Einstakt og friðlýst einbýlishús við Litlubæjarvör 4 á Álftanesi er komið á sölu. Húsið stendur á sjávarlóð á rólegum stað innst í botnlanga og er sett á 218 milljónir króna.
Um er að ræða einbýlishús á einni hæð sem reist var árið 1985. Eignin stendur á 900 fermetra eignarlóð á vestanverðu Álftanesi og þaðan er víðáttumikið útsýni til sjávar og yfir Reykjanesfjallgarðinn.
Það sem gerir húsið sérstaklega athyglisvert er staða þess í íslenskri byggingarsögu. Litlabæjarvör 4 var friðlýst af mennta og menningarmálaráðherra árið 2021 og er yngsta friðlýsta hús landsins.
Friðlýst vegna byggingarlistar
Friðlýsingin tekur til ytra borðs hússins auk frágangs gólfs, lofts og veggja í stofurými og miðjugangi innandyra. Með friðlýsingunni hefur því verið lögð áhersla á að varðveita bæði ytra útlit hússins og mikilvæga þætti upprunalegrar innanhússhönnunar.
Minjastofnun Íslands heldur utan um friðlýst hús og breytingar og viðhald á friðlýstum hlutum þeirra lúta sérstökum reglum. Friðlýstar byggingar eru jafnframt í forgangi þegar kemur að styrkveitingum úr húsafriðunarsjóði vegna viðhalds og endurbóta.
Vakið athygli langt út fyrir landsteinana
Litlabæjarvör 4 hefur í gegnum tíðina vakið töluverða athygli meðal þeirra sem láta sig arkitektúr varða. Um húsið hefur verið fjallað í fjölmörgum fagtímaritum, bæði hér á landi og erlendis, og hefur það verið tekið sem dæmi um athyglisverða íslenska byggingarlist níunda áratugar síðustu aldar.
Staðsetning eignarinnar er ekki síður sérstök. Húsið stendur á stórri sjávarlóð þar sem nálægðin við hafið er mikil og útsýnið til Reykjanesfjallgarðsins áberandi.
Kaupverðið endurspeglar sérstöðu eignarinnar, en óskað er eftir 218 milljónum króna fyrir Litlubæjarvör 4. Kaupandinn fær þar með ekki aðeins einbýlishús á eftirsóttum stað við sjóinn heldur jafnframt hús sem hefur þegar öðlast sérstakan sess í íslenskri byggingarsögu.

