
Tvær konur. Tvær trans konur. Anna Kristjánsdóttir og Arna Magnea Danks heilsa hlýlega. Anna er í buxum og peysu. Arna Magnea í pilsi og blússu. Hún styður sig við göngugrind. Annar fóturinn er í spelkum og miklum umbúðum. Hún lenti í mótorhjólaslysi, hlaut opið beinbrot og er í sárameðferð vegna þess. Lífsganga kvennanna tveggja má segja að hafi stundum líkst opnu beinbroti áður fyrr áður en þær komu út sem konur og gengu í gegnum sárameðferð í kjölfarið. Þær tvær hafa ásamt nokkrum fleirum íslenskum trans konum verið mest áberandi í gegnum árin og segja má að Anna hafi brotið ísinn með viðtali við Nýtt líf árið 1994. Blaðamaður vann þá hjá tímaritaútgáfunni og man eftir konunni sem kom inn á ritstjórnina til að hitta blaðamanninn sem tók þá viðtal við hana. Í þessu viðtali ætla þær báðar að segja sögu sína.
Gerðist karl
Anna fæddist í Reykjavík, nánar tiltekið í Höfðaborg. Þar voru tvær stærðir íbúða, flestar voru 39 fermetrar og tveggja herbergja en hinar voru 31 fermetri og með einu herbergi.
Hver er fyrsta æskuminningin? „Ætli það hafi ekki verið á gamlárskvöld þegar var verið að skjóta upp flugeldum þegar ég var svona tveggja þriggja ára.“
Anna bjó hjá foreldrum sínum fyrstu árin en þvældist síðan á milli barnaheimila eins og hún orðar það. Ástæðan? „Sumum þótti góður sopinn,“ segir hún og á við föður sinn. „Í fimm ár var ég í Reykjahlíð í Mosfellsdal. Það var mjög gott að vera þar. Það var ljómandi gott. Ég er allavega mjög sátt við það. Ég var þar allt árið og mamma og eldri systkinin komu stundum í heimsókn og ég fór heim um jólin.
Ég hef alltaf litið svo á að þetta hafi reddað mér, hafi hjálpað mér mikið út af aðstæðum heima. Mér leið ljómandi vel þarna upp frá. Það voru mismörg börn á heimilinu. Þau komu og fóru. Ég gekk í Brúarlandsskóla og síðar Varmáskóla eftir að hann var tekinn í notkun. Þar voru mínir vinir þarna í sveitinni.“
Anna segist alltaf hafa dreymt um að verða stelpa. „Það var ekkert hægt að gera neitt í málinu. Maður þurfti bara að lifa með þetta inni í sér.“ Talaði hún við einhvern um þetta? „Nei, það var ekki hægt. Við hvern átti ég að tala? Reyndar - áður en ég fór í Reykjahlíðina þá bjó einn strákur í næsta húsi við mig sem kom seinna út sem hommi. Það kom í ljós frá fyrstu tíð. Það var löngu fyrir kynþroska sem við vorum farin að klæða okkur í föt af systrum okkar. Hann var alltaf opinn með sínar tilfinningar. Ég hins vegar fór í þveröfuga átt. Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall,“ segir Anna sem gerði í því að verða karlmannlegri heldur en margir karlar. „Ég fór til sjós. Ég fór á togara þegar ég var fjórtán ára en baráttan gekk út á að halda aftur af þeim tilfinningum. Ég fór svo í Vélskólann og kláraði hann, gifti mig og eignaðist þrjú börn.“
Hvernig var að vera innan um alla karlana á sjónum vitandi að hún væri stelpa? Ung kona. „Hvað átti ég að gera? Við hvern átti ég að tala? Það var enginn til að tala við.“ Ekki heldur þegar hún var orðin fullorðin? „Nei. Það var bara enginn.“ Og Önnu leið illa út af þessu. „Já, það er alveg rétt.“
Kostaði heilmikil læti
Anna og eiginkonan skildu árið 1984 og þá fór boltinn að rúlla - en hann stöðvaðist þó. „Þá hafði ég í fyrsta skipti samband við lækni út af þessu. Hann fylltist hofmóði við að reyna að bjarga mér frá þessum örlögum. Hann ætlaði að reyna að lækna mig og ég mætti í einhver skipti til hans upp á geðdeild. Svo einn daginn þegar ég mætti í fyrir fram boðað viðtal þá var hann ekki við og ég fékk ekki nýjan tíma. Hann var búinn að gefast upp á mér. Ég fór aftur inn í skápinn og hélt mér þar næstu árin.“
Anna slasaðist á sjó haustið 1987 og fór í land í framhaldinu. Hún var í öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð með öðru og aðstoðaði við innritunina.
Nýr námsráðgjafi hafði hafið störf við skólann og segist Anna hafa tekist að ná svona þrælvel inn á hana. „Þá fór eitthvað að ganga hjá mér með henni. Ég opnaði mér fyrir henni og í framhaldi af því rúlluðu hlutirnir. Ég fór í viðtöl hjá tveimur geðlæknum. Það endaði með því að ég fór út til Svíþjóðar og átti von á einhverri aðstoð þar en sú aðstoð brást. Ég fór að berjast við kerfið og það var ekki fyrr en í árslok 1992 sem ég fékk heimild til að fara í meðferðarferlið með hjálp læknis í Uppsölum. Og eftir það gekk bara ljómandi vel og ég fór í aðgerðina árið 1995. Það kostaði heilmikil læti því það var svo strangt kerfið í þá daga. Ísland kom ekki nálægt þessu. Þetta var óþekkt á Íslandi. Námsráðgjafinn vissi um þetta og þessir geðlæknar vissu um mína stöðu en þeir voru ekkert að auglýsa þetta. Þvert á móti var sagt við mig að tjá mig ekkert um þetta opinberlega.“
Arna Magnea bendir á að fyrstu lögin sem snerta á málefnum trans fólks á Íslandi hafi verið sett árið 2012. „Þegar ég kom til Íslands í byrjun árs 2005 eftir nám í Englandi og var að reyna að fá hjálp þá var mér mætt með hroka eins og ég væri geðsjúklingur. Þú getur ímyndað þér hvernig það var í hennar tíð. Enn erfiðara.“
„Ég var í nefndinni sem samdi þessi lög 2010-2012,“ segir Anna.
Mun færri fóru á þessum tíma í gegnum ferlið í Svíþjóð en í dag. Árið 1995 þegar Anna fór í gegnum það voru það ellefu einstaklingar að hennar sögn. Aðgerðin gekk vel en þó komu upp slæmar blæðingar. „Að öðru leyti gekk þetta ljómandi vel.“
Formaður transsexual félagsins
Anna bjó í Svíþjóð í sjö ár og vann hjá orkuveitunni í Stokkhólmi og þar í landi kom hún út sem trans kona. Hún segir að umræðan um trans fólk hafi hafist hér á landi þegar tekið var við hana sjónvarpsviðtal fyrir RUV í desember 1994 og var það í framhaldi af viðtalinu í Nýju lífi og segir hún að umræðan hafi farið fram hjá sér þar sem hún bjó ekki á landinu. „Ég var þá þegar þekkt í Svíþjóð en ég var þá formaður samtaka transsexual fólks í Svíþjóð því á þessum árum var gerður skýr greinarmunur - orðtakið transgender var tæplega orðið raunveruleiki en það var gerður skýr greinarmunur á því hvort fólk væri transsexual eða transvestite. Ég var formaður transsexual félagsins.“
Anna sóttist ekki eftir því að verða formaður félagsins en örlögin ætluðu henni annað. „Ég var í þessu félagi og það kom upp árið 1992 að náungi var að dunda sér við það að skjóta á innflytjendur á nóttunni í Svíþjóð. Hann notaði „lasermið“ til að skjóta á fólkið og eitthvað var hann mistækur af því að hann drap ekki nema held ég tvær manneskjur af þeim sem hann reyndi að drepa. Seinna kom upp sá kvittur að þessi maður væri trans. Þáverandi stjórn félagsins hljóp öll beint í felur. Í staðinn fyrir að koma út og reyna að svara fyrir okkur og leiðrétta orðróminn þá hljóp hún sjálf í felur. Á næsta aðalfundi á eftir mætti ein úr stjórninni og skilaði lyklunum og þá neyddist ég til að taka að mér formennskuna. Það var ekki af mínum vilja en ég hafði verið með kjaftinn upp í loft og krafist þess af stjórninni að hún kæmi fram og reyndi að verja okkar málstað. Þess vegna lenti ég í því að vera formaður.“
Einelti
Anna flutti heim til Íslands sumarið 1996. Hún sótti um um það bil sjötíu störf en fékk ekki vinnu. „Það var ekki fyrr en það vantaði skyndilega vélstjóra á togara austur á Eskifirði. Útgerðarstjórinn hringdi í mig og vildi fá mig austur sem ég gerði. Ég fór austur og var mikið fyrir austan næstu árin á eftir í afleysingum á milli þess sem ég var hjá Hitaveitu Reykjavíkur og Orkuveitu Reykjavíkur og það gekk ljómandi vel.“
Það sneru sumir baki við trans konunni þegar hún flutti til Íslands og var hún lögð í einelti þegar hún vann hjá Hitaveitu Reykavíkur en málið leystist síðan með hjálp góðs fólks.
Anna segir að eineltið hafi í sjálfu sér ekki haft áhrif á sjálfstraustið. „Ég vissi alveg hvað ég var að gera en það var leiðinlegt að þurfa að standa í þessu.“ Hún segir að þeir sem lögðu sig í einelti hafi aðallega verið karlar og jafnvel karlar sem hún hafði þekkt áður en hún fór í kynleiðréttingarferlið og lokuðu þeir á öll samskipti. „Smám saman næstu árin tókst mér að vinna mér inn hæfilegt traust. En það var samt ekki fyrr en 2006 sem stóra breytingin varð. Ég var ekki lengur „the only trans in the village“. Það voru fleiri sem komu út.“
Anna segir að einhverjir hafi beðið sig afsökunar. Gat hún fyrirgefið þeim? „Já, að sjálfsögðu gerir maður það.“ Hún segir að þetta sitji ekki í sér í dag. „Það er löngu búið.“
„Þetta“
Arna Magnea bætir við að hægt sé að taka fólki en að gjörðir þess sitji svolítið eftir. „Ég er á dásamlegum vinnustað sem kennari, en ég kenni í Grunnskólanum á Seltjarnarnesi, þar sem ég bý svo vel að stjórnendur hafa í rauninni alltaf staðið með mér. Það hefur verið þroskaferli. Það þarf stundum ekki að meina neitt illt en þegar maður er svona ein og öðruvísi verður maður stöðugt fyrir alls konar öráreiti. Á tímabili var mikið fjallað um trans í fréttum og maður gat ekki farið inn á kaffistofu eða í mat öðruvísi en maður þyrfti liggur við að svara fyrir allt sem snertir trans málefni. Þetta var svo mikið á því tímabili þegar þetta var í umræðunni að ég bara hætti að fara í kaffi. Og þá var ég tekin á teppið fyrir að vera „anti social“. Ég lenti líka í því að það var fólk sem neitaði að tala beint við mig og spurði skólastýruna hvort „þetta“ mætti vinna þarna. Ég var ekki manneskja í huga viðkomandi. En sú manneskja var á tímabundinni ráðningu og var ekki boðið að vera áfram. Hún fékk samt strax vinnu í öðrum skóla.
Það sem mér finnst vera svo vont við menntakerfið er að við vitum að það eru kennarar sem eru rosalega transfóbískir sem eru að skrifa meðal annars um mig og Önnu; við erum fjórar sem erum mest áberandi. Og það er bara mjög ógeðfellt sem er verið að skrifa. Ég kvartaði við Kennarasamband Íslands en það gerist ekkert. Ein sem er að blogga skrifaði að ég væri að eyðileggja börnin á Seltjarnarnesi. Þannig að maður hefur lent í alls konar. Það var til dæmis ein manneskja stöðugt að rangkynja mig og ég hef aldrei unnið á þessum vinnustað nema sem Arna Magnea Danks. Hún sagði alltaf „hann“. Ég var þá tiltölulega snemma í ferlinu og var að kvarta undan þessu og þá var sagt að ég yrði bara að skilja það að ég væri mjög karlmannleg. Ég er það ekki lengur en ég var það kannski á þessum tímapunkti. Mér fannst þetta samt mjög sárt. Af hverju átti ég að skilja það? Eigum við trans konur að skilja það að það sé verið að rangkynja okkur bara af því hvernig við lítum út? Það skiptir ekki máli hvort við séum karlmannlegar eða kvenlegar. Við eigum það allar skilið að það sé borin virðing fyrir því hverjar við erum. Þannig að ég tengi við þetta - það er oft erfitt að vera á vinnustað þegar fólk er ekki endilega á móti viðkomandi en það er stöðugt öráreiti af því að maður er eins og Anna orðaði það „the only trans in the village“.“
Umskiptingur eða álfabarn
Arna Magnea fæddist tveimur mánuðum fyrir tímann í Reykjavík og segir hún að móðir sín hafi snemma orðið mikill sjúklingur. Hún talar um erfitt heimilislíf og var hún og yngri systir hennar sendar reglulega í fóstur í Sandgerði á sitthvort heimilið frá unga aldri. Hún segir að hún hafi verið eins og jójó á milli þess heimilis og fjölskylduheimilisins þangað til hún var tólf ára. „Þetta er löng og erfið saga full af sársauka.“
Fyrir utan erfitt heimilislíf segist Arna Magnea hafa orðið fyrir grófri árás átta stráka þegar hún var ellefu ára. „Þetta byrjaði sem líkamlegt ofbeldi og fór út í kynferðislegt ofbeldi þannig að ég lokaðist. Ég vissi alltaf að ég væri ekki strákur en ég vissi ekki hvað ég var. Ég lýsti því lengi vel að ég hafi dáið þennan dag. Fram að þessu var ég mjög frökk. Fram að þessu hafði ég verið að reyna að vera ég sjálf. Átta ára gömul var ég dansandi um í skóm af mömmu með varalit út á kinn. Ég var stöðugt að reyna að finna sjálfa mig. Hver ég var og hvað ég var. Það eina sem ég vissi fyrir vissu var að ég var ekki strákur! Þegar ég var mjög ung hélt ég fyrst að ég væri umskiptingur eða álfabarn sem ég hélt að hefði verið skilið eftir og mig dreymdi um að álfamamma mín myndi koma og sækja mig. Ég trúði að hún byggi í nóttinni og gæti bara séð mig í tunglsljósinu. Þess vegna laumaðist ég oft út seint á kvöldin. Seinna dreymdi mig um að ég væri bara geimvera sem hefði óvart dottið inn í rangan líkama. Ég var stöðugt að reyna að finna einhverja útskýringu en fann í raun enga raunverulega útskýringu. Ég var bara púsl í púsluspili lífsins sem passaði hvergi.“
Þrjátíu ár liðu að hennar sögn þangað til hún sagði frá ofbeldi strákanna í sinn garð. Hvers vegna sagði hún ekki fyrr frá því?
„Það var ekki hægt,“ segir Anna.
„Ég bar þessa skömm,“ segir Arna Magnea. „Ég ólst upp við það að vera kölluð skrýtin, furðuleg, frík og stelpustrákur. Ég þótti vera skrýtin og furðuleg þannig að þá ber maður þetta. Ég kenndi sjálfri mér um þetta. Þetta var mér að kenna. Þeir réðust á mig af því að ég var frík. Fjórir þeirra voru úr bekknum mínum og ég held að þeir hafi ekki almennilega gert sér grein fyrir því hvað þeir voru að gera. Ég vil ekki fara út í smáatriði. Það er erfitt. Ég er búin að vinna mjög vel úr þessu. Ég var í stífri áfallameðferð í á fimmta ár í gegnum geðheilbrigðisteymi Landspítalans, bæði hóp- og einstaklingsmeðferð. Og ég er búin að vinna mjög vel úr þessu. Það er ekkert endilega auðvelt að tala um það. Ástæðan fyrir því að ég tala um þetta er til að fólk geri sér grein fyrir því að það voru til trans börn á sjöunda og áttunda áratugnum. Allt trans fólk sem er komið yfir miðjan aldur eða á fullorðinsár var eitt sinn trans börn. Það bara fékk ekki að vera það sem það var. Í einu elstu skipulögðu trúarbrögðum sem voru í Mesópótamíu fyrir sex þúsund árum var gyðja, Inanna, sem gat skipt um ham og má segja að í nútíma skilningi hafi hún verið, hún, hann og hán. Hofgyðjur hennar voru, meðal annars, trans konur. Þannig að þetta hefur fylgt mannkyninu frá örófi alda og í raun ekki orðið að tabúi fyrr en með nýlenduárunum og áhrifa Vesturlanda á önnur menningarsvæði.“
Þrettán ára gömul varð Arna Magnea hrifin af strák. Það var fyrsta ástin. „Og hann náttúrlega vildi ekkert með mig hafa. Þannig að það var líka fyrsta ástarsorgin. Ég var tvítug næst þegar ég þorði að vera í einhverju sambandi. Á þessum tíma var sagt að ef fólk væri hinsegin þá fengi það eyðni. Þá fengi það AIDS og dæi. Ég var alltaf bara drulluhrædd frá þrettán ára aldri þegar ég byrjaði að fá hvolpavit. Ég var stöðugt hrædd við það að ef ég yrði hrifin af einhverjum strák og ef ég myndi bara kyssa einhvern þá fengi ég AIDS og myndi deyja. Fáfræði mín var það mikil. Þá var ekkert Internet. Ég var viss um að ég fengi eyðni og myndi deyja ein og yfirgefin og enginn myndi vilja sjá mig. Þannig að óttinn var gífurlegur.“
Arna Magnea segist hafa komið út gagnvart móður sinni fjögurra ára gömul og sagði: „Mamma, mamma, ég er ekki í speglinum!“ „Þetta er mín elsta og skýrasta minning. Tráma minning um að sjá ekki sjálfa mig í speglinum og að vera mætt með pirringi og reiði. Fyrsta höfnunin gagnvart mínum innri sannleika, að ég væri stelpa en ekki strákur. Ég vissi ekki að ég væri trans. Þetta orð var ekkert í kringum mig og ekki mikið um það í almennri umræðu á sjöunda áratugnum.“
Nauðgað
Arna Magnea flutti til Englands tuttugu og sex ára gömul þar sem hún var í leiklistarnámi. Þar kom hún fyrst út sem tvíkynhneigð.
„Ég var líka búin að vera í skápnum hvað það varðar frá unglingsaldri. Þrjátíu og tveggja ára gömul var ég að lesa grein í Metro þegar ég var í strætó. Það var lítið viðtal inni í miðju blaðinu við trans konu frá Blackpool. Ég las það aftur og aftur og aftur. Þetta var ég! En ég upplifði líka ótta.
Ég kom út í Englandi og ég byrjaði ferlið í Englandi árið 2003. Þá þurfti maður að lifa í þessu rétta kynhlutverki í tvö ár og ég var að berjast við það. Mamma dó í millitíðinni, í lok janúar 2004, og átti ég tíma hjá sérfræðingi trans teymisins á Kings Cross-spítalanum þannig að vegna andláts og jarðarfarar mömmu þurfti ég að byrja ferlið upp á nýtt eftir að ég kom aftur út til Englands.
Mér féllust svolítið hendur og ég kynntist fólki sem var að fá hormóna á svörtum markaði. Ég tók á þessum tíma þátt í fegurðarsamkeppni trans kvenna og ég var mjög grönn og nett. Ég eignaðist alls konar vini þarna, bæði trans konur og alls konar fólk sem sóttist sérstaklega í félagsskap trans kvenna. Löngu seinna lærði ég að til er alveg sérstakt orð yfir slíka einstaklinga: „Trans chasers.“ Ég kynntist einum slíkum mjög vel og taldi hann vera vin minn þar sem hann kom alltaf vel fram við mig, rangkynjaði mig aldrei og virtist aldrei skammast sín fyrir mig á almannafæri sem því miður var oft raunin á þessum tíma. Við, trans konurnar, vorum oft faldar og aðeins elskaðar á nóttunni en hunsaðar í dagsljósinu. Þessi vinur minn fékk að gista hjá mér eina nóttina seint í nóvember 2004 þar sem hann hafði misst af síðustu lestinni heim en við höfðum verið í partíi saman. Um nóttina, þegar ég var sofandi, réðst hann á mig og nauðgaði mér. Ég reyndi að kæra hann á lögreglustöð en þá var mér sagt að það þýddi ekkert fyrir fólk eins og mig að kæra, við værum hvort eð er alltaf á hnjánum. Það var átt við að við værum allar í vændi og værum allar að selja okkur. Ég var í sjokki og svaraði ekki síma og sat bara grenjandi í baðkarinu í sífellu að reyna að reyna að hreinsa atburðinn af mér. Ég brotnaði alveg.
Ég var ekki með neitt bakland. Ég var búin að koma út gagnvart vinum í Bretlandi en vinir til dæmis úr leiklistarskólanum voru ekki burðugir í að hjálpa mér í þessu.“
Ég barðist við sjálfa mig
Arna Magnea fór til Íslands í lok árs 2004 og ætlaði að reyna að leita sér hjálpar þar sem hún lenti á lokuðum dyrum í Englandi. „Ég fór til heimilislæknisins sem byrjaði á að setja mig í yfirheyrslu. Hann trúði ekki neinu sem ég sagði og hlustaði ekki á neitt sem ég sagði. Hann sagði að ég væri greinilega með áfallastreituröskun sem var eflaust rétt og væri bara eitthvað í ruglinu. Hann sagði að ég væri að yfirfæra þessar kvenlegu tilfinningar frá mömmu af því að hún dó í byrjun sama árs; að ég væri að reyna að upplifa mömmu í gegnum sjálfa mig.
Ég fékk uppáskrifað hrúgu af einhverjum geðlyfjum - kvíða- og þunglyndislyfjum. Ég fór með þau til Englands í byrjun mars. Ég kynntist þar fljótlega finnskri konu sem varð fljótlega ófrísk sem var skrýtið þar sem ég var einstaklega hrædd við kynsjúkdóma og notaði alltaf verjur. En kannski voru þetta örlögin, hver veit? Ég vildi gera það rétta í stöðunni þannig að ég fór með henni til Finnlands haustið 2005 og við áttum strák árið 2006. Það er elsti sonur minn sem býr í Finnlandi. Þarna var ég komin kyrfilega í skápinn og ég fór að segja við sjálfa mig nánast daglega, þetta var eins og mantra, að ég væri bara geðklofi. Ég væri bara kona að innan, karl að utan og ég myndi bara fæðast rétt í næsta lífi. Sem kona að innan og utan. Ég bað til hvaða guða og gyðja sem vildu hlusta og til alheimsins alls að ég myndi aldrei fæðast aftur annað en kvenkyns hvort sem ég væri býfluga, björn eða barn.“
Arna Magnea og barnsmóðir hennar voru saman þar til sonur þeirra var tæplega fimm mánaða en þá segist hún hafa gefist upp. „Ég var að veslast upp bæði líkamlega og andlega. Þetta var ekki gott samband og í raun komst ég að því í gegnum áfallameðferðina mörgum árum seinna að ég hafi verið í ofbeldissambandi allan þann tíma sem við vorum saman. Af virðingu við elsta son minn vil ég ekki fara nánar út í þessa sögu á þessum tímapunkti.“
Arna Magnea kom heim frá Finnlandi haustið 2006 og tveimur árum síðar kynntist hún íslenskri konu sem hún segir að sé yndisleg og frábær manneskja í alla staði og eignaðist með henni tvo syni. „Ég varð samt alltaf þunglyndari og þunglyndari og var alltaf að reyna að laga mig. Ég fór til alls konar heilara að reyna að laga sjálfa mig. Ég fór í alls konar meðferðir hingað og þangað. Á þessum tímapunkti var ég í algjörri afneitum gagnvart því að ég væri trans og var með alls konar afsakanir fyrir þessari vanlíðan og þá helst að ég væri bara geðveik. En sama hvað ég gerði þá gat ég ekki breytt því sem ég er og hef alltaf verið. Á endanum leitaði ég á náðir sálfræðings hjá trans teyminu sem hafði hjálpað mér áður út af áfalli og var sálfræðingurinn og manneskjan sem ég sagði fyrst frá nauðguninni. Ég hafði árið 2012 sagt henni frá því sem hafði gerst haustið 1982 þegar ég var ellefu ára. Hún hafði ekki kveikt á perunni þá og taldi mig í raun vera samkynhneigðan eða tvíkynhneigðan mann. Hún var ekki orðin fróð um trans málefni á þessum tímapunkti eins og þegar ég kom til hennar í lok árs 2017. Einnig dró ég töluvert úr hópárásinni og sagði lítið sem ekkert frá hvað ég taldi ástæðuna vera á bak við árásina, enda var frásögnin 2012 fyrsta skiptið sem ég sagði annarri manneskju frá hópárásinni og skömmin var ennþá svo mikil að ég gat ekki sagt henni frá öllu sem gerðist. Ég sagði henni að um líkamsárás hefði verið að ræða og það var hún sem gerði mér í fyrsta skipti grein fyrir því að mér hafði verið nauðgað þrátt fyrir að heyra aðeins af því þegar þeir neyddu mig til að kyngja úldna fiskhræinu en ekkert um þegar einn af þeim tróð einnig úldnu fiskhræi inn í mig. Ég sagði henni réttilega frá því að ég mundi ekkert eftir að ég kom heim eftir árás strákanna. En ég sagði henni aldrei að það síðasta sem ég man áður ég fór nánast í algjört blackout næstu mánuði á eftir var blóðið og fiskhræið sem lak niður klósettsskálina þar sem ég sat grátandi, útæld og auðmýkt.“
„Þegar ég var svo alveg að gefast upp árið 2017 bað ég þennan sama sálfræðing, sem í millitíðinni hafði menntað sig til þess að starfa fyrir trans teymið, um að bjarga mér frá því að vera trans af því að ég vildi ekki missa konuna mína. Ég vissi samt alveg sannleikan sjálf um hvað ég er og hef alltaf verið. Ég bara gat ekki samþykkt það vegna innri og ytri fordóma en ég óttaðist að missa fólk náið mér ef ég kæmi út. Ég barðist hatrammlega við sjálfa mig. Ég ákvað að eina leiðin til að bjarga sjálfri mér frá útskúfun og konunni minni frá þeirri skömm að hafa verið plötuð öll þessi ár var að ég myndi lenda í slysi og deyja. Ég planaði slysið í smáatriðum, einnig tímasetninguna, og ég fór yfir planið aftur og aftur, nótt eftir nótt. Það var svo eina slíka nótt, aðfaranótt 26. mars, að konan mín sem alltaf svaf eins og steinn vaknaði um miðja nótt og sá mig sitjandi í myrkrinu frammi í stofu. Ég var alveg hætt að sofa á þessum tímapunkti. Hún hafði miklar áhyggjur af mér og hafði aldrei séð mig svona langt niðri áður. Hún gekk á mig og spurði mig hvort ég væri hommi. Ég sagði: „Ef það væri svo einfalt.“ Við það brotnaði einhver stífla og ég sagði henni að ég væri trans. Það varð þögn í smátíma og svo sagði hún: „Þá veistu að við erum skilin.“ Við fórum samt í fjölskylduráðgjöf hjá Samtökunum 78 og líka í gegnum Reykjavíkurborg og reyndum að vinna rosalega vel úr þessu. Við hættum til dæmis ekki að búa saman fyrr en hálfu ári seinna. Hún var ekki til í að maðurinn hennar hafi alltaf verið kona í dulbúningi. Það var mjög erfitt fyrir hana sem gagnkynhneigða manneskju að gútera það. Þetta var mjög erfitt fyrir konuna mína en við ákváðum að búa í sama hverfi og við búum núna nálægt hvor annarri og samkomulagið er mjög gott. Núna er hún minn besti vinur. Ég heyri í henni mjög reglulega og hún kemur í kaffi til mín og ég fer í kaffi til hennar. Hún er dásamleg manneskja og frábær mamma.“
Arna Magnea upplifði þarna ástarsorg ofan á andlega vanlíðan sem fyrir var. „Þetta var mjög erfitt.“
Viðbrögð fólks voru misjöfn eftir að Arna Magnea kom út sem trans kona. Sumt fólk á Íslandi sagði að hennar sögn að þetta væri of erfitt fyrir það. „Aðrir urðu transfóbískir og ógeðslegir strax. Þeir bara hurfu. Maður hætti að fá boð um að hitta fólk.“
Drep
Arna Magnea segist vera mjög hamingjusöm í dag og líða vel í eigin skinni og hún er búin að fara í gegnum allt kynstaðfestingarferlið „Það var ekki sársaukalaust. Ég fór fyrst í kynstaðfestandi aðgerð á Íslandi árið 2020 sem mistókst og ég var nærri því dáin. Ég fékk sýkingu og það þurfti að loka leggöngunum sem var mikið áfall. Það var mjög truntulegt hvernig læknirinn sem framkvæmdi báðar þessar aðgerðir kom fram. Má ég segja frá því? Nú er ég að taka allt of mikinn tíma frá Önnu. Ég fór í aðgerðina 23. nóvember 2020. 8. desember var ég búin að vera hringjandi dag eftir dag í lýtalækninn og upp á spítala af því að ég var að farast. Ég var að deyja. Ég svitnaði af kvölum. Ég er samt ekki með lágan sársaukaþröskuld. Þannig að fyrir náð og miskunn komst ég til læknis sem sagði að saumarnir væru að losna og fór ég í neyðaraðgerð um kvöldið. Ég vaknaði þegar ég var enn á skurðborðinu og sagði læknirinn orðrétt að það væri komið drep inni í mér og að hann hafi þurft að skafa allt draslið út og loka leggöngunum en að ég kæmi bara aftur til hans eftir um sex mánuði og hann myndi þá laga þetta.
Ég grét og bað hjúkrunarfræðing sem var þarna um að svæfa mig. Þá var ég alveg búin. Ef ég hefði ekki átt þessa stráka mína hefði ég gert eins og Wirginia Wolf - ég hefði fyllt vasana fulla af grjóti og gengið í sjóinn. Og ég var mjög langt niðri. Það var Pieta sem hjálpaði mér og eftir að hafa verið hjá þeim í meira en ár þá komu þau mér að hjá geðheilbrigðisteymi Landspítalans þar sem geðheilbrigðisteymi heilsugæslunnar taldi mig of flókna og erfitt tilfelli út af áfallasögu - bæði vegna ofbeldis og annars þegar ég var yngri fyrir utan að vera trans.“
Arna Magnea segir að tveimur árum eftir aðgerðina hafi henni verið sagt að ekki væri hægt að laga hana hér á Íslandi þannig að barátta fyrir því að komast að erlendis hófst. „Stuttu eftir þetta kom í ljós að ég var með sortuæxli í öðru eyranu og það var mjög agressíft en sem betur fer náðist að skera það í burtu. Það var samt óvissa í fjóra til fimm mánuði en þá vissi ég ekki hvorum megin við línuna ég var. Krabbameinsskurðlæknirinn hjálpaði mér síðan að komast í samband við góðan lækni á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg, Dr Gennaro Selvaggi í byrjun árs 2023.
Aðgerðin, sem kallast „peritoneal pull through“, var svo framkvæmd 11 desember 2023 þar sem lífhimnan var notuð til að búa til vegg legganganna. Þetta er flóknari aðgerð en hefðbundin „vaginoplasty“ og þurfti þrjá skurðlækna til að framkvæma aðgerðina. Eftir því sem ég veit best erum við bara tvær trans konurnar sem höfum farið í þessa aðgerð sem var upprunalega þróuð af Rússum til að bjarga konum sem höfðu misst leggöng eftir krabbameinsmeðferð. Svona aðgerð er að ryðja sér til rúms á meðal trans kvenna í heiminum, en ég var fyrsta trans konan í Evrópu sem fór í þessa aðgerð í Evrópu, en hingað til hafa þær aðallega farið fram í Tælandi, Kanada og Bandaríkjunum.
Ég kom síðan heim og byrjaði á því að blæða nærri því út og fór upp á kvennadeild þar sem þurfti að stoppa blæðinguna. Þannig að þetta tók á og næstu mánuðir á meðan allt var að gróa tóku virkilega á en sænsku læknarnir hugsuðu vel um mig og voru reglulega myndsímtöl þar sem var farið yfir allt. Þeir fylgdu mér svo eftir í tæpa níu mánuði áður en íslenski kvensjúkdómalæknirinn tók alveg við eftirlitinu. Því miður náðist ekki samkomuleg við Svíana um að senda fleiri trans konur þangað. Ég get ekki þakkað Sahlgrenska og fólkinu á þeim spítala nægilega mikið. Ég lifi góðu lífi í dag andlega, líkamlega og kynferðislega. Það er ekki neitt vandamál.“
Opið beinbrot
Það tók tíma að komast á þann stað. „Það tók tíma og ég sé ekki eftir neinu. Allan tímann var ég að velja að vera ég sjálf. Það eina sem ég sé eftir - samt get ég ekki séð eftir því af því að ég eignaðist þessi börn mín - er að ég fékk ekki að vera ég sjálf þegar ég vissi fjögurra ára að ég væri stelpa.“
Arna Magnea hefur fundið ástina aftur. Unnusta hennar er Magdalena Lukasiak sem er frá Póllandi. Hún hefur búið á Íslandi í áratug. Arna Magnea var búin að vera einhleyp í sex ár þegar þær kynntust. Þær eru trúlofaðar og ætla að gifta sig í febrúar á næsta ári. Magdalena er lærður ljósmyndari og stríðsfréttaritari og er með meistaragráðu frá háskóla í Varsjá. Þá er hún einnig með íslenskt leyfisbréf sem kennari.
Arna Magnea segir að sambandið hafi verið erfitt til að byrja með þar sem þær eru báðar með áfallasögu. „Það var mikið sem þurfti að vinna ofan af. Magdalena kom út sem lesbía þegar hún var þrettán ára í Póllandi og var eiginlega neydd í samband með miklu eldri manni. Eins og stundum er sagt við lesbíur átti hún að finna rétta typpið og þá átti bara allt að vera í lagi. En maður er það sem maður er. Maður fæðist það sem maður er. Í dag erum við sterkasti stuðningur hvor annarrar.“
Viðtalið tekur um þrjá og hálfan tíma og situr Arna Magnea í stofusófanum sem búið að að taka út svo hann er eins og svefnsófi en hún þarf að hafa eitthvað undir slasaða fætinum. Við Anna sitjum hins vegar við lítið borðstofuborð þar sem tertur standa á tertudiskum. Og Arna Magnea segir frá slysinu sem hún lenti í 9. ágúst. Hún hefur ekið mótorhjólum í 38 ár og var þennan dag að hjóla á mótorhjóli með hliðarvagni sem hún hafði fengið lánað. „Ég lenti svo illa í hjólförunum þannig að hjólið skoppaðist til hliðar og lenti á bíl og þar fór stýrið og handbremsan úr sambandi og ég lenti síðan á fullum þunga á vegriði.“ Opið beinbrot varð afleiðingin. „Sköflungurinn fór í mask og það var blæðandi bæði fyrir aftan og framan. Magdalena fékk lánað belti og stöðvaði blóðrennslið. Það má segja að hún hafi bjargað lífi mínu.“
Fordómar
Konurnar tvær, Anna og Arna Magnea, eru spurðar hvernig Íslendingar hafi almennt komið fram við þær. „Ég hélt upp úr 2006-2007 að þetta væri mikið til búið. Ég fann aldrei fyrir neinu eftir það,“ segir Anna, „en það kom fyrir að maður sá að einn og einn bjáni var með áróður gegn okkur. En það var ekki neitt á við það sem hafði verið áður. Svo flutti ég til Tenerife árið 2019 og ég varð ekki vör við neitt þar. Svo fór ég að heyra um bakslagið á Íslandi í kringum 2023.“
Arna Magnea nefnir skilaboð um að henni yrði komið fyrir kattarnef, að það yrði þaggað niður í henni, hún yrði dregin á bak við skúr og skotin í hnakkann og að hún myndi borða byssukúlu. „Síðan voru alls konar lýsingar á því hvað maður væri. Svo voru kynferðislegar lýsingar þar sem fólk var að fantasera um mann. Lögfræðingur sem ég talaði við fór með þetta til lögreglunnar. Þá var ekki komin góð haturslöggjöf og hún er ekki enn komin en það er búið að bæta hana aðeins. Það er búið að gera einhverja málamiðlun.“
Arna Magnea segir að hvað Facebook-síðu sína varðar þá hafi hún byrjað að blokkera fólk sem kom ekki vel fram á netinu. Hún svarar ekki viðkomandi heldur blokkerar. „Áður svaraði ég alls konar skilaboðum, ekki fyrir sjálfa mig heldur hafði maður áhyggjur af því að fólk sem var á miðjunni myndi trúa öllu ógeðinu ef það heyrði ekkert á móti því. Það er svo miklu auðveldara að hata fólk sem þú hvorki sérð, heyrir í eða þekkir persónulega. Með því að svara vonaðist ég til þess að fólk sæi að ég, sem trans kona, væri bara fólk eins og það en ekki skrímsli. Ekki eitthvað fyrirbæri eða frík. Við erum bara fólk eins og annað fólk.“
Hefur Anna upplifað eitthvað í líkingu við þetta eftir að hún flutti til Íslands í sumar? „Ég hef ekki persónulega orðið fyrir neinu fyrir utan það að ég er búin að blokkera fullt af fólki.“
Hvað ræður fordómum? Eru það áhrif þjóðfélagsins eða uppeldi? Eða bæði?
„Að hluta til er þetta þjóðfélagið,“ segir Anna, „en það er líka uppeldið. Það er svo margt sem spilar inn í þetta.“
„Fólk sem hefur þörf fyrir að meiða aðra einstaklinga er fólk sem líður ekki vel,“ segir Arna Magnea.
Eineltið sem Anna varð fyrir í vinnu kemur aftur til tals. Arna Magnea segir að rótin að slíku sé alltaf fáfræði. „En það er aldrei afsökun að maður hafi átt erfitt líf að vera vondur við einhvern annan. Uppeldi og líf okkar Önnu var kannski ekki það auðveldasta. Ekki erum við að leggja fólk í einelti. Þannig að það er aldrei afsökun þótt maður hafi átt erfitt líf því við eigum alltaf val. Guð gaf okkur frjálsan vilja. Hann gaf okkur val. Þannig að við höfum alltaf val á hverjum einasta degi hvort við viljum vera góð manneskja eða ekki. Við getum alveg haft vondar hugsanir og það hafa allir og hugsað öðru fólki þegjandi þörfina. En hvernig við komum fram við annað fólk og hvernig við veljum að koma fram við annað fólk segir allt um okkur. En þegar við erum farin að hlusta á svona fáfræðiraddir og falla inn í einhvern bergmálsheim þá elur það á ótta. Og óttinn er vegurinn að reiði og hatri. Þetta fólk sem er að ráðast á trans fólk í dag í ræðu, riti og verki óttast að það sé verið að grafa undan einhverjum áveðnum gildum. Það er búið að trúa ákveðnum mýtum um að það sé verið að eyðileggja fólk með því að trúa þeim þegar þau segjast vera trans og þau eru jafnvel farin að líta á sjálf sig sem einhverja krossfara þar sem þau þurfa að vernda börnin gagnvart innrætingu trans fólksins. Og þetta er náttúrlega fáfræði. Hvaðan koma fordómarnir og hatrið, reiðin og óttinn? Þau eru ekki tilbúin að meðtaka það að allt fullorðið trans fólk var einu sinni trans börn. Þetta er meðfætt. Alveg eins og fólk verður ekki örvhent átján ára.“
„Mér var stundum strítt á því í skóla að vera örvhent,“ segir Anna. „Maður þurfti að skrifa eitthvað á töfluna og þegar ég var orðin þreytt í vinstri hendi þá hélt ég áfram með hægri hendinni. Það þótti hinum krökkunum ægilega sniðugt.“
Aftur að fordómum og leiðinlegri hegðun. Tengist það líka skilningsleysi, fáfræði og illsku? „Það er allt þetta. Allur pakkinn,“ segir Anna. „Það er ekki hægt að orða þetta öðruvísi. Oft og tíðum er það svokallað hópefli þegar einn byrjar, einhver annar er aktívur og kannski skemmtilegur og þá dregur hann oft allan hópinn með sér. Þannig myndast heill hópur gegn okkur eins og gerðist hjá Hitaveitunni á sínum tíma. Það var bara einn maður sem startaði þessu.“
Álfar, huldufólk og hafmeyjar
Hvað hefur verið sárast?
„Það er svo margt sem er búið að ganga á,“ segir Anna og hugsar sig um. „Í dag er ég eiginlega búin að fyrirgefa öllum nema helst þeim sem eru á fullu í dag.“
Hvað finnst Örnu Magneu hafa verið sárast? „Alveg eins og Anna sagði áður, maður fyrirgefur fólki, ekki fyrir fólkið heldur fyrir sjálfan sig af því að maður vill ekki vera að burðast með einhvern biturleika. Maður ákveður að fyrirgefa fólkinu. Maður er með ákveðið trauma. Ég hef verið greind með flókna áfallastreituröskun og maður reynir að vinna úr því en það koma triggerar. Maður fær martraðir. Það er ýmislegt sem er erfitt.
Það sem maður reynir að gera dags daglega er að láta ekki myrkrið soga sig niður. Ekki bara fyrir sjálfan sig heldur fyrir börnin sín. Og þá reynir maður að fókusera ekki á hvað var erfiðast. Reynir ekki einu sinni að hugsa um hvað var erfiðast heldur fer maður að finna demantana í æskunni og finna demantana í lífinu. Minningarnar sem voru ánægjulegastar. Minningarnar sem voru góðar. Minningarnar þar sem maður fann frið. Ég gekk sem barn mjög oft niður að sjó og talaði við álfana og huldufólkið og hafmeyjarnar og sagði þeim frá hvað ég væri að upplifa. Það var mín leið. Enda sagði einn sálfræðingurinn sem ég fór til þegar ég var átta ára að ég væri náttúrubarn sem virtist vera í lagi.“ Arna Magnea kímir. „Maður horfir á þessar fallegu minningar.“ Hún segir að einn kennarinn hafi sent hana til sálfræðings þar sem hún virtist vera í eigin heimi en hún var fyrir örfáum árum greind einhverf en meira um það síðar. „Ég átti það til að detta út.“ Kennarinn hélt reyndar fyrst að hún heyrði illa en heyrnarmælingin kom eðlilega út.
Arna Magnea talar um afabræður sína í Hólkoti í Sandgerði þar sem hún var í fóstri frá unga aldri þangað til hún var orðin 12 ára og farin að vinna fyrir föður sinn eftir skóla og um helgar. Þar leið henni vel. „Það var ekki mikið um sætindi. Annar afabróðir minn vissi að ég elskaði rúsínur og þegar hann fékk sér jólakökusneið þá krafsaði hann rúsínurnar úr henni svo ég gæti fengið þær. Þeir sögðu aldrei að þeir elskuðu mann eða þætti vænt um mann en ég fann það og ég vissi að hann elskaði mig af því að hann gaf mér rúsínurnar sínar. Ég sagði Snævari Sölva, leikstjóra kvikmyndarinnar Ljósvíkingar, frá þessu og þessi saga endaði síðan í myndinni. Það var ýmislegt úr minni sögu sem rataði þar inn.“ Kvikmyndin Ljósvíkingar er um trans konu, sem Arna Magnea leikur, og hefur hún hlotið ýmsar alþjóðlegar viðurkenningar og verðlaun. „Ég var til dæmis að útskýra fyrir Snævari Sölva hvað það er að vera pankynhneigð og að það skiptir mig ekki máli hvernig fólk er - þetta er bara spurnig um hjarta en ekki parta. Og þessi setning rataði inn í myndina. Þessi mynd var algert kraftaverk og margir foreldrar trans barna og ungmenna hafa sent mér kveðjur síðan. Þetta skiptir þau miklu máli.“
Kvikmyndin er hjartnæm og jafnframt skemmtileg. Hvaða máli skiptir fyrir Önnu að myndin hafi verið framleidd upp á að fólk kynnist málefnum trans kvenna? „Ég er búin að sjá nokkrar svona myndir. Ég hef aldrei myndað mér neina skoðun.“
En þær opna svolítið fyrir skilning fólks.
„Það gerir það,“ segir hún.
0,02% íbúa
Nú er umræðan önnur en áður fyrr þegar þær tvær þorðu engum að segja frá. Núna er umræðan um trans fólk og trans börn uppi. Hvaða máli skiptir þetta fyrir þær?
„Ég get bara ekki svarað þessu,“ segir Anna.
„Ég var alltaf „hún“ og lít þannig á það,“ segir Arna Magnea. „Fyrir árásina þegar ég var ellefu ára var ég alltaf að rembast við að vera ég sjálf þó ég vissi ekki nákvæmlega hvað ég var. Stundum skildi ég ekki af hverju ég var ekki eins og systir mín. Ég bara fattaði það ekki og mér fannst það ekki meika sens. Þannig að ég á mjög auðvelt með að skilja þegar trans börn eru bara þau sjálf. Það er enginn að breyta þeim. Það á bara að leyfa þeim að vera þau sjálf. Það er verið að breyta nöfnum, leyfa þeim að prufa sig áfram með föt og hár, ekkert annað, og þegar þau verða ákveðið gömul fara þau í ráðgjöf í gegnum transteymi barna og ungmenna á BUGL. Þar er líka frekari ráðgjöf. Og það er verið að vinna með þeim. Þegar þau byrja kynþroska geta þau fengið blokkera sem eru afturkræfir og ef þau skipta um skoðun þá byrjar kynþroskinn aftur. Þau geta skipt um skoðun og þau mega skipta um skoðun.“
Arna Magnea segir að rannsóknir sýni að það sé ekki nema 1% trans fólks sem gengur til baka og meinar að það fólk hætti kynstaðfestandi ferlinu. Hún segir að talið sé að 70% af þessu 1% gangi til baka bara út af fordómum, ótta og fáfræði.
„Þrátt fyrir lögin um kynrænt sjálfræði 2019 þá þarf að hoppa yfir ákveðnar hindranir og í rauninni að sanna sig sífellt aftur og aftur. Kynvitundin kemur fram hjá börnum á milli þriggja til sex ára aldurinn. Það gerist auðvitað líka hjá trans börnum sem uppgötva að þau séu ekki alveg eins og þau eiga að vera. Það fer ekki saman hljóð og mynd. Ég vildi óska þess að samfélagið allt myndi trúa þeim og halda utan um þau því það eru í rauninni fá börn sem þurfa jafnmikið á stuðningi samfélagsins að halda eins og trans börn. En það eru fá börn sem mæta jafnmikilli andúð og hatri. Ég hef heyrt hjá starfsmanni í Hinsegin félagsmiðstöðinni að trans börn eru farin að mæta með sjálft sig í poka - þau eru farin að klæða sig kynhlutlaust - í hettupeysu og jogginggalla - og reyna að vera eins ósýnileg og þau geta. Þau koma sér inn í hinsegin félagsmiðstöðina, fara inn á klósett og fara í sín föt – trans strákarnir fara í sín strákaföt og trans stelpurnar í sín stelpuföt. En auðvitað eru föt bara föt og hvernig fólk klæðir sig ætti ekki að vera svona mikið mál. Í Hinsegin félagsmiðstöðinni fá þau að vera þau sjálf. En þau þora ekki lengur að vera þau sjálf úti í þjóðfélaginu. Þetta er breyting sem byrjaði fyrst eftir Covid en erfiðustu árin eru eftir að Trump komst til valda aftur 2025. Þetta eru búin að vera hræðileg ár.
Ugla Stefanía hefur unnið þrekvirki í þessum málum. Hún er alger valkyrja. Hún hefur sýnt fram á það í sínum fyrirlestrum að allt regnbogakortið, sem kemur að viðhorfum til trans málefna, er að súrna. Við erum ennþá öruggust hérna og hugsanlega á Spáni og nokkrum öðrum stöðum en það er að súrna allt kortið. Það er vegna þess að það eru gífurlega fjársterk öfgahægri fasistaöfl sem eru að dæla inn peningum í áróður gegn trans fólki, sérstaklega trans konum. Og þetta er vegna þess að þeim vantar lítinn, veikan blóraböggul til þess að sparka í vegna þess að þeir ráða ekki við raunverulegu vandamálin.
Hérna á Íslandi eru trans konur 0,02% íbúa. Hvaða vandamál erum við? Æ færri koma út núna heldur en áður. Ótti er eina skýringin. Samkvæmt öllum mælingum ætti trans fólk að vera um 1-3% mannkyns. Þegar örvhentir voru neyddir til að vera rétthentir og þeim haldið niðri þá var talið að um 3% mannkyns væru örvhent. Núna er talið að á milli 11-13% mannkyns séu örvhent og það er frekar stöðugt. Auðvitað gerist það að ef við leyfum fólki að vera eins og það er þá þorir fleira fólk að vera það sjálft. Og þá auðvitað verður fleira trans fólk í heiminum sýnilegt. Það verður fleira hinsegin fólk. Núna, samkvæmt ýmsum könnunum, segist um helmingur ungmenna skilgreina sig ekki sem 100% gagnkynhneigð heldur einhvers staðar flæðandi.
„Það er gott að þú nefndir þessa örvhentu,“ segir Anna. „Ég var einu sinni á bát. Á handfærum. Það er dálítið óþægilegt þegar einhver einn er örvhentur og allir hinir með vitlausu hendina á handfærum. Þarna var þetta ekkert vandamál. Öll áhöfnin var örvhent.“
„Það hefur verið alveg einstakt,“ segir Arna Magnea. „Annar fóstri minn í Hólkoti, hann Arnoddur Marinó, var örvhentur. Hann var fæddur 1906 og hann hafði verið neyddur til að vera rétthentur en það tókst þó ekki að fullu. Hann gat bókstaflega smíðað allt. Hann var listasmiður og hann smíðaði allt með vinstri, sagaði og annað. En hann skrifaði og borðaði með hægri því hann hafði verið neyddur til þess.“
Loki Laufeyjarson
Konurnar eiga þrjú börn hvor. Elsta barn Önnu, sem á eina dóttur og tvo syni, er fimmtíu og eins árs, það næsta er fjörutíu og níu ára og það yngsta er fjörutíu og fjögurra ára „Og ég sjálf er þrjátíu og eins árs,“ segir hún. „Ég byrjaði bara að telja upp á nýtt 1995.“ Barnabörnin eru sjö - það elsta er tuttugu og átta ára og það yngsta sjö ára. Barnabörnin kalla hana ömmu.
„Eftir því sem maður eldist þá finnst manni maður vera yngri núna heldur en þegar ég var tuttugu og sex ára,“ segir Arna Magnea, „af því að þá var ég svo alvarleg og svo lokuð inni í skápnum og að berjast við svo marga bagga. Ég held ég hafi ekki verið svona ung síðan fyrir áfallið þegar ég var ellefu ára. Þannig að ég er mjög ung í anda núna, enda á ég konu sem er tæpum átján árum yngri en ég.“
Arna Magnea á þrjá syni. Sá elsti er tvítugur, næsti er fimmtán ára og sá yngsti er ellefu ára. Það má búast við að börnin verði fjögur. „Þetta er ekkert leyndarmál lengur en núna er ég og konan mín í ferli að eignast barn saman þannig að ég verð komin á eftirlaun ennþá með barn á heimilinu. Þetta er dýrt og erfitt ferli og þetta er eins og að velja hrúta til undaneldis. Maður fer á einhvern banka, sæðisbanka, og velur einhvern til undaneldis. Við fórum í gegnum frjósemisklíníkina Sunnu og þau mæltu með ákveðnum og við erum að velja gjafasæði. Þetta er nú ekki gjafasæði en maður borgar um eina og hálfa milljón fyrir þetta frá Danmörku. Þetta er kallað að kaupa ákveðið mörg strá og maður kaupir alltaf fleiri en eitt af því að eitthvað getur farið úrskeiðis. Síðan er þetta ferli. Konan mín er að ganga í gegnum það að byrja að sprauta sig með ákveðnum hormónum og síðan þarf hún að fara í eggjatöku og síðan þarf að frjóvga þetta. Ég er einn áttundi Dani í móðurætt og einn fjórði Norður-Íri í föðurætt þannig að ég er svona Euro trash. Þá hugsaði ég með mér að allt mannkynið er skylt hvort sem er. Þetta barn verður ekkert minna barnið mitt heldur en synir mínir. Öll börn sem eru meðtekin af ást eru börnin manns.
Ég var alltaf barnakerling. Ég á systkini sem eru fimmtán, ellefu og tíu árum eldri en ég og þau áttu öll börn frekar ung og ég var svolítið mikið að passa þessi frændsystkini mín og ég var alltaf sú sem elskaði börn. Það var ein gömul frænka sem var alltaf að tönglast á því að ég hefði átt að fæðast stelpa og yngri systir mín strákur. Ég þorði auðvitað aldrei að sýna það en ég gladdist við þessi orð frænku minnar. Þó ég hafði ekki orð yfir sjálfa mig þá vissi ég alltaf að ég hefði átt að fæðast stelpa því þannig leið mér að innan.
Og við eigum það sameiginlegt systurnar að við bárum harm okkar í hljóði. Við gátum aldrei talað við neinn um ofbeldið á heimilinu af því að það var aldrei neitt traust að finna. Hún var eflaust, eins og ég, hrædd við viðbrögðin ef hún segði frá. Maður sagði aldrei neitt. Í raun kenndi maður sjálfri sér um allt sem miður fór.
Ég var þó svo heppin fyrir utan Guðstrúna að trúa einnig á trunt, trunt og tröllin í fjöllunum og álfana og allt þetta sem tengist móður náttúru. Og ég gat alltaf farið niður að sjó, sérstaklega þegar ég var í Hólkoti, og labbaði þar að kletti sem heitir Kirkjuklettur. Þar var hola þar sem ég sat og hafði útsýni út á sjóinn og ég talaði við álfana og hafmeyjarnar.“
Anna og Arna Magnea eru spurðar hvernig börn þeirra hafi tekið því þegar þær komu út sem trans konur.
„Viðbrögðin voru neikvæð hjá stelpunni,“ segir Anna. „Ég veit ekki alveg með strákana en svo breyttist þetta hjá henni en það var samt ekki fyrr en ég var komin heim frá Svíþjóð.“ Það hefur sært. „Já, svona aðeins. En strákarnir, allavega sá eldri tók mér fagnandi. Sá yngri var það ungur á þessum árum.“ Allt er í góðu í dag.
Arna Magnea segir að yngri synirnir tveir kalli sig mömmu. „Þeir líta á Magdalenu sem þriðju mömmuna þannig að þeir tala um að þeir eigi þrjár mömmur.“
„Þrjár mömmur og engan pabba,“ segir Anna.
„Ég er líffræðilegur faðir þeirra en ég er samt mamma þeirra,“ segir Arna Magnea. „Ég er svona eins og Loki Laufeyjarson.“
„Loki Laufeyjarson?“ segir Anna.
„Já, í goðafræðinni,“ segir Arna Magnea. „Loki bregður sér í hvaða kvikinda líki sem er. Hann var bæði faðir og móðir. Hann var móðir Sleipnis en faðir Hel og Miðgarðsorms. Þannig að ég get alveg verið bæði faðir og móðir. Ég er kannski ekki jafnillkvittin og Loki var í sögunum. En hvað um það. Þeir voru svo ungir þegar ég kom út. Sá elsti var ellefu ára, sá í miðjunni var sex ára og sá yngsti var bara rúmlega tveggja ára. En við höfum alveg rætt þetta. Þeir hafa séð gamlar myndir og þeim finnst það bara asnalegt þegar þeir sjá gamlar myndir af mér. Þetta er bara ekki ég. Til að skilgreina er ég oftast Arna mamma og síðan er það mamma og svo er það Magdalena.“ Elsti sonurinn, sem er hálffinnskur og býr í Finnlandi, kallar hana Örnu. „Og hann rangkynjar mig ekki.“
Annað viðmót en áður
Burtséð frá fordómum fólks eru konurnar spurðar hvort þeim finnist fólk koma almennt öðruvísi fram við þær sem konur heldur en ef þær væru karlar.
„Ég fann ekki fyrir neinni breytingu,“ segir Anna. „Ég hef umgengist sama fólkið. Jú, aðeins. Ég man einu sinni þegar ég kom á Ísafjörð og var á togaranum Jóni Kjartanssyni í brælu þá var ég dregin af stelpum í partí um nóttina,“ segir Anna og á við að stelpurnar hafi litið á hana sem eina af þeim. Anna viðurkennir að hún hafi líka fundið mun hvernig starfsfólk kemur fram við sig sem konu þegar kemur að ýmiss konar þjónustu en segir þó að það sé ekkert frá því að segja.
„Þegar ég var unglingur,“ segir Arna Magnea, „var ég að berjast við að ég var kvenleg lengi vel og var alltaf lítil og smágerð. Við fluttum upp í Breiðholt þegar ég var tólf ára og ég man að á leiðinni í skólann fyrsta daginn ákvað ég að læra að vera strákur. Ég fór markvisst að stúdera strákana og hvernig þeir löbbuðu. Ég lenti í kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Ég var sextán ára þegar vörubílstjóri ýtti kústskafti upp í rassgatið á mér og sagði að ég væri með svo kvenlegan rass að hann langaði að nauðga mér. Þá var ég að vinna við að steypa gangstéttir og við þurftum að draga sandinn aftur á bak þannig að við vorum á hnjánum. Síðan var einhver annar sem sagði að hann vildi nauðga mér með gúmmíhanska. Þetta var allt þegar ég var sextán ára. Þannig að ég fór alltaf meir og meir að pússa þessa grímu og verða karlmannlegri.
Eldri bróðir minn var verkstjóri hjá dekkjaverkstæði og fékk ég þar sumarvinnu og um jólin þegar ég var átján ára. Ég var alin upp við að vera dugleg í vinnu og var líkamlega sterk þó ég væri ekki hæst í loftinu eða breiðust. Þannig að mér tókst mjög fljótt að vinna mig upp í að vinna mikið vörubílamegin þar sem bara sterkustu mennirnir unnu. Þar var einnig harðasti karlahúmorinn og oft óþægilegt að hlusta á þennan karlahúmor og karlamenningu. En gríman skyldi standa og ég faldi allt sem var mjúkt og blítt og á þessum tíma var ég þessi harða, kalda og oft þögla týpa sem ég er svo sannarlega ekki í dag.
Ég var stöðugt í hlutverki og það var þess vegna sem ég 26 ára ákvað að fara í leiklistarnám erlendis. Ég var mjög týnd og vissi ekki hvað ég vildi gera. Ég var búin að fara í háskólann og læra sagnfræði og var þar í eitt og hálft ár en var bara svo tjónuð andlega og þunglynd að ég hafði enga ánægju af náminu. Ég hafði tekið allt meiraprófið 23 ára en alltaf endaði ég aftur á dekkjaverkstæðinu því þar gat ég unnið, nánast án þess að tala við fólk. Þunglyndið var að drepa mig og þar sem ég hafði gefið sjálfri mér loforð um að gefast aldrei upp þá varð ég að finna eitthvað sem gæfi mér einhverja gleði. Það var þá sem ég hugsaði með mér að ég væri alltaf hvort sem er að leika og gæti þess vegna orðið leikari. Ég var stöðugt að leika allan sólarhringinn.“
Núna þegar hún er orðin settleg, miðaldra kerling eins og hún orðar það þá finnur hún fyrir öðru viðmóti sem kona þegar hún fer til dæmis á dekkjaverkstæði. „Mér finnst það vera svo fyndið af því að ég veit allt um þetta. Ég vann við þetta í svo mörg ár. Það er algjörlega komið fram við mann eins og fávita. Maður fær alveg hrútskýringar hægri vinstri og mér finnst það smá fyndið. Þegar maður fer að tala um dekkjastærðir og þeir fatta að maður veit hvað maður er að segja þá verða þeir stundum svolítið kindarlegir. En ég hef líka fundið það á jákvæðan hátt. Maður fær jákvæðara viðhorf frá öðrum konum.“
Sumar á Only Fans
„Er þetta ekki að verða búið?“ spyr Anna allt í einu. Viðtalið er ekki alveg búið. Hvað segja þær um líffræðilega þáttinn þegar kemur að trans fólki?
„Ég er bara ekkert í sambandi við svona hluti í dag,“ segir Anna.
Hvað er sagt um þessi mál?
„Út af öllu þessu ofstæki gagnvarat trans fólki og sérstaklega gagnvart trans konum,“ segir Arna Magnea, „þá er töluvert gert af rannsóknum. Það eru núna fleiri ritrýndar, vísindalegar rannsóknir komnar fram sem eru viðurkenndar af alþjóðalæknastofnunum og ná yfir meira en eitt land. Þá er ég að meina viðurkenndar af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni meðal annars. Þessar rannsóknir eru orðnar það margar sem sýna fram á að það er líffræðilegur, taugafræðilegur sannleikur sem liggur að baki þess að vera trans. Þannig að ef það er taugafræðilegur sannleikur, og heilinn og taugakerfið okkar nær út um allt og er náttúrlega hluti af okkar líffræði, þá erum við líffræðilega konur sem fæddust með óræða litninga og/eða röng kynfæri og þar af leiðandi trans. Þar af leiðandi miðað við rökfræðina þá eru trans konur konur og trans karlar karlar. Og kynsegin fólk er nákvæmlega það sem það segist vera. Alveg eins og Descartes sagði: „Ég hugsa og þess vegna er ég.“ Kjarninn okkar og sálin okkar eða hvað sem við viljum kalla það liggur í meðvitundinni og meðvitund okkar hefur alltaf verið kvenkyns. Það er að segja mín og Önnu. Þess vegna erum við ekkert minni konur en aðrar konur. En af því að okkur var ekki trúað og af því að við gátum ekki talað við neinn þá þurfum við að að ganga í gegnum liggur við vítiseld og tólf þrautir Heraklesar í því að sanna hvað við erum. Og ég er að vona að trans börn og kynsegin börn framtíðarinnar þurfi ekki að ganga í gegnum það sem við þurftum að ganga í gegnum. En því miður er samfélagið núna, það vestræna sérstaklega, að fara aftur á bak og ég finn til með unga trans fólkinu okkar sem er að ganga í gegnum þetta. Þess vegna er ég að rífa kjaft af því að ég er vel menntuð, ég er í góðri vinnu, ég er fjárhagslega sjálfstæð og ég hef efni á að rífa kjaft af því að ég bý við ákveðin forréttindi, líka sem hvít, miðaldra kona sem kannski ungir trans einstaklingar gera ekki. Ég veit að mikið af ungu trans konunum okkar eru svolítið ósýnilegar vegna þess að þær þora ekki að stíga fram. Sumar eru á Only Fans til að geta borgað fyrir þann hluta ferlisins, sem er nánast allt fyrir utan stóru kynstaðfestandi aðgerðina, sem er ekki innan sjúkratryggingakerfisins. Fólk gerir sér ekki grein fyrir að margar af þessum aðgerðum kosta töluverðan pening og eru okkur lífsnauðsynlegar. Við erum ekkert að fá þetta upp í hendurnar.“
„Það er líka eitt í þessu,“ segir Anna. „Þegar ég var að ganga í gegnum mitt ferli þá var mikil áhersla lögð á að maður myndi ekki vera að auglýsa þetta út á við. Maður átti að ganga í gegnum þetta þegjandi og hljóðalaust með bros - helst bleikt bros - á vör og ekkert vera að tjá sig um þetta við aðra. Bara láta sig hverfa inn í fjöldann. Vinkona mín sem var á undan mér í aðgerð lifði alveg eftir þessu.“ Anna var hins vegar áberandi. „Ég varð að gera það af því að ég var formaður félagsins úti í Svíþjóð.“
Tíminn hefur liðið og Anna þarf að fara. Við Arna Magnea sitjum áfram í hlýlegri stofunni. Og hún segir frá því að hún sé á einhverfurófinu en hún fékk greiningu fyrir örfáum árum. Þessi hlið hefur líka haft áhrif á líf hennar.
Púsl sem passaði hvergi
Arna Magnea segist hafa verið talin svolítið furðuleg sem barn. „Ég átti það til að sjá fólk sem var dáið og leika mér við álfa sem ég kallaði litlu kallana í náttfötunum.“ Hún kímir. „Ég talaði mikið við langömmu mína og ég á minningar af þessari konu en hún dó víst áður en ég fæddist. Mér var seinna sagt að ég gæti ekki átt minningar af henni. Ég á alveg fleiri minningar þar sem ég sá ýmislegt. Málið er að ég sá aldrei mun á fólkinu sem var dáið og fólkinu sem var ekki dáið sem gerði það að verkum að ég átti það til að vera að tala við einhvern og svo var gert grín að mér af því að þau héldu að ég væri að tala við loftið.“ Það er spurning hvort Arna Magena hafi verið skyggn sem barn. Hún tekur undir það.
„Þegar ég var lítil dreymdi mig oft að heimurinn væri búinn til úr þremur risastórum mæðrum, þremur mæðrum sem væru alheimuirnn að fæða af sér plánetur og sólkerfi. Þessar þrjár mæður eru fyrir mér Guð og ég trúi að stjörnubarnið mitt, sem við Magdalena munum eignast, komi frá þeim. Hann, hún eða hán.
Ég þótti skrýtin og bróðir minn, sem er ellefu árum eldri en ég, neitaði að sofa í sama herbergi og ég. Hann sagðist vera myrkfælinn í kringum mig. Þannig að ég var talin alveg stórfurðuleg. Og það er kannski svolítið erfitt fyrir barn að heyra það stöðugt að það sé skrýtið og frík. Ég var alltaf ein og öðruvísi. Ég var púsl sem passaði hvergi. Passaði ekki einu sinni í eigin líkama. Ég lokaði mig alltaf meira og meira af.
Ég var samt mjög sterk og ákveðin. Fimm ára stóð ég uppi í hárinu á kaupfélagsstjóranum í Sandgerði af því að ég hafði verið send til að kaupa Prins Póló og kók í gleri og pokinn rifnaði á leiðinni út og kókflöksurnar brotnuðu. Ég fór inn og heimtaði nýjar kókflöskur í staðinn og betri poka. Kaupfélagsstjórinn sagði bara nei. Ég sýndi honum rifna pokann og ég stóð þarna fimm ára og beygði mig ekki þangað til hann lét mig fá tvöfaldan nýjan poka og ég fékk nýtt Prins Póló og kók og labbaði síðan heim í Hólkot úr kaupfélaginu sem var smáspotti. Föðursystir mín var vitni að þessu en hún var náttúrlega ekkert að blanda sér í leikinn því hún hafði gaman af. Ég hafði alltaf munninn fyrir neðan nefið.
Ég las mikið og ég byrjaði mjög snemma að lesa. Bekkurinn fékk nýjan umsjónarkennara í átta ára bekk sem var nýútskrifaður og hélt að ég væri heyrnarlaus.“ Barnið var sent í skoðun. Ekkert var að heyrninni og segir Arna Magnea að hún hafi verið talin vera náttúrubarn sem virtist vera í lagi en þegar hefur verið minnst á þetta. „Ég var náttúrlega bara einhverf. Það kom þá líka í ljós að ég er fluglæs á hvolfi. Ég fékk þess vegna skilaboð heim um að ég þurfi að læra að lesa upp á nýtt þar sem ég gat bara lesið á hvolfi en ekki „rétt“. Hjálpin heima var hnefi og öskur yfir því hvað ég væri mikil kerling og píka þar sem ég sat grenjandi að reyna að læra að lesa upp á nýtt. Ég sem betur fer var fljót að læra að lesa „rétt“ á eigin spítur og bað aldrei aftur um hjálp við heimalærdóminn.“
Arna Magnea ruggaði sér stundum fram og til baka, sem getur verið einkenni einhverfu, og var að eigin sögn stöðugt í einhverjum dagdraumum. Á meðal einkenna þeirra sem eru einhverfir og á einhverfurófinu er að þeir eiga erfitt með að horfa í augun á fólki. Arna Magnea þekkir það. „Móðuramma mín sagði við mig þegar ég var krakki að það væri bara vont og illa innrætt fólk sem gæti ekki horft í augun á fólki. Ég á ennþá erfitt með það. Ég á mikið auðveldara með það núna af því að ég píndi mig. Ég jafnvel horfði stundum svo djúpt í augun á fólki að ég var bara starandi. Þetta var liggur við þannig að maður var með tárin í augunum að reyna að halda augnsambandi og mér finnst það ekki auðvelt. Ég las rosalega mikið sem barn og bækurnar urðu minn flótti frá raunveruleikanum og eflaust þess vegna sem ég elskaði mest að lesa ævintýri, fantasíur og vísindaskáldsögur því þær voru nægilega langt í burtu frá mínu eigin lífi. Oft var ég ekki ánægð með hvernig sögurnar enduðu, eða bara að þær enduðu, svo ég bjó til heilu framhaldssögurnar í hausnum á mér. Ég skrifaði nokkrar smásögur sem barn en fór fljótlega í það að skrifa ljóð.“
Sporðdrekakonan
Arna Magnea segist hafa lært að fela. „Ég lærði að þykjast vera eitthvað allt annað. Maður lærði alls konar hluti bara til þess að lifa af. Og ég var svona „survivor“ í gegnum ævina. Þegar ég var sextán ára sprakk í mér botnlanginn. Ég mætti strax í skólann með sprunginn botnlanga og var svo í tæpar fjórar vikur á spítala og nærri dauð tvisvar og fékk lungnabólgu trekk í trekk í kjölfarið. Ég fékk bæði lungnabólgu og lífhimnubólgu. Ég var sjötíu og fimm kíló þegar botnlanginn sprakk en bara um fjörtutíu kíló þegar ég kom út af spítalanum. Ég var á stjórnunar- og ritunarbraut í Fjölbraut í Breiðholti og náði öllu. Mér var hins vegar tilkynnt að ég hefði fallið á mætingu þessa önn og þyrfti að taka öll fögin aftur og að það hefði verið mistök að hleypa mér í prófin. Þótt það hafi verið A, B, C, D og F-kerfi þá var ég með meðaleinkunn um átta. Ég tók þetta allt upp aftur. Ég fékk lungnabólgu aftur haustið eftir og fór á aðra braut en síðar fór ég aftur á sömu braut og var með um sextíu umframeiningar þegar ég útskrifaðist sem stúdent árið 1991, einni önn síðar en ég hefði átt að gera. Ein önn fór í vaskinn af því að botnlanginn sprakk.“
Arna Magnea var valin ljóðskáld skólans sennilega árið 1989 eins og hún segir fyrir spurningakeppni framhaldskólanna það árið.
Hún hefur oft skrifað ljóð í gegnum árin og segir að þegar hún var yngri hafi það verið gert til að fá útrás fyrir konuna innra með sér. „Fólk hélt að ég væri að skrifa um einhverja aðra konu. Eitt ljóðið heitir Sporðdrekakonan; ég er sporðdreki og á afmæli á hrekkjavöku, 31. október.“
Ljóðið byrjaði svona:
Upp úr blóðlituðu hafinu skreið hún öskrandi
„Þetta voru bara tilfinningar sem voru að berjast innra með mér.
Svo fór ég að skrifa meira ljóð þegar maður hafði tíma til. Ég fór að skrifa mikið hefðbundið og í Englandi fór ég að skrifa í Shakespeare-stíl. Það var af því að ég var svolítið hrifin af forminu. Ég hef líka skrifað óhefðbundin ljóð í gegnum tíðina.
Ég gaf út tvær ljóðabækur þegar ég var yngri. Önnur heitir Rómantík og kom út árið 1992 og hin heitir Rósir og kom út árið 1996. Báðar bækurnar voru gefnar út undir gamla, dauða nafninu mínu og er ég því lítið að flagga þeim núna.“
Arna Magnea fór í einhverfugreiningu fyrir nokkrum árum og í kjölfarið var hún greind með einhverfurófsröskun.
Hún segir að vegna röskunarinnar horfi hún kannski öðruvísi á umhverfið heldur en þeir sem eru ekki þannig. „Nú tilheyri ég alls konar hópum og mér hefur aldrei liðið eins og heima hjá mér eins og innan um aðrar einhverfar konur. Það er hópur einhverfa kvenna sem hittist af og til og þar finnst mér ég geta virkilega bara verið ég.“
Hann, hún eða hán
Arna Magnea, sem hefur starfað sem kennari í rúm tuttugu ár, er búin að vera í veikindaleyfi síðustu mánuði en hún var í fyrra umsjónarkennari sjötta bekkjar auk þess að hafa kennt íslensku sem annað tungumál. Þá hefur hún kennt námskeið við Landbúnaðarháskóla Íslands þar sem hún kennir meistara- og doktorsnemum framsögn. Síðan hefur hún frá árinu 2012 kennt námskeið í sviðsbardagalist við Kvikmyndaskóla Íslands auk þess að hafa kennt stopult leiklistarnemum sviðsbardagalist við Listaháskóla Íslands. „Ég er eini Íslendingurinn sem er með kennsluréttindi í sviðsbardagalist frá BADC (British Academy of Dramatic Combat) sem er oftast kallað áhættuleikur/leikstjórn hér á landi sem er ekki alveg rétt heiti en allt of langt að fara í það. Í Bretlandi er skýr munur á milli sérsviða en hér erum við öll sem komum að áhættuleik sett undir sama hattinn. Ég tók svo grunn- og framhaldskóla kennsluréttindin við listaháskólann 2009. Þannig að ég er leikkona, áhættuleikstjóri, grunn- og framhaldsskólakennari og svo er ég búin með kynjafræðina að öllu leyti nema að ég á eftir að skila af mér mastersritgerðinni sem ég er búin að fresta út í það óendanlega. Ég var búin með kynjafræðina árið 2020 nema að ég átti eftir mastersritgerðina og þá kom Covid og svo fór ég það ár í kynleiðréttingaraðgerðina sem mistókst. Ég er síðan búin að vera í áfallameðferð og alls konar þannig að þetta er búið að frestast og ég er ekki alveg tilbúin að klára þetta. Ég er farin að skammast mín svolítið fyrir að vera ekki búin með þetta en ég á bara þessa blessuðu mastersritgerð eftir til að vera orðin kynjafræðingur.“
Arna Magnea Danks á sér marga drauma og þar á meðal að klára mastersritgerðina og svo er gifting fram undan og væntanlega barn. „Við hlökkum mikið til. Við erum báðar fráskildar og ætlum að hafa draumabrúðkaup okkar beggja í kirkju og það verður stór veisla og mörgum boðið. Þó við eigum kannski ekki sterkt bakland þegar kemur að fjölskyldu þá ætlum við samt að bjóða ákveðnum fjölskyldumeðlimum og sýna fyrirgefningu og kærleik í verki.
Svo eigum við líka svo stóra fundna fjölskyldu í hinsegin samfélaginu. Þó þar sé hægt að finna híarkíu þar sem skyggir á trans fólk þá er einnig hægt að finna þar ótrúlega mikinn stuðning þegar maður hittir og finnur sitt fólk. Það er ekkert endilega fólkið sem maður hittir fyrst og sem þykist vera vinir manns heldur fólkið sem er ennþá til staðar þegar maður þarf á því að halda. Og við eigum ansi stóran hóp af bara virkilega fallegu og góðu fólki sem er með alls konar kynvitund og kynhneigð.“
Arna Magnea ætlar að klæðast brúðarkjól á stóra deginum. Hún tekur upp símann sinn og leitar að mynd. Á skjánum er mynd af konu í svo fallegum einföldum og stílhreinum brúðarkjól að það er leitun að öðru eins. Hana dreymir um að gifta sig í svipuðum kjól. „Af því að ég er fimmtíu og fimm ára þá vil ég ekki vera í ermalausum kjól og þetta er sá sem ég er hrifinust af. Af því að við erum að búa til barn og ætlum að fara í brúðkaupsferð þá er ég að hugsa um að leigja kjól. En ég er tvístígandi með það af því að litla þrettán ára stelpan sem er alltaf hérna inni vill fá prinssessudrauminn. Kannski kaupi ég kjól.“
Arna Magnea lætur draumana rætast. „Það er sama hvað bjátar á en það að lifa í voninni er það sem maður þarf að gera. Það er það sem ég gerði sem barn. Það er það sem ég gerði í gegnum allt sem ég hef orðið fyrir. Það var að halda í einhverja von. Og maður verður bara að gera það. Ekki bara fyrir sjálfan sig heldur líka fyrir fólkið sem maður veit að þykir vænt um mann og maður þykir vænt um.“
