1
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

2
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

3
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

4
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

5
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

6
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

7
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

8
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

9
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

10
Innlent

Þingmannssonur ákærður

Til baka

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð GunnlaugssonEr formaður Miðflokksins.
Mynd: Víkingur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist ekki hafa skýringar á reiðum höndum á því hvers vegna hann hafi verið fjarverandi í öllum 23 atkvæðagreiðslum sem fram hafa farið á Alþingi það sem af er þingi. Hann bendir þó á að atkvæðagreiðslur séu fáar í upphafi þings og að hann hafi tekið virkan þátt í umræðum.

Sigmundur Davíð ræddi fjarveru sína í ítarlegu viðtali við Vísi. Þar var hann spurður hvers vegna hann hefði ekki tekið þátt í neinni atkvæðagreiðslu á þinginu til þessa.

„Allar atkvæðagreiðslur? Ég veit það ekki. Ég hef nú tekið þátt í umræðunni meira en flestir en atkvæðagreiðslur fram að þessu hafa aðallega verið atkvæðagreiðslur um hvort leyfa skuli skýrslu eða eitthvað slíkt,“ sagði Sigmundur Davíð.

Hann sagði slíkar atkvæðagreiðslur hafa verið fáar, líkt og venja væri í upphafi þings, og taldi réttara að leggja mat á mætingu sína þegar þinginu lyki.

Þegar honum var bent á að um 23 atkvæðagreiðslur væri að ræða og hann spurður hvort hann væri orðinn þreyttur á þingstörfunum svaraði hann því neitandi. Hann sagðist meðal annars hafa verið erlendis í ferðum á vegum þingsins og því misst af einhverjum atkvæðagreiðslum.

„Nei, en ég hef verið í ferðum erlendis með þinginu og misst af einhverjum atkvæðagreiðslum þá en ég bara skal ekki segja, 23 atkvæðagreiðslur eru ekki mikið.“

Sigmundur Davíð benti jafnframt á að atkvæðagreiðslurnar yrðu líklega yfir þúsund áður en þinginu lyki. Hann lagði áherslu á að hann hefði mætt reglulega í fyrirspurnatíma og verið meðal þeirra þingmanna sem mest hefðu tekið til máls í upphafi þings.

Mannlíf kannaði þátttöku Sigmundar í atkvæðagreiðslum á síðasta þingi. Var hann fjarverandi 515 atkvæðagreiðslur, kaus Já 866 sinnum, kaus Nei 117 sinnum og sat hjá í 262 atkvæðagreiðslum samkvæmt vef Alþingis. Þýðir það að forsætisráðherrann fyrrverandi tók ekki þátt í tæplega 30% af atkvæðagreiðslum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka
Innlent

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka

Ökumaður kærður og bíllinn dreginn af vettvangi
Innlent

Ökumaður kærður og bíllinn dreginn af vettvangi

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir
Innlent

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir

Bandaríkin æfa viðbrögð við kjarnorkustríði
Heimur

Bandaríkin æfa viðbrögð við kjarnorkustríði

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

Leynilegt kínverskt geimfar sést á áður óbirtri gervihnattamynd
Heimur

Leynilegt kínverskt geimfar sést á áður óbirtri gervihnattamynd

Íbúar fengu óboðinn átta kílóa gest við gluggann
Myndband
Heimur

Íbúar fengu óboðinn átta kílóa gest við gluggann

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ
Pólitík

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn
Pólitík

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi
Pólitík

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

Loka auglýsingu