1
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

2
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

3
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

4
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

5
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

6
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

7
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

8
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

9
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

10
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

Til baka

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun

Læknir
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Vitaly Gariev/Unsplash

Brjóstaskimun hjá einkennalausum konum gegnir enn mikilvægu hlutverki við að greina brjóstakrabbamein snemma þrátt fyrir miklar framfarir í greiningu og meðferð sjúkdómsins.

Þetta kemur fram í grein sem Anna Kristín Höskuldsdóttir brjóstaskurðlæknir, Helga Tryggvadóttir krabbameinslæknir, Inga Reynisdóttir náttúrufræðingur, Ólöf Kristjana Bjarnadóttir krabbameinslæknir og Þórður Tryggvason meinafræðingur skrifa á Vísi fyrir hönd stjórnar Íslenska brjóstakrabbameinshópsins.

Í greininni kemur fram að tilfellum brjóstakrabbameins á Íslandi hafi fjölgað undanfarin ár. Á sama tíma hafi árangur meðferðar batnað og fleiri læknist eða lifi lengur með sjúkdóminn. Brjóstakrabbamein sé þó enn næst algengasta dánarorsök kvenna vegna krabbameina hér á landi.

Höfundarnir benda á að krabbamein sem greinist við skimun sé almennt minna og á lægra stigi en mein sem greinist eftir að einkenni koma fram. Snemmgreining geti jafnframt dregið úr þörf fyrir erfiðar lyfjameðferðir og umfangsmiklar skurðaðgerðir.

Þátttaka í brjóstaskimun hér á landi hafi lengi verið of lítil. Brjóstaskimun stendur konum á aldrinum 40 til 74 ára til boða þegar þær finna ekki fyrir einkennum frá brjóstum.

Í greininni er einnig fjallað um framfarir í einstaklingsmiðaðri meðferð, meðal annars notkun Prosigna prófsins sem metur áhættu á fjarmeinvörpum með greiningu á genum sem tengjast brjóstakrabbameini.

Höfundarnir segja spár gera ráð fyrir að tíðni brjóstakrabbameins á Íslandi aukist á næstu áratugum og hvetja konur til að mæta í skimun þegar boð berst.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Pólitík

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein
Heimur

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar
Menning

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Myndband
Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum
Pólitík

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum

Ian McKellen minnist Patrick Stewart
Heimur

Ian McKellen minnist Patrick Stewart

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn
Myndir
Heimur

Hrekkjavökufögnuður breyttist í martröð í Brooklyn

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio
Myndir
Heimur

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar
Innlent

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi
Heimur

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi

Guðrún Birna Gísladóttir er látin
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

Innlent

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun
Innlent

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar
Innlent

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka
Innlent

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka

Ökumaður kærður og bíllinn dreginn af vettvangi
Innlent

Ökumaður kærður og bíllinn dreginn af vettvangi

Loka auglýsingu