
Bandaríkin hafa hafið umfangsmiklar heræfingar til að prófa getu hersins til að stjórna kjarnorkuvopnum í neyðarástandi. Æfingarnar, sem bera heitið Global Thunder 27, eru haldnar árlega og gæti almenningur orðið var við aukinn fjölda sprengjuflugvéla og annarra herflugvéla á lofti.
Bandaríska herstjórnin staðfesti á þriðjudag að æfingarnar væru hafnar en þær hafa verið framkvæmdar árlega frá árinu 2014. Þeim er ætlað að prófa ákvarðanatöku, fjarskipti og getu hersins til að svara árásum, auk þess að tryggja að kjarnorkuheraflinn sé ávallt tilbúinn til notkunar.
Flugrakningargögn sýndu að B-52-sprengjuflugvélar hefðu farið í loftið frá Minot-herflugvellinum í Norður-Dakóta. Þá sáust nokkrar E-6B Mercury-flugvélar á flugi yfir Bandaríkjunum. Þær eru oft kallaðar „dómsdagsflugvélar“ þar sem þær þjóna sem fljúgandi stjórnstöðvar og tryggja fjarskipti milli bandarískra leiðtoga og kjarnorkuheraflans.
Að minnsta kosti fimm E-6B-flugvélar sáust á þriðjudag og ein til viðbótar á miðvikudagsmorgun. B-52-sprengjuflugvélar flugu meðal annars norður frá Norður-Dakóta inn yfir Kanada. Einnig sást B-1B Lancer-sprengjuflugvél yfir vesturhluta Texas.
Þrjár stoðir kjarnorkuheraflans
Kjarnorkuherafli Bandaríkjanna byggist á þremur þáttum: langdrægum eldflaugum í neðanjarðarbyrgjum, kafbátum með kjarnorkuvopn og sprengjuflugvélum á borð við B-52 og B-2.
Þessi uppbygging gerir bandarískum stjórnvöldum kleift að bregðast við árás með mismunandi hætti og tryggir að möguleikinn á gagnárás haldist þótt ráðist sé á hluta kjarnorkuheraflans.
E-6B-flugvélarnar gegna mikilvægu hlutverki í þessu kerfi. Þær eru búnar sérhæfðum fjarskiptabúnaði sem gerir þeim meðal annars kleift að halda sambandi við kafbáta með kjarnorkuvopn og miðla fyrirmælum um notkun kjarnorkuvopna.
B-1B Lancer-sprengjuflugvélarnar eru hins vegar eingöngu ætlaðar til notkunar hefðbundinna vopna. Kjarnorkuhlutverk þeirra var lagt niður árið 1994 og árið 2011 var lokið við að breyta þeim fyrir hefðbundnar hernaðaraðgerðir.
Flugsvæði takmörkuð vegna æfinganna
Tilkynningar til flugmanna sýna að ákveðin loftrými yfir Atlantshafi, Kyrrahafi og Flórída hafi verið frátekin tímabundið. Ein tilkynning nefnir Global Thunder sérstaklega og afmarkar svæði yfir Atlantshafi frá sjávarmáli upp í um 7.620 metra hæð.
Aðrar tilkynningar báðu flugmenn að sýna ýtrustu varúð. Einnig voru opnunartímar Minot-herflugvallar lengdir og starfsemi á Whiteman-herflugvellinum takmörkuð við opinber erindi, þótt ekki hafi verið staðfest að þær ráðstafanir tengdust æfingunum.
Yfirvöld leggja áherslu á að Global Thunder sé reglubundin árleg æfing en ekki viðbragð við tilteknu ríki eða alþjóðlegum atburðum.
Æfingarnar hófust 22. október og er gert ráð fyrir að þær standi í um tíu daga. Flugrakningargögnin sýna ferðir herflugvélanna en staðfesta ekki hvaða vopn þær bera eða hvort allar vélarnar sem sáust taki þátt í æfingunum.
