1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

4
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

5
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

6
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

7
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

8
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

9
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

10
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

Til baka

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

„Kannski bjargar einhver andlitinu en börnin farast á meðan.“

Jón Gnarr
Jón Gnarr, þingmaður utan flokkaJón Gnarr segir málaflokkinn ekki þola neina bið
Mynd: Víkingur

Jón Gnarr gagnrýnir harðlega skort á viðeigandi búsetu- og meðferðarúrræðum fyrir börn með fjölþættan vanda. Hann tjáir sig um málið í kjölfar þáttar Kveiks á RÚV um búsetuúrræði fyrir þennan hóp og segir þolinmæði sína gagnvart aðgerðaleysi stjórnvalda vera á þrotum.

Jón Gnarr gagnrýnir í færslu á Facebook hvernig börnum sem þurfa á sérhæfðri meðferð og þjónustu að halda sé neitað um þá þjónustu sem þau eiga rétt á.

Jón segir sig ítrekað hafa vakið athygli á stöðunni og fundað með stjórnendum, ráðherrum, starfsfólki, lögreglu, foreldrum og aðstandendum. Hann hafi jafnframt átt ótal fundi með umboðsmanni barna, sem hann segir taka undir sjónarmið sín.

Þrátt fyrir tilraunir til samstarfs, tillögur að lausnum og þolinmæði sé lítið sem ekkert að þokast áfram.

„Ég hef verið ákveðinn en lagt mig fram um að vera lipur og samvinnufús og sýnt æðruleysi og þolinmæði. En hún er alveg að þrotum komin. Ég skil ekki þessa fyrirstöðu og aðgerðaleysi,“ skrifar Jón.

Hann telur að virk úrræði myndu ekki aðeins skila betri árangri heldur einnig vera ódýrari en núverandi fyrirkomulag. Hann gagnrýnir að umræðan snúist um að uppfæra ferla, gera úttektir og meta hvað hafi farið úrskeiðis í stað þess að koma nauðsynlegri þjónustu á fót.

Segir drengi hafa setið eftir

Jón segir skort á langtímaúrræðum fyrir drengi vera eitt brýnasta vandamálið. Að hans mati hefur verið mismunað eftir kyni, þar sem langtímaúrræði hafi verið í boði fyrir stúlkur en sambærileg úrræði skorti fyrir drengi.

Hann bendir á húsnæði í Háholti í Skagafirði sem hann segir sérstaklega hannað fyrir slíka starfsemi. Hann hafi reynt að vekja athygli á möguleikanum á að nýta það en ekki fengið áhuga á hugmyndinni.

„Ég fékk þau svör að það væri „of langt í burtu“. Síðan hvenær færðist Skagafjörður svona langt í burtu?“ spyr Jón og bendir á að langtímavistun fyrir stúlkur sé meðal annars í Bjargey í Eyjafirði.

Jón segir að áður hafi verið komið upp fjölbreyttu kerfi úrræða en mörgum þeirra hafi verið lokað í kjölfar efnahagshrunsins vegna fjárskorts. Ekki hafi tekist að endurbyggja kerfið síðan.

Rifjar upp andlát 17 ára drengs á Stuðlum

Jón rifjar einnig upp að tvö ár séu liðin frá því að 17 ára drengur lést í skelfilegum eldsvoða á Stuðlum, meðferðarheimili á vegum ríkisins. Hann segir drenginn hafa átt alla ævina fram undan og bendir á að hann hafi verið í umsjá yfirvalda þegar hann lést.

Að sögn Jóns sýni skýrslur um málið að alvarlegir brestir hafi orðið. Hann segir málið nú vera til rannsóknar hjá héraðssaksóknara sem manndráp af gáleysi og að 12 einstaklingar hafi réttarstöðu sakbornings.

Jón leggur áherslu á að ekki sé um svo stóran hóp barna að ræða að ómögulegt eigi að vera að tryggja þeim viðeigandi þjónustu. Hann segir aðstæður barnanna og fjölskyldna þeirra geta verið afar erfiðar og að afleiðingarnar geti orðið hrikalegar fyrir heilu fjölskyldurnar.

Hann gagnrýnir einnig orðalagið sem notað sé um börnin, svo sem „drengi“ og „börn með fjölþættan vanda eða stuðningsþarfir“, og telur það geta gert vandann óljósan. Að hans mati sé hér ekki um að ræða einhvers konar „mjúkt mál“ heldur brýnt verkefni sem snerti öryggi og framtíð barnanna.

„Börnin farast á meðan“

Jón segir aðgerðir ekki geta beðið í fimm eða tíu ár. Hann gagnrýnir að foreldrar þurfi í sumum tilvikum að leita með börn sín til Afríku til að finna viðeigandi hjálp.

„Meðferð getur ekki kallast meðferð ef hún felur enga meðferð í sér. Og það bætir ekkert að kalla úrræðaleysi úrræði,“ skrifar hann.

Að lokum varar Jón við því að yfirvöld láti tímann líða án þess að leysa vandann.

„Kannski bjargar einhver andlitinu en börnin farast á meðan. Og svo bíðum við þetta af okkur fram að næsta harmleik.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt
Heimur

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt

Dró sig í hlé vegna netníðs
Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans
Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver
Heimur

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael
Heimur

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna
Heimur

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig
Heimur

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí
Heimur

Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí

Pólitík

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi
Pólitík

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

„Kannski bjargar einhver andlitinu en börnin farast á meðan.“
Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Loka auglýsingu