur ofbeldis í Bjarmahlíð – Bjarmahlíð.
    Sterkur faglegur bakgrunnur býr að baki umsókninni, verkefnið er þarft og fellur vel að áherslu á framlag til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.
  2. Samræming þjónustu þolendamiðstöðva – hópastarf – Bjarkarhlíð.
    Sterkur faglegur bakgrunnur býr að baki umsókninni, verkefnið er þarft og fellur vel að áherslu á framlag til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.
  3. Verkefnið ASSYST - stuðningur fyrir fagfólk sem vinnur með þolendum ofbeldis – Sigurhæðir. 
    Sterkur faglegur bakgrunnur, verkefnið felur í sér miðlun mikilvægrar þekkingar til annarra þolendamiðstöðva og fellur vel að áherslu á framlag til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.
  4. Framtíð íslenskrar karlmennsku: ungt fólk og hugmyndir um karlmennsku og jafnrétti – Félag kynjafræðikennara. 
    Sterkur faglegur bakgrunnur býr að baki umsókninni, verkefnið felur í sér stuðning við framlag karla til kynjajafnréttis, felur í sér nýnæmi og fellur vel að áherslu á framlag til baráttunnar gegn kynbundu ofbeldi.
  5. Samræming þjónustu þolendamiðstöðvanna – Suðurhlíð.
    Sterkur faglegur bakgrunnur býr að baki umsókninni, verkefnið er þarft og fellur vel að áherslu á framlag til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.
  6. Mansal í kynferðislegum tilgangi (kynlífsmansal/vændismansal) – Svala Ísfeld í samstarfi við Háskólann í Reykjavík.
    Sterkur faglegur bakgrunnur býr að baki umsókninni. Umsóknin er sérstaklega vönduð, skýr og felur í sér dýrmætt framlag til baráttunnar gegn mansali í kynferðislegum tilgangi. 
  7. Feður og synir: Jafnrétti pilta og stúlkna þegar kemur að umræðu um kynheilbrigðismál innan heimilisins – Samtök um kynheilbrigði.
    Traust faglegt bakland stendur að umsókninni. Umsóknin er vönduð og fellur vel að áherslu á framlag til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi. 
  8. Valdefling fatlaðra kvenna og kvára á vinnumarkaði – Átak og Tabú.
    Traust bakland stendur að baki umsókninni. Verkefnið er spennandi og þarft framlag til valdeflingar viðkvæms hóps kvenna og kvára á Íslandi.
  9. Frá konu til konu: Jafningjastuðningur með áherslu á kynbundið ofbeldi og öruggar tilvísunarleiðir – Samtök kvenna af erlendum uppruna.
    Verkefnið felur í sér stuðning við dýrmæta jafningjafræðslu í þágu viðkvæms hóps kvenna á Íslandi. Inntak þess fellur vel að  áherslu á framlag til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.
  10. Rakarastofa (e.Barbershop) þátttaka karla og drengja – UN Women Ísland.
    Sterkt, faglegt bakland stendur að umsókninni. Stuðlað er að fjölgun kvenna í hefðbundnum karllægum starfsgreinum með stuðningi við jafnréttismenningu í iðngreinum.
  11. Réttindi mín á Íslandi – fræðsla, öryggi og valdefling kvenna af írönskum uppruna – Persaland félagið. 
    Vönduð umsókn um framlag til stuðnings við konur af erlendum uppruna. Verkefnið fellur vel að áherslu á kynjajafnrétti og framlag til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.

Eftirtalin verkefni hlutu ekki styrk að þessu sinni:

  1. Women in Bloom: Nature gatherings for women in rural communities – Syðra Holt.
    Verkefninu er ekki lýst með nægilega skýrum hætti og engar upplýsingar fylgja umsókninni um faglegan bakgrunn umsækjenda.
  2. Reykjavík Bear 2027 – Bangsafélagið.             
    Verkefnið felur ekki í sér markmið um kynjajafnrétti sérstaklega.
  3. Gervigreind, hæfnisstjórnun og jafnrétti á íslenskum vinnumarkaði – Hrefna Guðmundsdóttir doktorsnemi.
    Verkefnið er ágætlega rökstutt og áhugavert en vegur ekki nægilega þungt með hliðsjón af áherslu við styrkveitingu að þessu sinni til þess að mælt sé með styrkveitingu.
  4. Jafnt aðgengi nemenda í framhaldsskólum landsins að kynfræðslu og þar með fræðslu um varnir gegn kynbundnu ofbeldi – Samtök um kynheilbrigði.
    Verkefninu er ágætlega lýst. Forsendur fyrir því að markmið þess náist eru hins vegar óljósar.
  5. Konur í keilu – Keilusamband Íslands.
    Verkefnið er ágætlega rökstutt en vegur ekki nægilega þungt með hliðsjón af áherslu við styrkveitingu að þessu sinni til þess að mælt sé með styrkveitingu.
  6. GlobalWIIN 2027 – Elinóra Inga Sigurðardóttir í samstarfi við Kvenn, félag kvenna í nýsköpun.
    Verkefnið er ágætlega rökstutt en vegur ekki nægilega þungt með hliðsjón af áherslu við styrkveitingu að þessu sinni til þess að mælt sé með styrkveitingu.
  7. Uppbyggileg réttvísi – Kristín Skjaldardóttir.
    Verkefnið samræmist ekki 2. mgr. 3. gr. úthlutunarreglna um að einstaklingar fái aðeins úthlutað styrkjum vegna doktorsverkefna.
  8. Ferðasjóður Aspar – jafnt aðgengi fatlaðra iðkenda að keppnisferðum – Íþróttafélagið Ösp.
    Verkefnið felur ekki í sér markmið um kynjajafnrétti sérstaklega.
  9. Jöfnun á kostnaði við íþróttaþjálfun fatlaðra – rekstur og efling íþróttastarfs Aspar 2026–2029 –  – Íþróttafélagið Ösp.
    Verkefnið felur ekki í sér markmið um kynjajafnrétti sérstaklega.
  10. Aukinn brautartími fyrir keiluiðkendur Aspar–Íþróttafélagið Ösp.
    Verkefnið felur ekki í sér markmið um kynjajafnrétti sérstaklega.
  11. Gagnræða fyrir ungmenni – Samtökin 78.
    Verkefnið fellur undir fræðslustyrk samnings ráðuneytisins við samtökin. 
  12. Kvennaráðgjöfin – Kvennaráðgjöfin.
    Verkefnið felur að hluta til í sér fjármögnun rekstrar og samræmist því ekki 4. mgr 3. gr. úthlutunarreglna.
  13. BrokenMEn – Ísland Panorama.
    Verkefnið er metnaðarfullt og í  samræmi við áherslur um framlag til baráttunnar um kynbundið ofbeldi. Hins vegar er lýsingu á framkvæmdaþáttum og faglegum bakgrunni stjórnanda ábótavant.
  14. Transkirkjan – Drag-Súgur. 
    Verkefnið felur ekki í sér markmið um kynjajafnrétti sérstaklega.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Formaður miðkjörstjórnar Ísraels krefst rannsóknar á grun um erlend afskipti af kosningum
Heimur

Formaður miðkjörstjórnar Ísraels krefst rannsóknar á grun um erlend afskipti af kosningum

„Þetta eru fullyrðingar sem hafa á þessu stigi engan grundvöll“
Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn
Pólitík

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá
Innlent

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá

Leikkonan Barbara Barrie þáði dánaraðstoð
Heimur

Leikkonan Barbara Barrie þáði dánaraðstoð

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík
Myndband
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur
Myndir
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni
Myndir
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð
Innlent

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt
Heimur

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans
Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans

Pólitík

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn
Pólitík

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn

„Hér sjáum við frábæran árangur af öflugri uppbyggingu stjórnvalda“
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi
Pólitík

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

Loka auglýsingu