
Ný skýrsla bandarísku leyniþjónustunnar á sviði varnarmála virðist innihalda fyrstu skýru ljósmyndina sem birt hefur verið af leynilegu kínversku geimfari á braut um jörðu. Myndin gefur nýjar vísbendingar um útlit og mögulega getu geimfarsins.
Talið er að myndin sýni Shenlong, sem þýðir „guðlegur dreki“. Geimfarið hefur verið starfrækt í rúm sex ár og vakið athygli fyrir að sleppa óþekktum hlutum út á lága sporbraut um jörðu.
Myndin birtist í skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar á sviði varnarmála, sem kom út 26. október. Hún var tekin árið 2024 með gervihnetti í eigu Maxar Technologies, sem nú heitir Vantor. Blaðamaðurinn Andrew Jones, sem fylgist með kínversku geimáætluninni, vakti athygli á myndinni á samfélagsmiðlinum X.
Samkvæmt sérfræðingum líkist Shenlong bandaríska geimfarinu X-37B, sem bandaríski geimherinn notar. Bæði geimförin eru með vængi, farmrými og hitahlífðarbúnað sem gerir þeim kleift að snúa aftur til jarðar og fara aftur út í geim.
Enn er óljóst hvort myndin sýni Shenlong eða aðra kínverska geimfaragerð, Tengyun, en sérfræðingar telja Shenlong líklegri kostinn.
Shenlong hefur komið að minnsta kosti níu óþekktum hlutum fyrir á braut um jörðu. Talið er að um litla gervihnetti sé að ræða, en tilgangur þeirra er óljós. Þá hafa komið fram vísbendingar um að geimfarið geti nálgast önnur geimför og hugsanlega náð hlutum til sín með vélrænum armi.
Þetta gæti stutt þá kenningu að eitt af meginhlutverkum Shenlong sé að æfa aðflug og aðgerðir í návígi við önnur geimför. Ekki liggja þó fyrir staðfestar upplýsingar um nákvæman tilgang þess eða hvort því sé ætlað að gegna hernaðarhlutverki.
