
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast frá klukkan 17 í gær og fram til klukkan 5 í morgun. Alls voru 102 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu og gistu fimm einstaklingar fangaklefa þegar dagbókin var rituð.
Töluvert var um umferðarlagabrot og voru alls 15 ökumenn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og eða ávana og fíkniefna. Voru þeir fluttir á lögreglustöð þar sem mál þeirra voru afgreidd samkvæmt hefðbundnu verklagi.
Þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir akstur án ökuréttinda, hraðakstur og önnur brot á umferðarlögum.
Lögregla sinnti einnig nokkrum útköllum vegna minni háttar umferðaróhappa á höfuðborgarsvæðinu en ekki kemur fram í dagbókinni að alvarleg slys hafi orðið í þeim.
Einnig var lögregla kölluð til vegna búðarhnupls í verslun. Málið var afgreitt á vettvangi.
Þá barst lögreglu tilkynning vegna hrekkjavökuskemmtunar í Kópavogi sem hafði farið úr böndunum. Ekki kemur nánar fram í dagbók lögreglu hvað gekk þar á eða hvort lögregla þurfti að grípa til frekari aðgerða.
