
Filippseyski íslenski tónlistarmaðurinn Keath Ósk ræðir uppvöxt sinn, tengslin við Ísland og óvæntan alþjóðlegan árangur tónlistarverkefnisins Yaelokre í viðtali við breska tónlistarmiðilinn NME. Ósk hefur á skömmum tíma byggt upp stóran aðdáendahóp og vinsælasta lag verkefnisins hefur verið spilað hundruð milljóna sinnum á Spotify.
Ósk hóf að gefa út tónlist undir nafninu Yaelokre árið 2024. Verkefnið vakti fljótt mikla athygli á TikTok og hefur síðan þróast yfir í umfangsmikinn ævintýraheim þar sem tónlist, myndlist og frásagnir renna saman.
Í viðtalinu við NME kemur fram að Ósk fæddist og ólst upp í Cavite-héraði á Filippseyjum hjá einstæðri móður sinni. Íslenskur kjörfaðir háns kom inn í líf háns þegar hán var tíu ára og eftir það skipti þriggja manna fjölskyldan tíma sínum á milli Asíu og Norðurlanda.
Jól og frí á Íslandi
Fjölskyldan dvaldi meðal annars flest jól og önnur frí á Íslandi. Ósk segir áhrif íslenska föður síns hafa verið mikil, ekki síst þegar kom að bókmenntum, kvikmyndum og tölvuleikjum. Sá menningarheimur hafi síðar haft áhrif á Meadowlark, fantasíuheiminn sem liggur að baki Yaelokre.
Ósk segir reynsluna jafnframt hafa mótað sýn sína á fjölskyldubönd. Tengslin við íslenska kjörföðurinn hafi meðal annars kennt háni að meta sérstaklega fjölskyldubönd sem verða til fyrir val og ást fremur en eingöngu blóðtengsl.
Í dag býr Ósk í London og er á samningi hjá stórútgáfunni Atlantic Records. Þrátt fyrir alþjóðlegan árangur eru tengslin við Ísland áfram hluti af sögu háns og þeim áhrifum sem hafa mótað sköpunarheim háns.
Frá Yaelokre yfir í Keath Ósk
Yaelokre byggir á Meadowlark-heiminum sem Ósk þróaði í teikningum og sögum á barns- og unglingsárum sínum. Þar koma meðal annars fyrir fjögur grímuklædd börn sem Ósk ljær mismunandi raddir.
Vinsældirnar hafa orðið gríðarlegar. Lagið „Harpy Hare“ hefur samkvæmt NME verið spilað 242 milljón sinnum á Spotify og aðdáendur mæta gjarnan á tónleika klæddir búningum úr Meadowlark-heiminum.
Nú hefur Ósk hins vegar gefið út fyrstu plötuna undir eigin nafni, „Foreword“. Þar stígur hán að hluta út úr þeim ramma sem Yaelokre hefur skapað og sýnir aðrar hliðar á sér.
Ósk segir Yaelokre áfram vera aðalverkefni sitt en að Keath Ósk gefi háni meira persónulegt svigrúm. Þar geti hán samið tónlist sem þurfi ekki að lúta reglum Meadowlark-heimsins.
„Keath Ósk var búið til svo ég gæti átt lítið horn til að vera í,“ segir Ósk í viðtalinu við NME.
Ósk hyggst halda áfram að vinna að báðum verkefnum og færa sig á milli þeirra. Ísland er þannig einn þeirra staða og menningarheima sem hafa mótað hán sem listamann. Á aðeins tveimur árum hefur Ósk farið úr því að birta tónlist sér til gamans yfir í að eignast milljónir hlustenda um allan heim.
