
Sverrir Agnarsson, fyrrverandi formaður Félags múslima á Íslandi, segir umræðu síðustu daga bera merki um endurnýjaða íslamófóbíu og hatursorðræðu.
Þetta kemur fram í grein hans á Vísi þar sem hann fjallar meðal annars um viðhorf til samkynhneigðar og sjaría.
Formaðurinn fyrrverandi vísar ekki til þess með beinum hætti hvaða umræðu hann á við en gera má ráð fyrir að hann sé í umræðu í komu pakistanska trúarleiðtoganum Muhammad Taqi Usmani til Íslands sem fjölmiðlar hafa fjallað um á undanförnum dögum. Hefur hann verið gagnrýndur fyrir viðhorf sitt gagnvart samkynhneigðum og konum.
Sverrir skilgreinir íslamófóbíu sem fordóma, hatur og ótta sem beinist að íslam og múslímum. Hann segir staðalímyndir gjarnan draga upp mynd af múslímum sem einsleitum, ofbeldisfullum og öfgasinnuðum hópi og að með því sé horft fram hjá fjölbreytileika samfélaga múslíma.
„Hatrið og óttinn við Íslam byggist á þeirri vanþekkingu að þau séu ofbeldisfull trúarbrögð og ósamrýmanleg vestrænum gildum,“ skrifar Sverrir.
Hann segir íslamófóbíu meðal annars geta birst í mismunun á vinnumarkaði, í menntakerfinu og opinberri þjónustu, auk áreitni og tortryggni gagnvart múslímum.
Sverrir fjallar jafnframt um samkynhneigð og heldur því fram að viðhorf til hennar hafi verið blæbrigðaríkari í samfélögum múslíma fyrir nýlendutíma. Hann segir breska nýlendulöggjöf og viktoríanska siðfræði hafa haft mikil áhrif á lög gegn samkynhneigð í ýmsum ríkjum.
Þá hafnar Sverrir þeirri hugmynd að sjaría sé einn fastmótaður lagabálkur. Hann lýsir sjaría fremur sem aðferð við lagasetningu þar sem meðal annars sé horft til Kóransins, hefða, aðstæðna samfélagsins og lögfræðilegrar túlkunar. Slík lög séu því, að hans sögn, mannanna verk en ekki óbreytanleg guðslög.
