1
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

2
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

3
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

4
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

5
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

6
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

7
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

8
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

9
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

10
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Til baka

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá

Var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús

Sjóvá
Sjóvá fánar
Mynd: Sjóvá

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt skaðabótaskyldu Sjóvár vegna vinnuslyss sem starfsmaður útgerðarfélagsins Vísis varð fyrir í mars árið 2023. Maðurinn slasaðist þegar hann féll við vinnu við sprautusöltunarvél í vinnslusal fyrirtækisins en dómurinn var birtur fyrr í október.

Starfsmaðurinn hafði starfað við saltfisksvinnslu hjá Vísi um árabil. Hann var að stíga niður af palli við vélina þegar hann féll og slasaðist. Í kjölfarið var hann fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús þar sem hann greindist með hásinarslit. Síðar voru varanlegar afleiðingar slyssins metnar til fimm stiga miska.

Maðurinn taldi slysið mega rekja til ófullnægjandi öryggisaðstæðna. Hann hélt því meðal annars fram að þrepið hefði verið sleipt vegna slors og bleytu og að handrið hefði vantað. Sjóvá hafnaði hins vegar bótaskyldu og taldi ósannað að slysið mætti rekja til saknæmrar háttsemi vinnuveitandans.

Dómurinn taldi að tveggja þrepa trappan sem maðurinn notaði hefði ekki verið eins og best yrði á kosið. Efra þrepið var talið afar þröngt og neðra þrepið styttra, þannig að mögulegt var að stíga fram hjá því. Handrið hafði jafnframt verið sett upp eftir slysið.

Niðurstaða dómsins var að aðstæður við tröppuna hefðu falið í sér annmarka sem jafna mætti til gáleysis af hálfu vinnuveitandans. Sjóvá var því talið bótaskylt úr ábyrgðartryggingu Vísis vegna líkamstjóns mannsins.

Sjóvá var jafnframt gert að greiða rúmar 2,3 milljónir króna í málskostnað, sem rennur til ríkissjóðs.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Charles Barkley beygði af þegar Ernie Johnson tilkynnti starfslok sín
Myndband
Heimur

Charles Barkley beygði af þegar Ernie Johnson tilkynnti starfslok sín

„Það hefur verið heiður og forréttindi að vinna með þér allan þennan tíma“
Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina
Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina

Formaður miðkjörstjórnar Ísraels krefst rannsóknar á kosningunum
Heimur

Formaður miðkjörstjórnar Ísraels krefst rannsóknar á kosningunum

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn
Pólitík

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn

Leikkonan Barbara Barrie þáði dánaraðstoð
Heimur

Leikkonan Barbara Barrie þáði dánaraðstoð

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík
Myndband
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur
Myndir
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni
Myndir
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð
Innlent

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt
Heimur

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt

Innlent

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá
Innlent

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá

Var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús
Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík
Myndband
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð
Innlent

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Loka auglýsingu