
Ernie Johnson, einn þáttastjórnenda körfuboltaþáttarins vinsæla Inside the NBA, tilkynnti í gær að hann myndi hætta í þættinum eftir yfirstandandi tímabil. Þá verða liðin 37 ár frá því að hann hóf störf við þáttinn.
Körfuboltagoðsögnin Charles Barkley hefur verið einn af lykilmönnum þessa vinsæla körfuboltaþáttar í meira en tvo áratugi. Í gær heiðraði hann Johnson, sem er sjötugur, og átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann lýsti því hvað samstarfsmaður hans hefði þýtt fyrir sig og þáttinn í heild.
„Þetta var erfitt,“ sagði Barkley. „Við vissum að þessi dagur myndi koma. En þetta er samt erfitt. Ég hef verið hér í 26 eða 27 ár og það hefur verið heiður og forréttindi að vinna með þér allan þennan tíma, Kenny [Smith] og Shaq [Shaquille O’Neal], og öllu því frábæra fólki sem vinnur á bak við tjöldin.
„Það er engu líkt að geta dripplað með fáránlegum körfubolta, orðið ríkur og frægur og fá svo borgað fyrir að koma hingað og horfa á bestu leikmenn heims. Við fáum borgað fyrir það. Við myndum horfa á þá hvort sem er. Svo er það allt fólkið hjá Turner, WBD og nú býst ég við Skydance. Þetta hefur verið ótrúlegt ferðalag. Þú hefur verið leiðtogi okkar, ótvíræður leiðtogi.“
Barkley sagði að ein algengasta spurningin sem hann fengi snerist um Johnson.
„Ég ætla ekki að ljúga. Oftast er ég spurður: „Hvar er Shaq?“ eða „Hvar er Kenny Smith?“ Ég er alltaf með þá í rassvasanum á mér,“ sagði hann í léttum tón.
„En spurningin sem ég fæ líklega oftast er: „Er Ernie Johnson jafn góður maður og hann virðist vera?“ Og ég svara: „Gaur, hann er enn betri en það.“
Ég vil því bara segja takk. Takk fyrir að vera leiðtogi okkar öll þessi ár.“
Hjartavandamál höfðu áhrif á ákvörðunina
Johnson tilkynnti ákvörðun sína í myndbandi á samfélagsmiðlum. Hann sagði að einn þeirra þátta sem hefðu haft áhrif á ákvörðunina væri að hann hefði glímt við hjartavandamál undanfarin ár. Fyrir rúmu ári gekkst hann undir kransæðahjáveituaðgerð.
Johnson sagði að honum hefði gengið vel að halda aftur af tilfinningunum stærstan hluta gærdagsins, þar til Barkley flutti honum innilegar þakkir.
„Chuckster, þetta skiptir mig öllu máli,“ sagði Johnson. „Ég hafði náð að halda þessu nokkuð vel saman í dag, en svo horfði ég á þig, maður.“
Johnson mun starfa áfram við þáttinn út yfirstandandi tímabil. Hann mun einnig áfram koma að útsendingum TNT og CBS frá March Madness, hinni árlegu úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans, auk annarra verkefna.
Barkley hafði áður boðað eigin starfslok
Barkley hafði áður sagt að yfirstandandi tímabil yrði hans síðasta í Inside the NBA. Brottför Johnsons gæti því markað endalok tímabils hjá þættinum.
„Ég og Ernie erum pakki,“ sagði Barkley í samtali við Bill Simmons. „Þannig að eins og staðan er núna, nema Ernie skipti um skoðun, verður næsta ár mitt síðasta. Það er hundrað prósent öruggt.“
