1
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

2
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

3
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

4
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

5
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

6
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

7
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

8
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

9
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

10
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Til baka

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum

„Það var hins vegar líka mikilvægt að nota þetta tækifæri til að ræða alþjóðamál“

Þorgerður Katrín á viðburði Riddara Kærleikans
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Mynd: Víkingur

Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, vill efla samstarf Kína og Íslands á sviði viðskipta, jarðhita, grænna umskipta og málefna norðurslóða. Þetta kom fram á fundi hans með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Peking í gær en Anadolu greinir frá.

Fundurinn fór fram í opinberri heimsókn Þorgerðar Katrínar til Kína, sem stendur yfir dagana 26. til 31. október. Á þessu ári eru 55 ár liðin frá því að Ísland og Kína tóku upp stjórnmálasamband.

Wang sagði Kína reiðubúið að deila þróunartækifærum með Íslandi og kanna frekari möguleika á samstarfi ríkjanna. Nefndi hann sérstaklega viðskipti og efnahagsmál, jarðhita, græn umskipti, málefni hafsins og norðurslóða. Þá vildi hann einnig efla samskipti ríkjanna á sviði ferðaþjónustu, sameiginlegra vísindarannsókna og menntunar.

Ráðherrarnir ræddu einnig alþjóðamál. Wang lagði fyrir sitt leyti áherslu á fjölþjóðasamstarf og hlutverk Sameinuðu þjóðanna.

„Ég átti gott samtal við kínverska utanríkisráðherrann og tvíhliða samskipti Íslands og Kína standa á traustum grunni. Við ræddum aukið samstarf á sviði orkumála og það eru ýmis tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og íslenskt hugvit í Kína, einkum þegar horft er til jarðvarma og grænna umskipta. Við ræddum einnig viðskipti með áherslu á fisk en langstærstur hluti útflutnings Íslands til Kína eru sjávarafurðir. Fjölbreytni vöruútflutnings fer þó vaxandi og það er vel. Straumur ferðamanna frá Kína til Íslands heldur einnig áfram að aukast og þess má vænta að sú þróun haldi áfram, m.a. með tilkomu flugs milli Íslands og Kína. Ég vona einnig að Íslendingar nýti tækifærið og heimsæki þetta stórbrotna land sem Kína er,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

„Það var hins vegar líka mikilvægt að nota þetta tækifæri til að ræða alþjóðamál, enda blikur á lofti og brýnt að hvetja kínversk stjórnvöld til að beita sér með jákvæðum hætti. Ég tók til að mynda sérstaklega upp árásarstríð Rússa í Úkraínu og biðlaði til Kínverja að beita áhrifum sínum á rússneska ráðamenn eins og hægt er,“ segir hún enn fremur.

Ísland og Kína tóku upp stjórnmálasamband árið 1971. Ríkin undirrituðu fríverslunarsamning árið 2013 og tók hann gildi árið eftir. Ísland varð þar með fyrsta Evrópuríkið til að gera slíkan samning við Kína. Á fundinum lýsti Þorgerður Katrín vilja Íslands til að vinna með Kínverjum að uppfærslu fríverslunarsamningsins og dýpka samstarfið meðal annars á sviði sjávarútvegs, jarðhita, grænnar orku og norðurslóða.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein
Heimur

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein

„Lögreglan og samstarfsaðilar hennar taka málið mjög alvarlega“
Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar
Menning

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Myndband
Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

Ian McKellen minnist Patrick Stewart
Heimur

Ian McKellen minnist Patrick Stewart

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn
Myndir
Heimur

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio
Myndir
Heimur

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar
Innlent

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi
Heimur

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi

Guðrún Birna Gísladóttir er látin
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu
Myndir
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka
Innlent

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka

Pólitík

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum
Pólitík

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum

„Það var hins vegar líka mikilvægt að nota þetta tækifæri til að ræða alþjóðamál“
Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi
Pólitík

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ
Pólitík

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn
Pólitík

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

Loka auglýsingu