1
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

2
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

3
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

4
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

5
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

6
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

7
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

8
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

9
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

10
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

Til baka

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

Andri Már kveður leikskólann Baug eftir tæplega átta ár í starfi

Andri Már Eggertsson Nablinn
Andri Már EggertssonNabblinn hefur vakið athygli sem íþróttafréttamaður
Mynd: Facebook/Andri Már Eggertsson

Íþróttafréttamaðurinn Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nabblinn, hefur ákveðið að láta af störfum á leikskólanum Baugi í Kópavogi eftir tæplega átta ára starf. Hann segir erfitt að kveðja vinnustaðinn og fólkið sem hann hefur kynnst þar.

Andri Már greindi frá ákvörðuninni í Facebook-færslu í dag þar sem hann þakkaði samstarfsfólki, foreldrum og börnum fyrir árin á leikskólanum.

Hann segir að starfið hafi upphaflega aðeins átt að vera tímabundið, í nokkra mánuði eftir útskrift úr fjölbrautaskóla. Það hafi þó fljótt komið í ljós hversu gefandi og skemmtilegt væri að vinna á leikskóla og nokkrir mánuðir hafi orðið að tæplega átta árum.

„Eftir svona mörg ár á frábærum vinnustað er erfitt að sleppa takinu og kveðja,“ skrifar Andri Már.

Hann rifjar meðal annars upp fyrsta vinnudaginn þegar hann kunni ekki að opna hliðið og klifraði því yfir grindverkið. Þá segist hann hafa séð fyrir sér að þrauka fram að sumri og finna sér annað starf.

Andri Már segist ekki geta mælt nógu mikið með því við karlmenn að prófa að vinna á leikskóla og nefnir sérstaklega hversu góður vinnustaður Baugur sé.

Ældi aðeins tvisvar við bleyjuskipti

Í færslunni fer Andri Már hlýjum orðum um samstarfsfólk sitt og sérstaklega leikskólastjórann Maggý, sem hann segir hafa reynst sér einstaklega vel.

Hann rifjar upp atvinnuviðtalið þar sem Maggý hafi trúað því að hann kynni að skipta á kúkableyjum.

„Ég lærði það og ældi bara tvisvar af þeim fjölmörgu bleyjum sem ég skipti á,“ skrifar hann í gamansömum tón.

Hann minnist einnig barnanna sem hann hefur sinnt í gegnum árin og segir þau ekki gefa neinn afslátt. Þau séu ófeimin við að benda honum á að hann sé að missa hárið og bíði spennt eftir því að verða stærri en hann.

Að lokum kveður Nabblinn með húmorinn að vopni. Hann biður vini sína um að senda sér tölvupóst fái þeir njálg eða lús, enda muni hann sakna þess að finna kláðann læðast að sér um leið og einhver nefnir að slíkt sé í gangi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Lögreglan óttast að ofbeldisfullar óeirðir brjótist út á Tenerife á morgun
Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn
Pólitík

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar
Innlent

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu
Innlent

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt
Pólitík

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Pólitík

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun
Innlent

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein
Heimur

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein

Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

Andri Már kveður leikskólann Baug eftir tæplega átta ár í starfi
„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu
Myndir
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina
Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur
Myndir
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni
Myndir
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

Loka auglýsingu