
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, rifjar upp á Facebook að tíu ár séu liðin frá því hún náði fyrst kjöri á Alþingi. Hún segist stoltust af því sem Píratar hafi áorkað í þágu gagnsæis, mannréttinda og lýðræðis, þrátt fyrir að flokkurinn hafi aldrei komist í ríkisstjórn.
Þórhildur Sunna var 29 ára þegar hún náði kjöri á þing og sat þar í átta ár. Hún segir tímann á Alþingi hafa verið lærdómsríkan og að hún hafi barist af krafti fyrir mannréttindum og gegn spillingu.
„Stoltust er ég af því sem Píratar áorkuðu þrátt fyrir að hafa aldrei komist í stjórn; áherslu á gagnsæi, mannréttindi og lýðræði og baráttuna gegn spillingu sem var viðvarandi allan þennan tíma,“ skrifar hún.
Hún segir Pírata hafa barist fyrir því að upplýsingar sem vörðuðu almenning yrðu gerðar aðgengilegar og að flokkurinn hefði ávallt tekið upp hanskann fyrir jaðarsetta hópa, jafnvel þegar það var óvinsælt og kostaði flokkinn atkvæði.
Segist sjá eftir ýmsu
Þórhildur Sunna rifjar sérstaklega upp birtingu Lindarhvolsskýrslunnar og segir að þá hafi hún óttast að kerfið myndi snúast gegn sér.
„Þegar við birtum Lindarhvolsskýrsluna hélt ég að kerfið ætlaði loksins að éta mig en svo tókst að þagga það mál niður eins og svo mörg spillingarmál í gegnum tíðina,“ skrifar hún.
Hún segist einnig sjá eftir ýmsu sem hún hefði viljað gera betur eða meira af á þingferlinum. Sérstaklega hefði hún viljað geta aðstoðað fleiri einstaklinga sem leituðu til hennar með erfið og þung mál.
Þrátt fyrir áskoranirnar segir hún það hafa verið mikil forréttindi að fá að þjóna kjósendum og berjast fyrir þeim málefnum sem henni eru kærust.
Hún lýsir þingmennskunni sem afar skemmtilegu en jafnframt óvenju krefjandi starfi.
„Það étur mann upp að innan og byggir mann upp á sama tíma,“ segir hún.
Þórhildur Sunna segist reglulega sakna þess að sitja á Alþingi, en þó sakni hún enn meira þess að heyra rödd mannréttinda, náttúrunnar og lýðræðis á þinginu.
„Ég sakna þess reglulega að vera á þingi en ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda, náttúrunnar og lýðræðis inn á þingi.“
Hún lýkur færslunni á þeirri von að sú rödd fái aftur að heyrast á Alþingi, í hvaða formi sem það verði.
