
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna voru líkamsárás, innbrot, hótanir unglinga og ógnandi hegðun manns sem var handtekinn.
Lögreglu barst tilkynning um óvelkominn einstakling í húsi í póstnúmeri 105. Samkvæmt dagbók lögreglu sýndi viðkomandi ógnandi hegðun. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem rætt var frekar við hann.
Í póstnúmeri 108 var lögregla kölluð að verslun vegna tilkynningar um afbrigðilega hegðun einstaklinga í bifreið. Málið var afgreitt á vettvangi samkvæmt verklagi lögreglu. Þá var tilkynnt um innbrot í póstnúmeri 101. Ekki koma fram frekari upplýsingar um innbrotið í dagbók lögreglu.
Unglingar sagðir hafa haft í hótunum
Lögregla fékk einnig tilkynningu um hópamyndun unglinga við félagsmiðstöð við grunnskóla í Kópavogi. Samkvæmt dagbókinni höfðu unglingarnir í hótunum. Ekki kemur fram hvort gripið hafi verið til frekari aðgerða vegna málsins.
Í Kópavogi var lögreglu jafnframt tilkynnt um geltandi hunda.
Tilkynning barst einnig vegna aðfinnsluverðs háttarlags einstaklinga í Garðabæ.
Handtekinn eftir líkamsárás
Alvarlegasta málið sem kemur fram í dagbókinni var tilkynning um líkamsárás í íbúð í Breiðholti
Einn einstaklingur var handtekinn vegna málsins og vistaður í fangageymslu lögreglu.
Auk þessara mála sinntu lögreglumenn ýmsum umferðarmálum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt.
