Bandaríska heimavarnarráðuneytið hefur farið fram á að íslenska hýsingarfyrirtækið FlokiNET fjarlægi eða takmarki aðgang að gögnum um tugi þúsunda starfsmanna ráðuneytisins. FlokiNET hefur hafnað kröfunni.
Reuters greinir frá þessu en beiðnin var send fyrirtækinu í gær. Þar kemur fram að gagnagrunnurinn geti stefnt meira en 40 þúsund nafngreindum einstaklingum í hættu á áreitni, eftirför og jafnvel líkamlegu ofbeldi.
Beiðnin var send af netöryggisfyrirtækinu ZeroFox, sem hefur heimild frá bandarísku útlendinga og tollgæslustofnuninni ICE til að óska eftir því að tiltekið efni verði fjarlægt af netinu.
Kolja Weber, framkvæmdastjóri FlokiNET, sagði í samtali við Reuters að fyrirtækið hygðist ekki fjarlægja gögnin. Hann sagði upplýsingarnar meðal annars innihalda vinnustaðföng og vinnusímanúmer opinberra starfsmanna en ekki persónuleg heimilisföng eða einkasímanúmer þeirra.
Talsmaður bandaríska heimavarnarráðuneytisins sagði ráðuneytið vita af mögulegum gagnaleka og unnið væri að því að bregðast hratt við málinu.
„Við tökum allar öryggisógnir gegn starfsmönnum okkar og embættismönnum alvarlega og munum vinna að því að tryggja að þeir njóti viðeigandi verndar,“ sagði talsmaðurinn.
Gagnsæissamtökin Distributed Denial of Secrets, DDoSecrets, birtu á miðvikudag upplýsingar um meira en 40 þúsund starfsmenn heimavarnarráðuneytisins. Samhliða var birtur sérstakur leitanlegur gagnagrunnur. Gagnagrunnurinn varð tímabundið óaðgengilegur á fimmtudag en birtist skömmu síðar aftur undir öðru léni.
Hópur sem kallar sig Department of Peace hefur lýst yfir ábyrgð á því að hafa aflað gagnanna. Hópurinn sagði tilgang birtingarinnar meðal annars vera að auðvelda aðgerðir sem gætu takmarkað það sem hann telur skaðleg áhrif starfsemi heimavarnarráðuneytisins.
Málið kemur á sama tíma og bandarísk stjórnvöld hafa sætt gagnrýni frá talsmönnum persónuverndar vegna notkunar heimavarnarráðuneytisins á persónuupplýsingum úr gagnagrunnum annarra ríkisstofnana við framkvæmd útlendingaeftirlits.

