1
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

2
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

3
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

4
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

5
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

6
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

7
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

8
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

9
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

10
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

Til baka

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt

„Báðir hópar líta á fjölmenningu og fjölbreytileika sem veikleika og ógn.“

Elliði Vignisson
Elliði VignissonGuðný segir margt líkt með hópunum
Mynd: Aðsend

Guðný Gústafsdóttir, verkefnisstjóri rannsókna hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, segir ýmislegt sameiginlegt með öfgafullum íslamistum og öfgahægrimönnum. Báðir hóparnir skipti heiminum upp í tvo andstæða hópa, líti á fjölmenningu sem ógn og nýti samsæriskenningar og hræðsluáróður til að réttlæta afstöðu sína.

Guðný fjallar um þetta í Facebook-færslu þar sem hún ber saman stjórnmála- og trúaröfgar hópanna. Við færsluna birtir hún samsetta mynd af Elliða Vignissyni, bæjarstjóra Ölfuss, og gervigreindarmynd af Taqi Usmani, sem hélt fyrirlestur í stórmosku Félags múslima á Íslandi á dögunum.

Í færslunni segir Guðný að báðir hóparnir skilgreini heiminn út frá hugmyndinni um „okkur“ og „hina“ og líti á eigin hóp sem öðrum æðri.

„Báðir hópar setja sig og sinn hóp yfir aðra hópa,“ skrifar Guðný.

Hún segir öfga hægrimenn líta til fortíðarinnar sem eins konar gullaldar, þar sem íslenska þjóðin hafi orðið til með landnáminu. Þeir trúi á sterkan leiðtoga og skilgreini þjóðina sem einsleitan hóp fólks með sama tungumál og húðlit. Fólk af erlendum uppruna sé í þeirra augum ógn við tilvist hópsins.

„Öfga hægrið trúir á rætur menningar þeirra liggi í „gullöld“ fortíðarinnar. Á Íslandi var það þegar „feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu“ námu land og „þjóðin“ varð til. Öfga hægrið trúir á styrkan leiðtoga þjóðar. Í þeirra huga „þjóðin“ einsleitur hópur fólks með sama tungumál og húðlit. „Útlendingar“ þ.e. fólk af öðrum lit með annað tungumál eru ógn við tilvist öfga hægrisins.“

Guðný segir öfga íslamista sömuleiðis horfa til fortíðarinnar og upphafsdaga íslams sem gullaldar. Þar hafi kalífarnir verið leiðtogar múslima og hugmyndafræðin byggst á því að allir múslimar, óháð uppruna eða kynþætti, skyldu heyra undir einn æðsta leiðtoga.

Hún segir að öfga íslamistar skilgreini þá sem ekki aðhyllist trúna sem ógn við eigin hugmyndafræði.

„Öfga íslamistar trúa líka á eigin „gullöld“; forna tíma kalífadæmanna og upphafsdaga íslam. Kalífarnir voru eftirmenn Múhameðs spámanns og leiðtogar múslima. Kjarninn í hugmyndafræðinni var að allir múslimar, óháð uppruna eða kynþætti, ættu að heyra undir einn æðsta leiðtoga. Skilgreind ógn við öfga íslamista eru hinir „vantrúuðu“.“

Líta á fjölbreytileika sem ógn

Guðný telur sameiginlegt með hópunum að þeir vilji einsleitt samfélag og líti á fjölmenningu og fjölbreytileika sem ógn.

„Báðir hópar eiga það sameiginlegt að vilja einsleitt samfélag. Báðir hópar líta á fjölmenningu og fjölbreytileika sem veikleika og ógn.“

Þá segir hún báða hópa nota samsæriskenningar til að útskýra vandamál heimsins og líta á sig sem fórnarlömb þeirra sem þeir skilgreina sem andstæðinga sína.

Að lokum bendir hún á að samsæriskenningar og hræðsluáróður séu nýtt til að ráðast á hina hópana og réttlæta ofbeldi gegn þeim.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

„Nú á að draga verulega úr fornleifarannsóknum og leggja af eina helstu skrautfjöður safnsins, húsarannsóknir.“
Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar
Innlent

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu
Innlent

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Pólitík

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun
Innlent

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein
Heimur

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar
Menning

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Myndband
Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum
Pólitík

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum

Pólitík

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt
Pólitík

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt

„Báðir hópar líta á fjölmenningu og fjölbreytileika sem veikleika og ógn.“
Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn
Pólitík

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Pólitík

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum
Pólitík

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ
Pólitík

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ

Loka auglýsingu