
Arnar Þór Jónsson, fyrrverandi dómari og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir flokkinn hafa fjarlægst grundvallarstefnu sína á undanförnum árum og telur að fólk sem ekki aðhyllist hefðbundin stefnumál flokksins hafi komist þar til verulegra áhrifa.
Arnar Þór fjallar um stöðu Sjálfstæðisflokksins í grein á Facebook þar sem hann rifjar meðal annars upp langa sögu flokksins í ríkisstjórnum landsins. Hann segir styrk flokksins lengi hafa byggst á áherslu á einstaklingsfrelsi, frjáls viðskipti, takmörkuð ríkisafskipti, íslenska menningu og sjálfstæði þjóðarinnar.
Að mati Arnars Þórs hefur orðið grundvallarbreyting á flokknum og telur hann að skýringanna sé að leita innan hans fremur en utan.
„Eftir því sem ég hugsa meira um þetta finnst mér blasa við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið yfirtekinn af vinstri mönnum sem komust til áhrifa undir fölsku flaggi,“ skrifar Arnar Þór.
Hann heldur því fram að þessir einstaklingar, sem hann nefnir þó ekki á nafn, hafi talað fyrir sjálfstæðisstefnunni en ekki fylgt henni eftir í framkvæmd. Afleiðingin sé að flokkurinn hafi fjarlægst hefðbundinn kjósendahóp sinn.
Arnar Þór nefnir meðal annars skattahækkanir, fjölgun ríkisstofnana og aukið ríkiseftirlit. Þá gagnrýnir hann afstöðu flokksins til Evrópumála, stuðning við bókun 35, samstarfið við Vinstri græn undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur og stefnu í utanríkis og innflytjendamálum.
„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn,“ skrifar hann.
Arnar Þór telur þó að Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi vilja til að færa flokkinn nær því sem hann telur upprunalegan hugmyndafræðilegan grunn hans. Hann segir hana þó kunna að þurfa að takast á við það sem hann kallar „hulduher“ innan flokksins.
Að lokum leggur Arnar Þór til að Guðrún ráði Hjört J. Guðmundsson, sem var nýlega rekinn frá Hagstofunni, sér til ráðgjafar sem hugmyndafræðing.
