
Harðar stympingar brutust út á þingi Armeníu í gær þegar þingmenn stjórnarflokksins Civil Contract og stjórnarandstöðuflokksins Strong Armenia lentu í átökum. Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, segist styðja viðbrögð þingmanna síns flokks og segir stjórnarandstöðuna ekki geta leyft sér að ganga of langt.
Atvikið átti sér stað á meðan þingfundur var í beinni útsendingu. Myndefnið sýndi þingmenn kýla og sparka hver í annan. Vaagn Aleksanyan, varaforseti þingsins, gekk svo langt að kasta stól í átt að þingmönnum stjórnarandstöðunnar.
„Ég fagna og styð aðgerðir þingmanna Civil Contract-flokksins. Það var viðeigandi og réttlætanlegt svar að kasta stól eða einhverju öðru,“ sagði Pashinyan á reglulegum blaðamannafundi.
Hann bætti við að stjórnvöld myndu „brjóta handleggina“ á hverjum þeim sem reyndi að beita ofbeldi. Það væri skylda stjórnvalda að koma í veg fyrir að lögleysi ríkti í landinu.
Anahit Manasyan, umboðsmaður mannréttinda í Armeníu, var ósammála afstöðu forsætisráðherrans og sagði slík atvik ýta undir viðhorf í samfélaginu sem réttlæta ofbeldi.
„Þingið á að vera vettvangur lýðræðislegrar umræðu en ekki vígvöllur,“ sagði hún.
Deilur um spillingu leiddu til átaka
Spenna hafði myndast á þinginu í kjölfar ræðu Taron Chakhoyan, þingmanns stjórnarflokksins Civil Contract. Hann ræddi spillingu og nefndi meðal annars Robert Kocharyan, fyrrverandi forseta Armeníu og leiðtoga stjórnarandstöðunnar, og samstarfsmenn hans.
Chakhoyan beindi því næst orðum sínum að Narek Karapetyan, leiðtoga þingflokksins Strong Armenia, og sakaði ættingja hans um að tengjast spillingu. Frændi Karapetyans, auðkýfingurinn Samvel Karapetyan, sætir meðal annars ásökunum um umfangsmikið peningaþvætti og misnotkun opinbers valds.
„Fólk sem er sokkið í spillingu er núna að predika yfir okkur um spillingu og falsfréttir og halda því fram að ættingjar þeirra hafi orðið fyrir pólitískum þrýstingi stjórnvalda. Herra Karapetyan, það er ekki mér að kenna að öll fjölskylda þín skuli vera í stjórnmálum, þar á meðal frændi þinn, faðir og frændsystkini,“ sagði Chakhoyan.
Hann hélt áfram upptalningu sinni og rifjaði meðal annars upp umdeild ummæli frænda Nareks Karapetyans, Sargis Karapetyan, frá því í febrúar.
Þá hafði Sargis sagt að í sterkri Armeníu yrðu engar óánægðar konur. Ummælin féllu í umræðum um lýðfræðileg vandamál og möguleikann á að stofna sérstakt kynlífsráðuneyti. Þau vöktu mikla gagnrýni í Armeníu og voru af mörgum talin móðgandi í garð kvenna.
Eftir ummæli Chakhoyans kallaði Narek Karapetyan eitthvað að honum úr sæti sínu. Chakhoyan svaraði með því að segja að Karapetyan væri „ara frá toppi til táar“, en orðið „ara“ er kunnuglegt og niðrandi ávarp á armensku.
Orðaskiptin þróuðust fljótt yfir í slagsmál. Ruben Rubinyan, forseti þingsins, hvatti þingmenn til að róa sig en ákvað að stöðva ekki þingfundinn eða beina útsendingu.
„Ég ætla ekki að fresta þingfundinum. Ég vil að allir sjái þetta,“ sagði hann.
Átökin héldu áfram að harðna og kastaði Aleksanyan þá stólnum í átt að stjórnarandstöðuþingmönnunum. Að lokum ákvað forseti þingsins að gera hlé á fundinum. Átökin héldu þó áfram um tíma fyrir utan þingsalinn.
„Við munum brjóta handleggina á þeim“
Pashinyan sagði við blaðamenn að hann hefði séð upptökur af því hvernig átökin hófust.
„Ef einhver heldur að hann geti lagt hendur á þingmann, barið hann eða gert eitthvað annað við hann, þá munum við brjóta á honum handlegginn. Ég segi þetta skýrt og án þess að fara í kringum hlutina,“ sagði forsætisráðherrann.
Þegar blaðamenn spurðu hvort það yrði gert með stól svaraði hann:
„Ef þess þarf, þá með stól. Þeir þurfa að vita sinn stað. Það eru takmörk fyrir öllu.“
Pashinyan sagði þingmenn stjórnarandstöðunnar nú uppskera eins og þeir hefðu sáð, þar sem þeir hefðu ekki brugðist rétt við hegðun eigin þingmanna eða fordæmt hana.
„Svona verður þetta héðan í frá. Í hvert sinn sem þeir haga sér svona fá þeir sömu viðbrögð,“ sagði hann.
Mannréttindafulltrúi krefst rannsóknar
Skrifstofa umboðsmanns mannréttinda í Armeníu sendi frá sér yfirlýsingu vegna atviksins. Þar sagði að hvers kyns ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna, þar á meðal þingmanna, stuðlaði að því að réttlæta ofbeldi og gæti leitt til þess að samfélagið liti á það sem eðlilega leið til að leysa ágreining.
Manasyan, umboðsmaður mannréttinda, hvatti til þess að allri hegðun sem fæli í sér eða gæfi til kynna beitingu ofbeldis yrði hætt, sem og yfirlýsingum sem réttlættu slíkt athæfi.
„Þetta atvik verður að sæta viðeigandi rannsókn í samræmi við gildandi lagalegar málsmeðferðarreglur,“ sagði hún.
