
Íbúum fjölbýlishúss í borginni Liupanshui í suðvesturhluta Kína brá heldur betur í brún þegar risastór kóngakóbra skreið eftir handriði utan á húsinu, skammt frá gluggum íbúða.
Atvikið átti sér stað síðdegis á sunnudag og náðist snákurinn á myndband þar sem hann liðaðist eftir málmhandriði utan á byggingunni. Kóngakóbran komst á köflum óþægilega nálægt gluggum íbúanna.
Íbúi, sem nefndur er Zhu í erlendum fjölmiðlum, sagðist aldrei áður hafa séð jafn stóran snák. Hann taldi mögulegt að kóngakóbran hefði komið frá nærliggjandi hlíð.
Slökkviliðsmenn voru kallaðir á vettvang og tókst þeim að handsama snákinn. Við vigtun kom í ljós að hann vó um átta kíló.
Kóngakóbran er stærsta eitraða snákategund heims og getur bit hennar verið banvænt. Tegundin forðast almennt átök við fólk en getur varið sig ef henni finnst sér ógnað.
Sérfræðingar ráðleggja fólki að halda sig í öruggri fjarlægð frá kóngakóbrum og öðrum eitruðum snákum og kalla til viðbragðsaðila í stað þess að reyna sjálft að handsama dýrin.
