
Lífeyrissjóður verzlunarmanna hyggst breyta nafni sínu í Lifa lífeyrissjóð. Tillagan verður lögð fyrir aukaársfund sjóðsins mánudaginn 16. nóvember og tekur breytingin gildi að fenginni staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytis.
Í tilkynningu frá sjóðnum segir að nýja nafnið endurspegli þróun hans og fjölbreyttari hóp sjóðfélaga en áður. Sjóðurinn hafi í auknum mæli þjónað fólki úr ólíkum starfsgreinum en ekki eingöngu verslunarmönnum.
Snýr að fjárhagslegu öryggi alla ævi
Samkvæmt tilkynningunni er nafnið Lifa hugsað sem eðlileg þróun á heiti sjóðsins, en styttingin Live hafi verið orðin ráðandi. Nafnið sé jafnframt íslenskt og vísi til sagnarinnar að lifa.
„Lifa snýst um lífið sem þú lifir í dag og lífið sem þú vilt geta lifað síðar. Hlutverk okkar er að byggja upp fjárhagslegt öryggi sjóðfélaga til framtíðar og veita mikilvæga vernd ef óvænt áföll verða,“ segir Guðmundur Þ. Þórhallsson, framkvæmdastjóri sjóðsins.
Hann segir lífeyrismál ekki aðeins snúast um eftirlaunaárin heldur einnig um lífsgæði og fjárhagslegt öryggi alla ævi.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur starfað í 70 ár og er einn stærsti langtímafjárfestir landsins. Með nafnabreytingunni horfi sjóðurinn fram á veginn og til næstu áratuga.
Nýtt merki fylgir nafnabreytingunni
Samhliða nafnabreytingunni hyggst sjóðurinn taka upp nýtt merki. Það myndar bókstafinn L og samanstendur af formum sem breiða úr sér líkt og ljósgeislar frá sameiginlegum upphafspunkti.
Að sögn sjóðsins á merkið að endurspegla ólík augnablik lífsins, ný tækifæri og hlutverk sjóðsins sem trausts lífsförunautar sjóðfélaga.
Nafnabreytingin byggir að sögn sjóðsins á ítarlegri greiningu og vinnu fagaðila.
Réttindi og þjónusta haldast óbreytt
Nafnabreytingin hefur ekki áhrif á réttindi sjóðfélaga eða þjónustu. Sjóðurinn verður áfram sá sami og starfar undir sömu kennitölu.
Stjórn sjóðsins hefur samþykkt breytinguna og verður hún lögð fyrir aukaársfund á Hilton Reykjavík mánudaginn 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu. Nýja nafnið tekur gildi að lokinni staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
