
Kevin Bleyer, handritshöfundur þáttarins „The Daily Show“, lést í bílslysi á sunnudag. Eiginkona hans greindi frá andlátinu í yfirlýsingu á Instagram.
Bleyer var 54 ára.
„Ég er niðurbrotin, harmi slegin og gjörsamlega í molum. Það hefur myndast gat í hjarta mínu sem verður aldrei fyllt,“ skrifaði eiginkona hans, Nella Vera, við mynd af honum.
Fjölskylda Bleyers greindi frá því að slysið hefði orðið á sveitavegi í Millrift í Pennsylvaníu, að því er Variety greinir frá. Bleyer átti heimili á svæðinu.
Bleyer starfaði við „The Daily Show“ með Jon Stewart í níu ár og var þar áður handritshöfundur þáttanna „Politically Incorrect“ með Bill Maher og Dennis Miller í átta ár.
Hann hlaut fjórum sinnum Primetime Emmy-verðlaunin, auk verðlauna frá samtökum bandarískra handritshöfunda (Writers Guild) og Peabody-verðlaunanna fyrir störf sín.
Bleyer skrifaði meðal annars ræður fyrir Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Bill de Blasio, fyrrverandi borgarstjóra New York. Hann skrifaði einnig bækur og leikrit.
Bleyer útskrifaðist frá Stanford-háskóla og starfaði víða um heim, meðal annars í Kenýa, Jórdaníu og Moldóvu. Hann bjó um tíma í Kirgisistan þar sem hann var aðalframleiðandi „Studio 7“, sem var fyrsti pólitíski ádeilu-fréttaskemmtiþátturinn í Mið-Asíu, samkvæmt upplýsingum á opinberri vefsíðu hans. Þar kemur einnig fram að hann hafi starfað sem handritshöfundur og framleiðandi hjá fréttastöðinni NBC News, meðal annars við þáttinn „TODAY“, og hjá CNN.
Vera segir að þau hafi kynnst árið 2010 þegar þau sáu uppsetningu á leikritinu „Bloody Bloody Andrew Jackson“ í Public Theater-leikhúsinu. Þau urðu fljótt góðir vinir og tengdust meðal annars vegna sameiginlegs áhuga á pólitískri ádeilu.
Þau hófu samband árið 2015 og gengu í hjónaband í júní 2025.
„Síðustu ellefu ár hafa haft sína hæðir og lægðir, eins og lífið er, en umfram allt hafa þau verið full af ómældri ást, hlátri, hundum og ferðalögum. Ég dáðist að greind hans, heillaðist af kímnigáfu hans, hreifst af óttaleysi hans og ævintýraþrá, elskaði hlýtt hjarta hans og var hugfangin af fallegu bláu augunum hans,“ skrifaði Vera.
Hún hvatti fólk til að heiðra minningu eiginmanns síns með því að styrkja New York-deild Alzheimer-samtakanna, en þar hafði hann starfað sem sjálfboðaliði.
Vera minntist einnig á fjölmörg opinber afrek hans á löngum og farsælum ferli, en sagði að fyrir henni hefði hann fyrst og fremst verið sálufélagi hennar, förunautur í ævintýrum og maðurinn sem gerði lífið svo miklu skemmtilegra.
