1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

4
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

5
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

6
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

7
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

8
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

9
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

10
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

Til baka

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Við rannsókn málsins fundust bensín og leifar af bensíni í skóm

Héraðsdómur
Héraðsdómur Reykjavíkur
Mynd: Víkingur

Þrír menn hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild að því að kveikja í Tesla Model 3 bifreið í Reykjavík í ágúst árið 2023. Annar eigenda bifreiðarinnar var á þeim tíma rannsóknarlögreglumaður í fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Bifreiðin var metin á rúmar fimm milljónir króna og eyðilagðist í eldinum.

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu 27. október. Mennirnir, Gabriel A. Guerrero Nunez, Luhay Leonardo Channan Nasser og Adham Abu Zer, voru ákærðir fyrir stórfelld eignaspjöll.

Rannsóknarlögreglumaðurinn taldi strax að íkveikjan gæti tengst starfi hennar. Hún hafði áður fengið hótanir vegna starfa sinna og nafngreindi einstaklinga sem hún taldi mögulega tengjast verknaðinum. Málið var því framan af meðal annars rannsakað sem mögulegt brot gegn valdstjórninni.

Ekki var hins vegar talið sannað að mennirnir þrír hefðu vitað að lögreglumaður ætti bifreiðina og voru þeir því ekki ákærðir fyrir brot gegn valdstjórninni.

Allir neituu þeir sök.

Átti að fá 100 þúsund fyrir verkið

Samkvæmt ákæru átti Luhay að fá 100 þúsund krónur fyrir verkið. Hann reyndi fyrst að kveikja í Teslunni um nóttina 17. ágúst en án árangurs. Síðar sama morgun sneri hann aftur ásamt Gabriel. Dómurinn taldi sannað að Gabriel hefði þá lagt eld að bifreiðinni en Adham hefði skipulagt og undirbúið skemmdarverkið.

Við rannsókn málsins fundust bensín og leifar af bensíni í skóm Gabriel og Luhay. Símagögn og önnur rafræn gögn voru einnig meðal sönnunargagna, þar á meðal samskipti um hvíta Teslu, mynd af bensínbrúsa og myndskeið þar sem bifreiðin sást.

Allir fengu skilorðsbundna dóma

Dómurinn taldi hafið yfir skynsamlegan vafa að mennirnir hefðu haft verkskipta aðild að brotinu. Gabriel og Luhay voru dæmdir í átta mánaða fangelsi hvor og Adham í sex mánuði. Refsingarnar eru skilorðsbundnar til þriggja ára.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt
Heimur

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt

Dró sig í hlé vegna netníðs
Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans
Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi
Pólitík

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver
Heimur

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael
Heimur

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna
Heimur

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig
Heimur

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí
Heimur

Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí

Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Við rannsókn málsins fundust bensín og leifar af bensíni í skóm
„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

Loka auglýsingu