1
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

2
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

3
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

4
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

5
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

6
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

7
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

8
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

9
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

10
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Til baka

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

Húsið var reist árið 1913

eyrargata
Eyrargata 31

Sögufrægt einbýlishús við Eyrargötu 31 á Eyrarbakka hefur verið sett á sölu en óskað er eftir tilboði í eignina. Húsið, sem ber nafnið Hvoll, var reist árið 1913 og hefur meðal annars gegnt hlutverki sýslumannsbústaðar og prestsbústaðar.

Hvoll stendur á stórri sjávarlóð sem nær að sjóvarnargarðinum. Um er að ræða 2.290 fermetra lóð og frá efri hæð hússins er útsýni yfir hafið til suðurs og til fjalla í norðri.

Húsið er á þremur hæðum, kjallara, aðalhæð og risi, og er eitt af fyrstu steinsteyptu húsunum á svæðinu. Að utan er það klætt með standandi timburklæðningu.

Við endurbætur á eigninni hefur verið leitast við að varðveita upprunalegt yfirbragð hennar samhliða nútímaþægindum. Upprunaleg gólf eru að stórum hluta varðveitt á fyrstu og annarri hæð og áberandi burðarbitar setja svip sinn á húsið. Náttúruflísar eru í forstofu og sólstofu og gólfhiti í forstofu og baðherbergi á neðri hæð.

Miklar breytingar voru gerðar á Hvoli árið 1986. Þá var meðal annars byggður kvistur til austurs, sólstofu bætt við húsið og um 30 fermetra svefnherbergi útbúið á efri hæð. Úr herberginu er gengið út á suðursvalir með sjávarútsýni.

Við húsið er jafnframt um 75 fermetra pallur með skjólveggjum og er hægt að ganga þangað beint úr sólstofunni.

Tveir hólar eru á lóðinni og á annar þeirra sér sérstaka sögu. Hann var um árabil nýttur sem kartöflugeymsla þegar efri hluti garðsins var notaður undir kartöflur og aðra ræktun.

Hvoll hefur því staðið á Eyrarbakka í rúma öld og ber enn fjölmörg einkenni þeirrar sögu sem fylgt hefur húsinu frá árinu 1913.

Eyrargata2
Eyrargata3
Eyrargata4
Eyrargata5
Eyrargata6
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

„Þingið á að vera vettvangur lýðræðislegrar umræðu en ekki vígvöllur“
Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum
Pólitík

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum

Ian McKellen minnist Patrick Stewart
Heimur

Ian McKellen minnist Patrick Stewart

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn
Heimur

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio
Myndir
Heimur

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar
Innlent

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi
Heimur

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi

Guðrún Birna Gísladóttir er látin
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka
Innlent

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

Ökumaður kærður og bíllinn dreginn af vettvangi
Innlent

Ökumaður kærður og bíllinn dreginn af vettvangi

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu
Myndir
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

Húsið var reist árið 1913
Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina
Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur
Myndir
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni
Myndir
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Loka auglýsingu