
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins, hefur skorað á Emmanuel Macron Frakklandsforseta að láta herlið halda til Úkraínu og gera kjarnorkuvopn tilbúin til notkunar.
Heimir setti fram þessi skilaboð í athugasemd við færslu Macrons á samfélagsmiðlinum X í gær en mbl.is sagði frá málinu.
Frakklandsforseti birti færsluna eftir að Rússar gerðu árás á járnbrautarstöð í úkraínsku borginni Dnipro. Að minnsta kosti 14 manns létu lífið og jafnmargir særðust í árásinni.
Í færslu sinni lýsti Macron yfir stuðningi við Volodimír Selenskí, forseta Úkraínu, og úkraínsku þjóðina. Hann kallaði jafnframt eftir auknu alþjóðlegu átaki til að tryggja réttlátan og varanlegan frið. Macron sagði árásir Rússa á óbreytta borgara óásættanlegar og gagnrýndi stjórnvöld í Moskvu fyrir að hafna friðartillögum.
Kallar eftir hernaðarlegum aðgerðum
Athugasemd Heimis Más var skrifuð á ensku. Þar skoraði hann á Macron að láta af yfirlýsingum og grípa til beinna aðgerða.
„Kæri Macron, hættu þessum ræðuhöldum og sendu hermenn til að berjast fyrir Úkraínu og Evrópu og hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin til að skjóta þegar í stað,“ sagði Heimir í athugasemdinni.
Hefur látið til sín taka á X
Heimir Már hefur um nokkurt skeið verið virkur í umræðum um alþjóðamál á X en meðal þess sem hann hefur fjallað um eru niðurstöður kosninga til Evrópuþingsins í sumar og svo hefur hann gagnrýnt bandarísk stjórnvöld fyrir að viðhalda vinsamlegum samskiptum við rússnesk stjórnvöld.
Heimir Már tók við starfi framkvæmdastjóra og upplýsingafulltrúa þingflokks Flokks fólksins í febrúar á síðasta ári. Áður starfaði hann um árabil sem fréttamaður á Stöð 2 og Bylgjunni.
Mannlíf náði ekki í Heimi við vinnslu fréttarinnar.
