
Gerður Róbertsdóttir, sagnfræðingur og verkefnastjóri munavörslu á Borgarsögusafni Reykjavíkur, segir nýjustu uppsagnir hjá Reykjavíkurborg geta haft alvarleg áhrif á rannsóknar- og minjavörslustarf safnsins. Hún gagnrýnir sérstaklega fyrirhugaðan niðurskurð í fornleifarannsóknum og að húsarannsóknir eigi að leggjast af.
Þetta kemur fram í færslu Gerðar á Facebook þar sem hún segist ekki geta orða bundist vegna þeirra breytinga sem boðaðar hafa verið á starfsemi safnsins.
Gerður segir að með ákvörðuninni sé vegið að rannsóknum sem hafi verið mikilvægur þáttur í starfsemi Borgarsögusafns um áratugaskeið. Hún bendir á að forveri safnsins, Árbæjarsafn, hafi verið brautryðjandi í rannsóknum á byggingararfi Reykjavíkur.
„Get ekki orða bundist.
Alvarlega er vegið að rannsóknum Borgarsögusafns Reykjavíkur með nýjustu uppsagnarhrinu borgarstjórnar. Nú á að draga verulega úr fornleifarannsóknum og leggja af eina helstu skrautfjöður safnsins, húsarannsóknir.“
Segir verið að leggja niður áratuga faglegt starf
Í færslu sinni rifjar Gerður upp störf Nönnu Hermannssonar, fyrsta borgarminjavarðar Reykjavíkur, sem gegndi embættinu á árunum 1974 til 1984. Hún segir Nönnu hafa lagt grunn að faglegri minjavörslu og rannsóknum á byggingararfi borgarinnar.
Undir hennar stjórn hafi verið þróuð skipuleg skráning húsa og mannvistarleifa og teknar upp aðferðir til að meta sögulegt og menningarlegt gildi eldri byggðar.
Markmiðið hafi verið að tryggja að hús, götur og minjar fyrri tíma yrðu skráð, rannsökuð og varðveitt á faglegum forsendum.
Gerður nefnir Grjótaþorp sem dæmi um svæði þar sem rannsóknir safnsins hafi haft áhrif á verndun sögulegrar byggðar. Rannsóknirnar hafi sýnt fram á einstakt menningarsögulegt gildi hverfisins.
Tveimur af þremur sagt upp
Samkvæmt Gerði er tveimur af þeim þremur starfsmönnum Borgarsögusafns sem bera ábyrgð á þessum verkefnum sagt upp í nýjustu uppsagnarhrinu borgarinnar.
Hún telur ákvörðunina skerða verulega getu safnsins til að sinna rannsóknum, skráningu og verndun menningararfs Reykjavíkur.
„Um leið er grafið undan því faglega starfi sem byggt hefur verið upp á áratugum og á rætur að rekja til frumkvöðla á borð við Nönnu Hermannsson,“ skrifar Gerður.
