1
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

2
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

3
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

4
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

5
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

6
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

7
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

8
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

9
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

10
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Til baka

Ian McKellen minnist Patrick Stewart

„Hann var maður sem hægt var að treysta á og elska“

Patrick Stewart og Ian McKellen
Patrick Stewart og Ian McKellenIan minnist vinar síns Patrick Stewart
Mynd: Gage Skidmore/flickr

Breski stórleikarinn Ian McKellen minnist vinar síns og kollega, leikarans Sir Patrick Stewart, í einlægri færslu á Facebook. Stewart lést 28. október, 86 ára að aldri.

Í færslunni rifjar McKellen upp rúmlega hálfrar aldar vináttu þeirra, en þeir kynntust fyrst þegar báðir voru ungir og upprennandi leikarar hjá Royal Shakespeare Company.

McKellen segir að Stewart hafi fyrst og fremst verið mótaður af uppvexti sínum í Jórvíkurskíri á Norður-Englandi. Hann hafi verið afar stoltur af uppruna sínum og það hafi bæði heyrst á hreimnum og birst í hreinskilni hans.

„Jórvíkurskíris-búar hafa ekkert dálæti á hálfsannleik eða því að forðast erfið mál. Hann bar tilfinningar sínar utan á sér, sem gerði hann að manni sem hægt var að treysta á, dáðst að og, í mínu tilfelli, elska,“ skrifar McKellen.

Hann rifjar einnig upp þegar þeir hittust á götu í miðborg Lundúna nokkrum árum eftir fyrstu kynni sín. Þá hafði Stewart fengið tilboð um að taka við aðalhlutverki í vísindaskáldsagnaseríunni Star Trek.

McKellen segist hafa varað vin sinn við því að slíkt hlutverk gæti haft áhrif á leikhúsferil hans í Bretlandi og spurt hvort hann vildi virkilega hætta á að festast árum saman í Hollywood.

Stewart ákvað hins vegar að taka áhættuna og varð í kjölfarið heimsþekktur fyrir túlkun sína á Jean-Luc Picard skipstjóra í Star Trek. McKellen segir þá ákvörðun hafa verið gæfuspor, ekki aðeins fyrir aðdáendur þáttanna heldur einnig fyrir kvikmynda- og leikhúsáhorfendur um allan heim.

Stewart nýtti frægð sína til að leika í fjölda vinsælla kvikmynda, þar á meðal X-Men-myndunum, en hélt jafnframt áfram að sinna klassísku leikhúsi. Meðal höfunda sem hann túlkaði verk eftir voru William Shakespeare, Henrik Ibsen, Arthur Miller, Harold Pinter og Samuel Beckett. Hann lék bæði í Stratford-upon-Avon, West End-hverfinu í Lundúnum og á Broadway.

Stoltur af uppruna sínum til æviloka

Þótt Bandaríkin hafi orðið ættleitt heimaland Stewarts segir Ian að hann hafi aldrei gleymt rótum sínum. Þar kynntist hann eiginkonu sinni, Sunny, sem McKellen segir hafa staðið við hlið hans í gegnum súrt og sætt, veikindi og heilbrigði.

McKellen segir að eitt mesta afrek Stewarts hafi verið þegar hann var skipaður rektor Huddersfield-háskóla í Jórvíkurskíri. Hann segir það sérstaklega táknrænt að einn virtasti og ástsælasti leikari sinnar kynslóðar beggja vegna Atlantshafsins hafi verið svo stoltur af heimahögum sínum.

Að lokum bendir McKellen á að síðasta framkoma Stewarts á hvíta tjaldinu sé enn ókomin, en hann fer með hlutverk í væntanlegri Marvel-mynd, Avengers: Doomsday.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar
Menning

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Myndband
Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum
Pólitík

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn
Myndir
Heimur

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio
Myndir
Heimur

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar
Innlent

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi
Heimur

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi

Guðrún Birna Gísladóttir er látin
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu
Myndir
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka
Innlent

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Myndband
Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

„Þingið á að vera vettvangur lýðræðislegrar umræðu en ekki vígvöllur“
Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Ian McKellen minnist Patrick Stewart
Heimur

Ian McKellen minnist Patrick Stewart

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn
Myndir
Heimur

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio
Myndir
Heimur

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi
Heimur

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi

Loka auglýsingu