
Alls verða 23 störf lögð niður hjá Hafnarfjarðarbæ sem samsvarar 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum verður boðið annað starf hjá bænum og verður nettófækkun stöðugilda því 18,6.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu bæjarins.
Aðgerðirnar ná til allra sex sviða bæjarins og er áætlað að þær skili 330 milljóna króna varanlegum árlegum sparnaði frá og með árinu 2028.
Samhliða fækkun starfa verða innleiddar takmarkanir á ráðningum og sérstök miðlæg ráðningarnefnd sett á laggirnar. Þá verða launakjör yfirstjórnar Hafnarfjarðarbæjar fryst til tveggja ára.
Aðgerðirnar eru sagðar liður í að bregðast við þröngri fjárhagsstöðu bæjarins og treysta rekstur hans til framtíðar. Áhersla verði lögð á að lækka stjórnsýslukostnað og einfalda skipulag, en jafnframt standa vörð um grunnþjónustu við bæjarbúa.
